Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Atlaga Alþýðubandalagsins að Hitaveitu Reykjavíkur eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson Eitt helsta kosningamál Alþýðu- bandalagsins eru máiefni Hitaveitu Reykjavíkur. Reynt er að tortryggja framkvæmdir hitaveitunnar á Nesjavöllum og kaupin á Ölfus- vatni, sem tryggja framtíðarhags- muni Hitaveitu Reykjavíkur og þau sögð þjónkun við „þekkta íhalds- fjölskyldu í borginni". Máli sínu til stuðnings beita frambjóðendur Alþýðubandalagsins rangfærslum og ósannindum eftir því sem þurfa þykir. Frambjóðendur Alþýðuflokks og Framsóknarflokks éta málflutn- ing Alþýðubandalagsins hráan upp, eins og svo margt annað í þessari kosningabaráttu. Framkvæmdir á Nesjavöllum Hitaveitan verður að fá aukið afl og orku. Gert er ráð fyrir árlegri aukningu afls og orku um 20 MW og 95 GWst. Borgarskipulag Reykjavíkur spáir því, að byggðar verði u.þ.b. 700 íbúðir árlega. Einn- ig verður að gera ráð fyrir svipaðri rúmmálsaukningu í atvinnuhús- næði svo og annarri óvissri notkun. Annað atriði sem hafa verður í huga þegar aflaaukning er áætluð, er aflminnkun núverandi vinnslu- svæða vegna lækkandi vatnsborðs og innstreymis af köldu vatni. Orka frá fyrsta áfanga Nesja- vallavirkjunar (100MW) mun kosta um 0,25 kr./kwst. og eru ekki í sjónmáli aðrir kostir sem tryggja munu bæði afl og orku jafn ódýrt og með sama öryggi. Framkvæmdir á Nesjavöllum eru miðaðar við að þekking okkar á svæðinu sé nægileg og ítarlegar upplýsingar liggi fyrir þegar ákvörðun er tekin. Alþýðubandalag- ið vill fresta öllum framkvæmdum í 10 ár, en það einkenndi reyndar alla stjóm Alþýðubandalagsins á málefnum Reykvíkinga frá 1978—1982 að fresta málum. Alþýðubandalagið vill að Reyk- víkingar treysti á umframorku frá Landsvirkjun. í því felst engin trygging fyrir notendur hitaveit- unnar. Með því væri verið að tefla öruggri þjónustu hitaveitunnar við Reykvíkinga og aðra notendur í tvísýnu, en Hitaveita Reykjavíkur þjónar nú 130.000 manns. Orkuverðið er nú 0,38 kr./kwst. komið inn fyrir húsvegg. Hitaveitan sparar hverjum Reykvíking a.m.k. 12.500 kr. á ári. Aðrir landsmenn öfunda okkur af þessum gæðum, allir nema frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins með ritstjóra Þjóðvilj- ans í fararbroddi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „Hver fermetri í þessu landi var keyptur á kr. 3,67. Viðey var keypt fyrir rúmar 40 kr. fer- metrinn. Vinstri meiri- hlutinn keypti 521 hekt- ara af Reynisvatnslandi árið 1979 og greiddi á núvirði 5,30 kr. fyrir fermetrann.“ Viðskilnaður vinstri meirihlut- ans í borgarstjóm við Hitaveitu Reykjavíkur var ekki gæfulegur. Erlendar skuldir höfðu hlaðist upp og viðhald lagna í lágmarki. Sjálfstæðismenn hafa snúið þessu dæmi við. I dag em erlend- ar skuldir litlar, viðhald hefur verið stóraukið og gjaldtaka er lægri í dag en árið 1982. Kaupin á Olfusvatni Reykjavíkurborg hefur lengi haft augastað á þessu landi. I skýrslu Orkustofnunar um jarðhita á þessu svæði voru borgaryflrvöld eindregið hvött til að festa sér það, til þess að geta séð fyrir jarðhita fyrir höfuðborgarsvæðið til frambúðar. Hver fermetri í þessu landi var keyptur á kr. 3,67. Viðey var keypt fyrir rúmar 40 kr. fer- metrinn. Vinstri meirihlutinn keypti 521 hektara af Reynis- vatnslandi árið 1979 og greiddi á núvirði 5,30 kr. fyrir fermetr- ann. Nesjavallaæð verður lögð um iandið á næstu árum. Önnur not af landinu eru ekki sjáanleg næstu áratugina. Sjálfstæðismenn studdu þessi kaup og töldu þau skynsam- leg. Reykjavíkurborg hefur ávallt lagt á það áherslu að tryggja fram- tíðarhagsmuni sína. Landakaup í þágu orkuöflunar eða framtíðar- byggðaþróunar borgarinnar eru nauðsjmleg. Minna má á, að Korp- úlfsstaðir voru keyptir á sínum tíma af Reykjavíkurborg undir forystu Bjama Benediktssonar, þáv. borg- arstjóra. Þar var sýnd framsýni, sem nú kemur sér vel, en á næstu árum verður það svæði skipulagt undir íbúðabyggð og útivistarsvæði. í Ölfusvatnsmálinu og ýmsum öðrum málum er ósannindavaðall ritstjóra Þjóðviljans og frambjóð- anda Alþýðubandalagsins, hreint ótrúlegur. Hann heldur því blákalt fram, að ekki megi nýta landið í þágu borgarinnar næstu 50 árin. Reykjavíkurborg getur þegar á morgun byijað að nýta landið í þágu ot kuöflunar. Ósannindi Þjóðviljaritstjórans skjóta upp kollinum í ýmsum öðrum málaflokkum. Hann sagði t.d. í út- varpsumræðum nýlega að enginn á borgarstjómarlista Alþýðubanda- lagsins hafi staðið að nýgerðum kjarasamningum. Siguijón Péturs- son, efsti maður á lista Alþýðu- bandalagsins, og Guðrún Ágústs- dóttir, þriðji maður á lista sama flokks, greiddu atkvæði sitt með þessum samningum á borgarstjóm- arfundi í mars sl. Ósannindi og rangfærslur þessa manns eru með ólíkindum. Fleiri dæmi mætti nefna en hér verður látið staðar numið. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og skipar 5. sæti i lista hans í Reykjavík. Grunnskólanemar buðu öldruðum til skemmtunar í TILEFNI af 200 ára afmæli Reykjavíkur buðu nemendur grunnskólanna eldri borgurum til skemmtunar í Háskólabíói laugardaginn 3. maí sl. Að sögn Ragnars Georgssonar, fræðslufulltrúa, var nær húsfyllir í Háskólabíói og virtust ungir sem gamlir skemmta sér konunglega saman. Strætisvagnar Reyjavíkur sáu um að flytja boðsgesti frá öllum öldrunarheimilum borgar- innar og heim aftyr eftir skemmt- unina. '. ■ ■ ■ Á efnjsskránni kenndi margra grasa, m.a. fluttu þrír kórar nokk- ur lög hver, kór Melaskóla, Hóla- brekkuskóla og Árbæjarskóla. Þá kom flautusveit 8 ára bama frá Árbæjarskóla, bamaflokkur frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, lúðrasveitir Laugamesskóla og Árbæjar og Breiðholts. Auk þess var á skemmtuninni píanóleikur, fiðluleikur og diskódans. Bamaflokkur frá Þjóðdansafélagi Reylgavíkur. Nær húsfyllir var í Háskólabíói. Flautusveit 8 ára baraa frá Árbæjarskóla. Kór Melaskóla. Stjórnandi Helga Gunnarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.