Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1986 65 „Gengur ekki að svona sé kássast ofan í búskapinn“ — segir Páll Axel Halldórsson í Syðri-Gróf í Fióa sem er að ljúka við mjólkurkvótann en rúmir þrír mánuðir enn eftir af framleiðsluárinu Morgunblaðið/HBj Páll Axel Halldórsson í Syðri-Gróf var að valta nýrækt þegar blaða- mann bar að garði. „ÉG mótmæli því að til sé skömmtunarskrifstofa suður í Bændahöll sem hafi rétt til að úthluta mönnum misjafnlega mikilli mjólkurframleiðslu," sagði Páll Axel Halldórsson bóndi í Syðri-Gróf í Villinga- holtshreppi í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins. Páll Axel er einn af þeim bændum sem er að ljúka við að framleiða upp í úthlutaðan mjólkurkvóta, lýkur því í mánuðinum, þó enn sé rúm- lega fjórðungur framleiðsluárs- ins eftir. Óþolandi mismunun Páll Axel kvaðst hafa verið með 30-35 kýr í mörg ár en núna fengið úthlutað rúmlega 80 þúsund lítrum sem samsvaraði framleiðslu 20-23 kúa. Hann sagði að ástæðan fyrir slæmri útkomu sinni væri líklega sá að hann hefði verið með tiltölu- lega lítið jarðarbúmark. Hann hefði ekki talið ástæðu til að flýta sér við að fá aukningu en svo þegar hann hefði sótt um hana hefði hann fengið synjun. Þá hefðu viðmiðun- arárin vegna búmarksins verið rosaár á Suðurlandi. „Svonalagað er auðvitað von- laust,“ sagði Páll Axel og benti á dæmi um „oþolandi mismunun á milli manna". „Það er verið að draga menn í flokka og mismuna þeim með úthlutun. Við höfum allt- af getað snúið á veður og tíðarfar, en verra er við að eiga þegar höfuð- stöðvar bænda f Reykjavík eru að ráðskast með okkar mál.“ „Það gengur ekki að verið sé að kássast svona ofan í búskapinn hjá mönnum, án þess þeir sem það gera beri nokkra fjárhagslega ábyrgð. Annaðhvort er að stjóma landbúnaðarmálunum af ábyrgð eins og gert er í hinum ríkisrekna landbúnaði austantjaldslandanna eða sleppa því alveg að vera að kássast í þeim. Sá sem tekur fram- leiðslurétt af bónda verður auðvitað að sjá honum fyrir lífsframfæri. Það gengur aldrei að hræra saman sós- íalisma og einkaframtaki eins og gert er hér á íslandi," sagði Páll Axel. Ekki eins og inngjöf á dráttarvél Hann sagðist ekki hafa átt neitt val þegar tilkynning um mjólkurk- vótann barst í vetur. „Á miðjun vetri með skepnumar í fullum af- köstum er ekki gott við því að gera. Átti ég kannski að skera þriðjung- inn af beljunum, hvemig sem á stóð? Það er reginn misskilningur hjá ykkur þéttbýlismönnum og full- trúum okkar í Bændahöllinni að hægt sé að draga úr og auka fram- leiðsluna eins og með inngjöf á dráttarvél. Það er auðvitað hægt að draga úr fóðurgjöfínni og þurrka beljumar þannig upp og setja í hor. Nei það þýðir ekki, búskap verður að reka með fullum afköst- um, þannig að það fáist út úr hveij- um grip sem hægt er með þokka- lega góðu móti, eða leggja búskap- inn niður. Með þessum samdrætti hér á Suðurlandi er verið að setja okkur niður í hallærisárin enda má búast við að mjólkurkvótinn gangi af búskapnum hér dauðum og svo og svo margar jarðir fari í eyði. Ég get ekki séð að það sé ódýrara að framleiða mjólkina annars staðar og varla verður það ódýrara fyrir Reykvíkinga að sækja hana norður í land.“ Breytir engn þó mjólkin fari í skurðinn Páll Axel sagðist ekki vera búinn að átta sig á því hvað hann gerði þegar kvótinn væri endanlega bú- inn. „Ég get ekki sagt til um það á þessu stigi hvað ég geri. Mér skilst að þeir ætli að greiða eitthvað smáræði fyrir þessa mjólk. En ég veit að það er vonlaus staða að þurfa að reka bú án tekna í þijá mánuði svo ég verð að fara að gera mér grein fyrir því hvort ég á að halda áfram að hokra í búskap sem maður ræður ekki sjálfur. Ég get ekki séð að það breyti neinu þó að ég láti mjólkina renna út í skurð, en það gæti kannski haft einhver áhrif ef allir sem sem eins er ástatt fyrir taka sig saman. Því auðvitað þarf að sprengja þetta kvótakerfí, þetta getur ekki gengið svona. Allir verða að sitja við sama borð og ef nauðsynlegt er að setja hömlur á framleiðsluna verður að gera það með öðrum hætti. Það er hins vegar ekki við því að búast að samstaða náist um aðgerðir því margir fljóta ofaná, menn sem eru búnir að koma hlutunum þannig fyrir að þeir eru gulltryggðir, og eru þar af leiðandi ekki tilbúnir til aðgerða. Þetta er breyting frá því sem verið hefur því alltaf hefur verið góð samstaða í bændastéttinni þegar á hefur reynt. Ég get nefnt það sem dæmi að á fyrstu búskap- arárum mínum var innviktunar- gjaldi á mjólk mótmælt svo kröftug- lega að það var afnumið. Þá var góð samstaða - en innviktunargjald- ið var líka lagt á alla en ekki suma, sá er munurinn. Það er skuggaleg aðstaða sem við erum í þessir karlar úti í sveit. Við erum bundnir í sveitinni og getum ekki kallað á lögfræðinga til að útrétta fyrir okkur, þó það standi skýrum stöfum í stjómar- skránni að ekki megi leggja hömlur á atvinnufrelsi manna,“ sagði Páll Axel Halldórsson. ^1814^ HUTSCHENREUTHER © DE PARIS MAXIM’S sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN og handbragð HUTSCHENREUTHER, sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni. MAXIM'S hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönpun og einstaka framleiðslu. Þess vegna hefur SILFURBÚÐIN valið MAXIM'S frá HUTSCHENREUTHER sem postulín fyrir þá vandlátu. SILFURBUÐIN LAUGAVEG 55 SÍMI 11066
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.