Morgunblaðið - 21.05.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986
4£
Gagnf ræðaskólinn á Hvolsvelli. Morgunbiaðið/Giis
Gagnfræðaskólanum á Hvols-
velli slitið í tuttugasta sinn
Hvolsvelli.
LAUGARDAGINN 10. maí var
Gagnfræðaskólanum á Hvolsvelli
slitið í tuttugasta sinn í Félags-
heimilinu Hvoli. Af því tilefni
bauð skólanefnd skólans til kaffi-
samsætis. Fjögur sveitarfélög
standa að Gagnfræðaskólanum:
Fljótshlíðarhreppur, A- og
V-Landeyjahreppar og Hvol-
hreppur.
Skólinn hóf starfsemi sína árið
1966, en þar sem ekkert skólahús-
næði var til fór kennslan fram í
Félagsheimilinu Hvoli, en í byrjun
árs 1968 flutti skólinn í nýtt hús-
næði þar sem hann hefur verið til
húsa síðan.
íþróttakennsla skólans fer þó enn
fram í Félagsheimilinu við mjög
slæma aðstæður þar sem ekkert
íþróttahús er til á staðanum. Sundið
Nemendur er hlutu verðlaun fyrir námsárangur.
Hjólaskoðun að
hefur verið kennt á að minnsta
kosti fjórum stöðum í gegnum árin:
Skógum, Laugalandi, Selfossi og
Hellu.
Miklar vonir eru bundnar við að
breyting verði næsta vetur Geit er
ráð fyrir að taka sundlaug í notkur.
í sumar sem verið hefur í byggingu
að undanförnu, þannig að sund-
kennsla skólans gæti hafist í haust
í nýrri sundlaug á Hvolsvelli. Skóla-
stjórar frá upphafi hafa verið: Trú-
mann Kristiansen, Markús Runólfs-
son, Þórður Jóhannsson og núver-
andi skólastjóri er Guðjón Arnason.
Auk skólastjóra voru kennarar 10
A liðnum vetri stunduðu 102
nemendur nám við skólann í þremur
bekkjardeildum 7., 8. og 9. bekk.
Gagnfræðaskólinn á Hvolsvelli
hefur verið átta mánaða skóli en
gert er ráð fyrir að næsta vetur
verði skólaárið lengt um hálfan
mánuð.
Foreldrafélag skólans veitir ár-
lega einum nemenda úr hvetjum
bekk viðurkenningu fyrir háttvísi,
framför í námi og ástundun. Minn-
ingarsjóður Margrétar Auðunsdótt-
ur veitir verðlaun fyrir góðan náms-
árangur í íslensku og skólinn veitir
verðlaun fyrir störf að félagsmál-
um. Það kom fram við verðlaunaaf-
hendinguna að valið hafði ekki verið
auðvelt, margir nemendur væru
þeirra verðugir, þó svo fáir hlytu.
Skólastjórinn afhenti hveijum og
einum nemenda úr 9. bekk, 28
talsins, blóm sem tákn þess stælta
og hressa úr merki vímulausrar
æsku.
Að tilmælum Fræðsluráðs Suður-
lands eyddu nemendur skólans ein-
um skóladegi í vor í Þórsmörk, þar
sem unnið var að gróðursetningu
og uppgræðslu og fleiru.
Landgræðsla ríkisins lagði til
áburð og grasfræ, Skógræktin
tijáplöntur. Austurleið lagði til og
sá um akstur nemenda.
Við skólaslitin tóku til máls auk
skólastjóra; Einar G. Magnússon fh.
foreldrafélagsins, formaður skóla-
nefndar, Matthías Péturson, og Jón
R. Hjálmarsson, fræðslustjóri Suð-
urlands. - Gíis
hefjast í Reykjavík
LÖGREGLAN mun framkvæma hjólaskoðun dagana 26., 27. og 28.
maí nk. við skóla borgarinnar.
Allt hjólreiðafólk er hvatt til að mæta með hjól sín til skoðunnar.
Skoðun verður framkvæmd sem hér segir:
26. maí
Fellaskóli — Vogaskóli 10.30-11.30
Hlíðaskóli — Seljaskóli 13.30-14.30
Austurbæjarskóli — Hvassaleitisskóli 15.00-16.00
27. maí
Álftamýrarskóli — Vesturbæjarskóli 10.30-11.30
Breiðagerðisskóli — Hólabrekkuskóli 13.30-14.30
Árbæjarskóli — Laugarnesskóli 15.00-16.00
28. maí
Breiðholtsskóli — Fossvogsskóli 10.30-11.30
Melaskóli — Foldaskóli 13.30-14.30
Langholtsskóli — Ölduselsskóli 15.00-16.00
Einstök gæðavara fyrir þá sem
eru að hugsa um línurnar
- minna en 5% fituinnihald!
gæða n m i/egnal
CAMELÍA DÖMUBINDITRYGGJA ÞÉR ÖRYGGI0G
VELLÍÐAN. ÞAU FÁST í 5 GERÐUM SEM HENTA
ÖLLUM KONUM VIÐ MISMUNANDITÆKIFÆRI.
ÞAU ERU SÉRSTAKLEGA RAKADRÆG 0G ÖRUGG,
ERTA EKKIHÚÐINA 0G ERU ÁN LLMEFNA.
CAMELIA DÖMUBINDI - ÞÍN VEGNA.
HALLDÓR JÓNSSON hf.
Dugguvogi 8-10 Stmi 686066
NÆTURBINDI
Sérstaklega rakadræg.
INNLEGG
með breiðum
límborða, - einstak-
lega rakadræg,
velta þór öryggi.
ÞUNN BINDI
- einstaklega fyrirferðar-
lltH.
CAMEUA 2000
Sérstaklega löguð fyrír
llkamann. Vatnsþétt með
plastþéttilagi.
MINI-BINDI
- hverju þindi
sérpakkað í plast.
Þægileg, örugg -
og fyrírferðaríftil.