Morgunblaðið - 21.05.1986, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
37
Morgunblaðið/Emilía
DÆLUR
úr ryðfríu stáli
• 1 og 3ja fasa.
• Til stýringar á
vatnsrennsli.
• Einstök gæöi,
góð ending og
fágaö útlit.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLJUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Fiskiðnaðarskólinn:
Homsteinn lagður að
nýju verknámshúsi
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra og Sigurður Haraldsson
skólastjóri Fiskiðnaðarskólans.
Fiskiðnaðarskólanum í Hafn-
arfirði var slitið sl. föstudag-.
Jafnframt lagði Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra
hornstein að nýrri og glæsilegri
byggingu fyrir verknám skólans.
Skólinn verður 15 ára á þessu
ári og hefur hann útskrifað 220
fiskiðnaðarmenn og fjórðungur
þeirra hefur auk þess lokið fisk-
tæknanámi.
Nemendur skólans hafa verið
eftirsóttir til starfa í fiskiðnaðinum
segir í frétt frá skólanum og starfa
þeir flestir sem verkstjórar eða
eftirlitsmenn.
Skólinn hefur frá upphafí verið
í leiguhúsnæði, fyrst í Reykjavík
og síðan í Hafnarfiði.
í frétt frá skólanum segir m.a.
„Fyrst var farið að huga að
byggingamálum skólans árið 1978
og verkfræðingur var þá fenginn
til að gera frumtillögur. Litlar
undirtektir fengust þá en þó var
heimilað að athuga kaup á eldra
húsnæði. Ýmsir möguleikar voru
kannaðir, en enginn reyndist hent-
ugur.
Þá var það fjárveitinganefnd
Alþingis sem tók af skarið haustið
1980 og ákvað að byggt skyldi nýtt
hús fyrir skólann í Hafnarfirði og
ráðstafaði hún nokkru fé í því
sambandi.
Bygginganefnd var þá skipuð
(febr. 1981) og lagði hún fram til-
lögur sínar í júlímánuði 1981, þar
sem lagt var til að hefja, sem fyrst,
byggingu mannvirkja fyrir verknám
Fiskvinnsluskólans við Hvaleyrar-
braut í Hafnarfirði.
í jan. 1982 var arkitekt ráðinn
til verksins, Óli G.H. Þórðarson, og
síðar aðrir hönnuðir.
Útoðsgögn voru tilbúin í maí
1983 og var þá vænst að bygging
hússins yrði heimiluð og útboð
gæti farið fram. Svo var þó ekki.
Nú þurfti að biða í tvö löng ár, en
að lokum kom grænt ljós, og Inn-
kaupastofnun ríkisins gat boðið
verkið út í maí 1985.
Það sem byggja átti var súlulaus
salur, 55 metra Iangur og 24 metra
breiður, með um 5 metra lofthæð.
Við hlið hans kemur þjónusturými,
6 metra breitt, að hluta til á tveimur
hæðum. í salnum sjálfum mun
verklega kennslan fara fram, t.d. í
frystingu, söltun og síldverkun.
Innréttingum verður þannig fyrir-
komið að auðvelt verði að breyta
fyrirkomulagi eftir þörfum og
breyttum viðhorfum. Ötveggir og
þak er úr forsteyptum einingum.
Alls verur rúmmáJ hússins tæpir
10.000 m8.
Útboðið náði til þess áfanga að
fullgera verknámshúsið að utan og
ganga frá afmörkuðum hluta lóðar-
innar. Sjö tilboð bárust og það
lægsta kom frá Hagvirki hf. að
upphæð kr. 26.250.000. Þessu til-
boði var tekið og hófust fram-
kvæmdir þann 27. júlí 1985. Verk-
inu skal lokið 1. sept. í haust.
Húsaleigusamningur við Hval-
eyri hf., rennur út í febr. næsta
vetur. Þar er um að ræða þá aðstöðu
sem skólinn hefur haft fyrir kennslu
í frystingu frá því hann fluttist til
Hafnarfjarðar. Þessi samningur
verður ekki endumýjaður og verður
því lögð áhersla á að geta tekið
hluta nýja hússins í notkun einmitt
um líkt leyti og skólinn þarf að
flytja úr húsi Hvaleyrar hf.“
JO
FÆRIBANDA-
M0T0RAR
• Lokaðir,olíu-
kældir
og sjálfsmyrj-
andi
• Vatnsþétting-
IP 66
• Fyllsta gang-
öryggi,
lítið viðhald
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Frá bær strönd
með fjölbreyttu
skemm tanalífi
Nú er að verða síðasta tækifærið að tryggja sér ódýra
ferð til Rimini. Góðir gististaðir og vel staðsettir,
nálægt ströndinni og örstutt frá öllum helstu veit-
inga- og skemmtistöðum Rimini.
Verð frá kr. 24.1 OO.- Góð greiðslukjör.
Kvöld- og helgarsími 82489.
Laugavegi 28,101 Reykjavík.
Símar 29740—621740.