Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 32

Morgunblaðið - 21.05.1986, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 Morðið á Olof Palme: Nefnd skipuð til eftirlits með lög- reglurannsókninni Stokkhólmi. AP. SERSTÖK nefnd verður skipuð í þessari viku til að hafa eftirlit með lögregiurannsókninni vegna morðsins á Olof Palme forsætisráðherra, að því er tilkynnt var á mánudag. Sten Wickbom dómsmálaráð- herra gerði tillögu í síðasta mánuði um að koma slíkri nefnd á laggirn- ar. Nefndin á einnig að huga að öryggismálum og fleiri sviðum, sem tengjast morði forsætisráð- herrans 28. febrúar sl. Lögreglan hefur látið í ljós ugg um, að rannókn nefndarinnar geti orðið starfí lögreglunnar fjötur um fót. „Nefndin mun í upphafí einbeita sér að málum, sem ekki tengjast lögreglurannsókninni beint - í því skyni að valda sem minnstum truflunum," sagði Harald Falth, fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Um þessar mundir, þremur mánuðum eftir að morðið var framið, hefur hvorki tekist að finna morðingjann né morðvopnið, og enginn er í vörslu lögreglunnar vegna gruns um aðild að málinu. Sl. föstudag hreinsaði saksóknar- inn í Stokkhólmi eina manninn, sem vitað er um, að sætt hafí alvarlegri rannsókn. Lögreglustjórinn í Stokkhólmi, Hans Holmer, sem stjómað hefur lögreglurannsókninni, hefur lýst því yfír, að ekkert lát sé á leitar- starfínu. Og í síðustu viku sagði hann, að „ótímabær skipun rann- sóknarnefndar" gæti spillt fyrir árangri af starfi lögreglunnar. Wickbom dómsmálaráðherra bar fram tillöguna um skipun nefndarinnar 16. apríl sl., er lög- reglurannsóknin hafði sætt harðri gagnrýni. England: Karlmaður kjörinn fegurðardrottning AP/Símamynd „Sæll pabbi“. Andrei, 15 ára sonur sovéska kvikmyndagerðarmannsins Andreis Tarkovskís, hringir í föður sinn eftir að hann tók við Gullpálmanum fyrir hans hönd. Á vinstri hönd hans stendur sænski kvikmyndatökumaðurinn Sven Nykvist og til hægri er framleiðandi myndarinnar „Fórnin“ Anna-Lena Wibom. Kvikmyndahátíðin í Cannes: Bretinn Roland Joffe hreppti Gullpálmann Fórn Tarkovskís hlaut sérstaka viðurkenningu Cannes. AP. MYNDIN „The Mission“ (trúboðsstöðin) eftir breska leikstjó- rann Roland Joffe hlaut Gullna pálmann á 39. kvikmyndahá- tíðinni í Cannes í Frakklandi á mánudagskvöld og var valin besta myndin. Selsey, Englandi. AP. SPENNAN var í hámarki. Kynn- irinn gekk fram og kynnti sigur- vegara í fegurðarsamkeppninni í Selsey á Englandi: Nicola Bar- rett. En þegar Nicola gekk fram til að taka við verðlaunum sínum sagði hún: „Ég heiti Nikulás — og ég er strákur." Hinum sautján ára gamla Niku- lási Lewis tókst að bleklq'a alla í fegurðarsamkeppninni í sjávar- þorpinu á suðurströnd Englands í . sfðustu viku. Hann kvaðst hafa verið manaður til að taka þátt í keppninni. Vinir hans hjálpuðu honum til að lita ljós- ar rákir í hár sitt, hengdu í eyru hans stóra lokka og settu fyrirferð- armikið men um háls hans. Síðan var Nikulás klæddur í aðskorinn kjól. Meira að segja vinur hans, ljós- myndarinn Bill Crossan, bar ekki kennsl á hann. „Ég tók myndir af honum og tók viðtal við hann grun- laus um hver væri bak við gervið. Ég er gáttaður," sagði Crossan í viðtali við blaðamann dagblaðsins Daily Mirror. Fegurðarkonungurinn prýddi forsíðu blaðsins. Myndin segir frá tveimur jesúíta- prestum (annar leikinn af Robert de Niro) og gerist í Rómönsku Ameríku á nítjándu öld. Fjallað er um þrælahald, rómönsk-katólsku kirkjuna og ánauð indjána undir ægistjórn spánskra og portúgalska nýlenduherra. Kvikmyndaskriffínnar hafa margir gagnrýnt að mynd Joffes skuli hafa orðið fyrir valinu. Hún sé reyndar slétt og felld og hnökra- laus, en dómendur hafí augljóslega ekki þorað að taka áhættu og fara ótroðnar slóðir. Bandaríski leikstjórinn Sydney Pollack, sem var forseti dómnefndar á hátíðinni, afhenti Joffe verðlaun- in. Þetta er öðru sinni sem Joffe hlýtur viðurkenningu fyrir kvik- mynd. 1985 hlaut mynd hans „Kill- ing Fields" (vígvellir) þrenn óskars- verðlaun. Bandarílq'amaðurinn Martin Scorcese var útnefndur besti leik- stjóri fyrir mynd sína „After Ho- urs“. Gamanmynd um mann, sem lendir í ýmsum ævintýrum og verð- ur fyrir skakkaföllum á einni nóttu á Manhattan eyju í New York. Gengið var þvert á hefðir þegar Noregur: Fyrrum ráðherra játar á sig falsanir og fjárdrátt Osló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. ASTRID Gjertsen, sem var ráðherra í stjóm Káre Willoch, hefur játað, að hún hafi falsað reikninga og þannið dregið sér 32.000 n.kr. (ríflega 180.000 ísl. kr.) af opinbem fé. Misferlið átti sér stað öli fjögur árin, sem hún sat I ríkisstjón. Frétt þessari laust eins og eld- ismönnunum frá ríkisendurskoð- ingu niður í norskt samfélag á mánudagskvöld. Astrid Gjertsen var mjög vinsæll stjómmálamað- ur, bæði meðan hún átti sæti í minnihlutastjóm Hægriflokksins og í þriggja flokka stjóminni, sem nýlega fór frá völdum. Hún dró sig út úr ríkisstjóminni aðeins nokkrum vikum áður en Káre Willoch baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Opinberlega var sagt, að hún þjáðist af ofþreytu ogyrði að taka sér hvfld um skeið. Þriðjudaginn 15. aprfl sl. gengu tveir embættismenn frá norsku ríkisendurskoðuninni á fund Astrid Gjertsen, sem þá gegndi starfi neytendamálaráðherra. Þeir lögðu fyrir hana reikninga, sem hún hafði fengið greidda, og kváð- ust hafa grunsemdir um, að hún hefði falsað þá. Embættismenn- imir höfðu farið yfír flölda reikn- inga og komist að raun um, að hún hefði fengið greiddar um 32.000 n. króna umfram það, sem henni bar. Gjertsen játaði sekt sína þegar í stað; fyrst frammi fyrir embætt- uninni og aftur seinna um daginn, er hún gekk á fund Káre Willoch forsætisráðherra og afhenti hon- um lausnarbeiðni sína. Þá féll hún algjörlega saman og var lögð inn á sjúkrahús. Gjertsen hefur ekki verið ákærð. Willoch bað ríkisendur- skoðunina að taka afstöðu til þess, hvort höfða bæri mál á hendur henni. Það mat liggur ekki fyrir enn, en er væntanlegt innan fárra daga. Misferli Astrid Gjertsen komst upp við úrtakskönnun ríkisendur- skoðunarinnar, þar sem athygl- inni var beint að ferðareikningum þingmanna og ráðherra. Við rann- sóknina fundust fyrmefndir reikningar og þóttu ekki trúverð- ugir. Gjertsen hafði ekki bfl til umráða, þótt hún ætti sæti í ríkis- stjóminni. Það hafði í för með sér, að hún tók oftlega leigubfla. Við það var ekkert að athuga, en sýnt þótti, að allmargir reikningar frá henni þar að lútandi höfðu verið falsaðir. Viðvaningslegur bragur var á Astríd Gjertsen verkinu. Upphæð á reikningi fyrir leigubfl, sem kostað hafði 30 krónur, hafði verið breytt í 80 krónur, er reikningurinn var lagð- ur fram. Ráðherrann hafði þannig breytt tölunni 3 í 8. Þegar hún keypti tvö dagblöð á samtals 8 krónur, hafði hún breytt reikn- ingsupphæðinni í 18 krónur. Fjárdrátturinn hafði viðgengist öll fjögur árin, sem Gjertsen átti sæti í ríkisstjóm, en náði hámarki 1984 og 1985. I fyrra dró hún sér um 14.000 n. kr. (um 80.000 ísl. kr.). Káre Willoch, fyrrum forsætis- ráðherra, sagði í viðtali á mánu- dagskvöld, að það væri persónu- legur harmleikur, að Gjertsen skyldi hafa látið leiðast út í við- vaningslega fölsun fyrir svo lítinn ávinning. Hann kvaðst vona, að þetta yrði ekki til þess, að trú almennings á stjómmálamönnum biði hnekki. Vitað er, að Gjertsen er gift manni, sem er 12 árum eldri en hún og fatlaður frá því í stríðinu, auk þess sem hann er ofdrykkju- maður. Gjertsen hefur farið eins oft og hún hefur við komið til eiginmanns síns, sem dvelst í Tvedestrand í Suður-Noregi - til þess að annast um hann. Þetta hefur haft í för með sér mikið álag fyrir hana og e.t.v. átt þátt í, að freistingin bar hana ofurliði. -Falsanimar eru svo viðvan- ingslega af hendi leystar, að þær koma manni fyrir sjónir eins og hróp á hjálp, segja vinir Gjertsen. Þeir fullyiða, að erfíðar §öl- skylduástaeður hafí lagst þungt á hana. Gjertsen var á sjúkrahúsi á mánudagskvöld. Hún hafði áður dvalist á heimili sínu í nokkra daga, en vinir hennar fóru með hana á sjúkrahús, þegar það frétt- ist, að málið mundi verða gert opinbert. kom að leikurum og voru tvenn verðlaun veitt fyrir leik karls annars vegar og konu hins vegar. Bob Hoskins hlaut verðlaun fyrir leik í „Monu Lisu" eftir Neil Jordan og Frakkinn Michel Blanc var heiðrað- ur fyrir leik í „Tenue de Soiree" (kvöldklæðnaður) eftir Bertrand Blier. Vestur-þýska leikkonan Barbara Sukowa var verðlaunuð fyrir leik í mynd Margarethe von Trotta um Rósu Luxembourg og hin brasilíska Femanda Torres fékk verðlaun fyrir leik í myndinni „Eu Sei Que Vou Te Amar" (talaðu við mig um ást) eftir Amaldo Jabor. Andre Tarkovsky fékk sérstök Grand Prix verðlaun fyrir myndina „Fómin“. Tarkovsky hlaut sömu viðurkenningu fyrir mynd sína „Nostalghia" á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrir tveimur ámm. „Fóm- in“ var tekin í Svíþjóð og leika í henni Susan Fleetwood, Erland Josephson og Guðrún Gísladóttir. Hún Ijallar um fjölskyldu, sem lifír einangruðu lífí á strönd Svíþjóðar. Sven Nykvist stjómaði kvik- myndatökuvélunum í „Fóminni" og hlaut hann sérstaka viðurkenningu fyrir listrænt framlag sitt. Veður víða um heim Læg&t 1 X Akureyri 12 skýjað Amsterdam 12 18 skýjað Aþena 14 29 helðskfrt Barcelona 23 alskýjað Berlín 13 23 heiðskfrt Brussel 10 23 helðskfrt Chicago 9 13 skýjað Dublin 9 17 skýjað Feneyjar 26 helðskfrt Frankfurt 14 19 rigning Genf 16 25 heiðskfrt Helslnki 10 16 skýjað Hong Kong 25 28 skýjað Jerúsalem 14 26 skýjað Kaupmannah. 9 17 heiðskírt Llssabon 13 23 heiðskírt London 13 20 rigning LosAngeles 18 30 skýjað Lúxemborg 20 mlstur Malaga 24 mistur Mallorca 29 alskýjað Miami 24 27 skýjað Montreal 11 13 skýjað Moskva 8 19 skýjað NewYork 22 30 skýjað Osló 7 19 heiðskírt Parfs 16 22 skýjað Peking 13 28 heiðskfrt Reykjavfk 7 úrk.fgr. RfódeJaneiro 19 32 skýjað Rómaborg 12 32 hoiðskírt Stokkhólmur 13 19 helðskfrt Sydney 13 20 skýjað Tókýó 16 21 rigning Vfnarborg 14 24 skýjað Þórshöfn 8 súld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.