Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAl' 1986 45 Tveir drengir hætt komnir á Arnarnesvogi á sunnudag TVEIR drengir, 11 og 14 ára, voru hætt komnir er litlum plastbát þeirra hvolfdi á Arnarnesvogi á hvítasunnudag. Menn sem voru á skútu á svipuðum slóðum komu drengjunum til bjargar og voru þeir þá orðnir mjög kaldir, sérstaklega sá eldri. Þeim varð ekki meint af volkinu. Frændurnir Jóhannes Friðrik Matthíasson, 11 ára, og Sigurður Sævar Proppé, 14 ára, voru á leið í land eftir að hafa verið á siglingu um Arnamesvog í um eina og hálfa klukkustund þegar óhappið varð. „Bátnum hefur oft hvolft hjá mér áður,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið í gær, „líka í þessari ferð en við gátum alltaf snúið honum. En eftir að bóman brotnaði gátum við ekki rétt bátinn við. Við hefðum ekki getað siglt eftir það svo við viss- um að þetta var alveg vonlaust.“ - Hverniggerðistþetta? „Við ætluðum að lensa í land og það var mikið rok svo báturinn var kominn á mikla ferð. Þegar siglt er svona undan vindi er mikil hætta á að bátnum hvolfi og það gerðist einmitt þama og við það brotnaði bóman. Okkur var orðið mjög kalt, sérstaklega Sigga. Ég var í blautbúning, en hann var í ullarfötum. En blaut- búningurinn var hættur að halda á mér hita.“ - Hvað leið langur tími þangað til ykkur var bjargað? „Það liðu svona 15 til 20 mín- útur frá því að bóman brotnaði þangað til að skúta sem var þarna á siglingu kom til okkar. Við vomm mjög fegnir að sjá hana.“ Jóhannes sagði að þeir frænd- ur hefðu orðið mjög hræddir, en þrátt fyrir þetta ætlaði hann að halda áfram að sigla. „En það þarf að fara varlega. Mér líður bara vel núna, ég hef ekki einu sinni kvefast,“ sagði hann að lokum. „Ég hélt tvisvar sinnum að ég myndi deyja, en mér finnst eins og einhver fylgist með okkur,“ sagði Sigurður Sævar Proppé, frændi Jóhannesar. Sigurður sagði að það væri margt sem þeir frændur hefðu reynt saman og þetta væri eitt að því sem þeir hefðu upplifað saman. „Mér var orðið ofsalega kalt. Það var aðalvandamálið. Læknir- inn sagði að ég hafi verið nokkuð hætt kominn. Okkur var búið að vera kalt eiginlega allan tímann sem við vomm á siglingu. Þegar bátnum hvolfdi svo og bóman brotnaði lenti ég í sjónum og þurfti að synda. Þá gleypti ég mikinn sjó og hélt satt að segja W að ég væri að deyja. Svo komum við x>kkur fyrir ofan á bátnum þar sem hann var á hvolfi í sjónum. Ég hef aldrei fyrr gert mér grein fyrir að maður gæti dáið úr kulda. Okkur datt ekki í hug að svona gæti komið fyrir þegar við lögðum af stað. Ég varð mjög feginn þegar skútan kom,“ sagði Sigurður. Gódan daginn! < (/> & Veijiö tréverkið á fallegan og varanlegan hátt GORI 88 er notuð sem yfirborðsvörn og til viðhalds á viði sem áður hefur verið meðhöndlaður með olíuleysanlegri viðarvörn. GORI88 er sérlega vatnsfælin og mjög endingargóð. Nú er rétti tíminn til þess að huga að tréverkinu SAMBAND^Ð !B¥0(rIM*-LAVÖDUD GORI88 fæst í 26 mismunandi litum sem má blanda saman — þannig verða litamögu- leikarnir ótrúlega fjölbreyttir. GORI þekur einstaklega vel en felur þó ekki viðaræðarnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.