Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.05.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Sinfóníuhlj ómsveit í slands þyrfti að vera stærri Morgunblaðið/Emilfa. — segir Jean-Pierre Jacquillat, sem stjórnar síðustu tón- leikum sínum sem aðalstjórnandi ann- að kvöld SÍÐUSTU áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á þessum starfsvetri verða haldnir annað kvöld, fimmtudagskvöld. Jafnframt verða þetta siðustu tónleikar Jean-Pierre Jacquillat sem aðalstjórnanda hljómsveit- arinnar, en því starfi hefur hann gegnt síðan 1980. Jean Pierre Jacquillat fæddist f Versölum árið 1935. Að loknu tón- listarnámi í Hiher Tónlistarháskól- anum í París var hann ráðinn sem aðstoðarhljómsveitarstjóri við Sin- fóníuhljómsveit Parísar. Hann stjómaði íjölda tónleika í Frakk- landi og víðar auk þess sem hann hóf að hljóðrita franska tónlist, starf sem hann hefur sinnt af miklum áhuga síðan. Árið 1970 var hann ráðinn aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Anger og ári seinna aðalhljómsveitarstjóri Operunnar í Lyon og Rhone-Alpes hljómsveitar- innar. Árangurinn af starfí hans við óperuna í Lyon leiddi til þess að honum var boðið að stjóma ópemuppfærslum víða um heim, í Evrópu, Suður-Ameríku, Banda- ríkjunum og Austurlöndum nær. Árið 1975 fluttist hann aftur til Parísar og gegndi um tveggja ára skeið starfí tónlistarráðgjafa hinnar frægu Lamoureux hljómsveitar. Undanfarin ár hefur Jean-Pierre verið eftirsóttur sem gestastjóm- andi víða um heim, bæði austan tjaldsog vestan. Á íslandi hefur Jacquillat stjóm- að 23 íslenskum verkum, 25 verkum eftir frönsk tónskáld, fjórum óper- um í konsertuppfærslu auk annarra óperutónleika og 109 öðrum verk- um eftir 49 tónskáld á 94 tónleik- um. Auk þess hefur hann hljóðritað fjölda verka. Þá fór Sinfóníuhljóm- sveitin í tónleikaferð til Frakklands sl. sumar fyrir tilstilli Jacquillat. í sumar mun hann sljóma þrenn- um tónleikum hljómsveitarinnar á Jean-Pierre Jacquillat Listahátíð og verður auk þess gestastjómandi hér næsta starfsár. Næsta vetur er hann ráðinn sem tónlistarstjóri við Saint Etienne óperuna í Frakklandi og framundan eru ferðalög til Rússlands, Japan, Kína, Tyrklands, Ítalíu og Belgíu. Fyrir tónleikana annað kvöld hefur Jacquillat valið verk úr sjóði franskra tónbókmennta. Á efnis- skrá eru þijú verk. Verkin era Pavane fyrir látna konungsdóttur eftir Maurice Ravel, balletttónlistin Dafnis og Klói, en í hinu síðar- nefnda syngur 97 manna sameinað- ur kór Hamrahlíðarkórsins og Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur, og síðasta verkið á efnisskránni er Symphonie Fantastique eftir Hector Berlioz. Hljómsveitin hefur verið stækkuð til muna fyrir þessa tón- leika og verða 94 hljóðfæraleikarar á sviðinu að þessu sinni í stað 65 eins og verið hefur. „Æskilegt væri að Sinfóníuhljómsveit íslands væri þetta stór - bestu hljómsveitimar eriendis era yfírleitt af stærðar- gráðunni 90-100 manns," sagði Jacquillat. „Tónlistarlíf á íslandi er fjöl- skrúðugt og sífellt eitthvað um að vera á því sviði. Að mínu mati er því hæfílegt að halda sinfóníutón- leika tvisvar í mánuði þar sem áheyrendafjöldinn er takmarkaður. Þó tel ég að gera megi fleiri hljóm- plötur með leik sinfóníuhjómsveit- arinnar þannig að hægt sé að færa tónlistina inn á hvert heimili. Þá mætti sjónvarpið sýna hljómsveit- inni meiri áhuga, sérstaklega þar sem það má taka upp 120 mínútur endurgjaldslaust fyrir utan frétta- kynningar - en það hefur ekki nýtt sér það tækifæri til þessa, telur sig ekki hafa nægilega góðan tækja- búnað. Síðan ég kom til íslands hefur hljómsveitin leikið þó nokkuð af frönskum verkum - aðallega þeim eldri eða frá fyrri öld. Hinsvegar hef ég mikið dálæti á sumum ís- lenskum nútímatónskáldum - sér- staklega þeim Jóni Nordal, Þorkeli Sigurbjömssyni, Atla Heimi Sveins- syni og Karolínu Eiríksdóttur. Atli Heimir fínnst mér þó hvað mest nútímalegur í sínum tónsmfðum. Ég hef ekki notað íslensku tónverkin erlendis ennþá en geri fastlega ráð fyrir að pakka nokkram þeirra niður með mér. Mér fínnst alltaf svolítið meira spennandi að vinna við óperar heldur en sinfóníur. Maður kemst í snertingu við svo margt í einu í óperanum," sagði Jacquillat. Maurice Ravel (1875-1937) var, ásamt Claude Debussy, merkasti brautryðjandi hinnar nýju tónlistar í Frakklandi. Bæði þessi tónskáld vora undir áhrifum austurlenskrar tónlistar sem barst til Parísar í tengslum við Heimssýninguna miklu 1889, en Ravel varð Ifka fyrir áhrifum af jazz og oft má heyra dansáhrif f verkum hans eins og í báðum verkunum sem flutt verða á þessum tónleikum. Hann var frá- bær píanóleikarí og era mörg hljóm- sveitarverka hans upphaflega sam- in fyrir píanó, sem hann síðar út- setti fyrir hljómsveit. Pavane fyrir látna konungsdóttur var samið fyrir píanó 1899 og umritað fyrir h'jóm- sveit 1910. Pavaneerdans af ftölsk- um upprana, hægur og virðulegur og sagt er að hann hafí tíðkast við spönsku hirðina á sorgarstundum. Ballettinn Dafnis og Klói var saminn 1909-1911 að beiðni Serge Diaghilef. Hann fjallar um forn- grísku ástarsöguna um hirðingjann Dafnis og ástmey hans Klói. Stór hljómsveit og kórsöngur án orða mynda litríkan og hrífandi dans sem talar beint til áheyrandans. Hector Berlioz (1803-1869) var eitt stórbrotnasta tónskáld sem Frakkar hafa átt. Þegar hann var 24 ára gamall og nemandi í Tónlist- arháskólanum í París fór hann á sýningu á Hamlet og varð strax ástfanginn af írskri leikkonu sem lék Ófelíu, Henriette Smithson að nafni og þau giftust síðar. Hún var kveikjan að Symphonie Fant- astique, sem ber undirtitilinn „Þættir úr lífí listamanna". Verkið er í fímm þáttum og bera þeir nöfnin Draumar - ástríður, Dans- leikur, í sveitinni, Á leið til aftöku- staðarins og Nomadans. Symph- onie Fantastique vakti mikla athygli þegar hún var framflutt í París árið 1830 og nýtur enn vinsælda. Flutn- ingur verksins tekur 50 mínútur. Lögmannafélag í slands 7 5 ára TÍMARIT lögfræðinga, 4. hefti 35. árgangs, er nýlega komið út. Það er að nokkru leyti helgað lögmönnum í tilefni af 75 ára afmæli Lögmannafélags Islands, sem er í ár. Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. ritar forystugrein í ritið um lög- menn og stöðu þeirra gagnvart almenningi og fjölmiðlum, minnst er látinna lögmanna, Jónatan Þór- mundsson prófessor skrifar langa grein um hlutverk og réttarstöðu veijenda og Ragnar Aðalsteinsson hrl. skrifar um fjölföldun vemdaðra verka. Þá skrifar Lára Júlíusdóttir hdl. um dóm um rétt til launa í veikind- um, birt er skýrsla stjómar LMFÍ fyrir sfðasta starfsár, Hjördís Há- konardóttir sýslumaður skrifar um Amnesty Intemational og Bjöm Þ. Guðmundsson prófessor skrifar um nýja stjómsýslulöggjöf í Danmörku. Ritsfjóri Tímarits lögfræðinga er Jónatan Þórmundsson en Lögfræð- ingafélag íslands gefur það út. „Sauðkindin situr í öllum kúltúr nefndum4 ‘ Alfreð Flóki sýnir 30 listaverk 1V estmannaeyj um Alfreð Flóki við eina mynda sinna sem hann sýnir í Eyjum, en nú leitar listamaðurinn m.a. fanga i ljóðum Daviðs og Jóhanns Gunnars. Alfreð Flóki opnar sýningu á liðlega 30 nýjum myndum eftir sig í AKOGES-húsinu í Vestmannaeyjum föstudaginn 23.maí nk. Listamaðurinn mun sjálfur fylgja sýningunni til Eyja ,en við spurðum hann nán- ar um myndimar. „Þetta verða rúmlega 30 myndir, penna, krítar, rauðkrítar og svartkrít- armyndir," sagði Flóki, „þarna verða myndir við Ijóð og þjóð- sögur, Ijóð stórmeistaranna og fijálsar fantasíur. Einstakar myndir eru við Ijóð eftir Davíð Stefánsson og Jóhann Gunnar Sigurðsson og svo er slatti af madonnumyndum að sjálf- sögðu og auðvitað eru einnig myndir sem munu verða þess valdandi að Vestmanneyingar munu setja hnykk i að auka kyn sitt á næstunni.“ „Jú, ég hef einu sinni sýnt í Vestmannaeyjum áður, hafði litla sýningu þar árið 1974 en komst ekki sjálfíir af ýmsum ástæðum," sagði Flóki og kvaðst hlakka mikið til að koma til Vestmanna- eyja í fyrsta skipti. Aðspurður um myndefnið og efnisval tengt ljóð- um sagðist Flóki alltaf hafa gert íslensk motiv innan um og saman við og kvaðst ekki frá því að hann mjmdi gera meira en áður af slfku í framtíðinni. Alfreð Flóki kvaðst vera brattur og hress, frekar planlaus í augna- blikinu, hugsanleg væri þátttaka í samsýningum erlendis næstkom- andi haust, en þetta yrði allt að ráðast. Þetta er allt breytingum undirorpið, ég er hættur að reykja og drekka og láta mynda mig því ég er ekki eins sætur og sjarm- erandi og ég var, þeir ljúga ekki speglamir. Nei, ég er ekki að hugsa um mína heilsu, heldur velferð íslensku þjóðarinnar. „Hefur þú trú á íslensku þjóð- inni ennþá?" “Maður hefur trú á henni, auðvitað, eins og blessaðri sauð- kindinni.Það er merkilegt, sauð- kindin er allsráðandi í íslenskum bókmenntum og sönglistinni, hlustaðu á karlakór á plötu og þar er hún komin og hún situr í öllum kúltúmefndum sem ég þekki til.“ „Jú, ég hlakka til að fara til Vestmannaeyja, ég hef aldrei komið þangað og það er ekki hægt að fara í sína kistu án þess að hafa komið til Vestmanna- eyja.“ Við fóram að skoða myndir Flóka og ég hafði orð á því hvað þær væra spennandi. „Já,“ svar- aði Alfreð Flóki um hæl, „ég er alltaf að rembast við að segja fólki að ég sé snillingur, en það hlustar ekki á mig fyrr en eftir 100 ár þegar krítíkerar framtíðar- innar tilkynna það og allir standa á öndinni." Við hófum nú að undirbúa myndatöku af iista- manninum og þegar ég bað hann að lyfta öðram fætinum upp á stðlbrík til þess að fá góða sveiflu í líkamann fyrir mynd, þá greip Flóki andann á lofti og sagði að ég mætti ekki mynda á honum hnéð, því þá seldi hann ekki eina einustu mynd, „og þó,“ bætti hann við, „ég veit að Vestmanneyingar era svo helvíti kúltúrískir að þeir láta það ekki stöðva sig.“ - á.j.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.