Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 21.05.1986, Qupperneq 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1986 MorgunbhM/V«Mhnr Krtstiiimon Hart var barist í flestum greinum kappreiða og hér koma hnífjöfn í mark í 350 metra stökki frá hœgri talið Spóla, knapi Erlingur Erlingsson, Úi, knapi Jón Ólafur Jóhannesson, Lótus, knapi Róbert Jónsson, og Tvistur, knapi Anna Dóra Markúsdóttir. Hvítasunnumót Fáks: Glæstir gæðingar oggóðirtímar Sigurvegari i yngri flokki unglinga, Róbert Pedersen, á hinum glæsUega Stelk frá Traðarholti, við hlið hans stendur formaður Fáks, Birgir Gunnarsson. Sölvi frá Glæsibæ vann það einstæða afrek að vinna farandbikar þann sem veittur er efsta hesti i B-flokki gæðinga tíl eignar, knapi er Gunnar Amarsson. Að sitja í þægUegri áhorfenda- brekku, rýóta veðurblíðunnar um leið og fylgst er með keppni giæstra gæðinga og getumikilla kappreiðahross er einn af há- punktum hestamennskunnar. Á Hvftasunnumóti Fáks »»m helgina þjálpaðist allt að til að gera þennan árlega viðburð eftir- minnUegri en fyrri mót félagsins. Mótið hófst á fimmtudagskvöld með dómum á B-flokksgæðing- um, síðan var haldið áfram föstu- dagskvöld með dómum í A-flokki. Á laugardag spreyttu unglingarnir sig og haldin var töltkeppni. Síðast á dagskrá laugardagsins voru svo undan- rásir í stökkgreinum og báðir sprettir í 300 metra brokki og 150 metra skeiði. Á mánudag annan i hvítasunnu var svo há- punktur mótsins með úrslitum í gæðingakeppni, verðlaunaaf- hendingu og úrslitum í kappreið- um. Islandsmet öllum áóvart Heldur var meira lagt í þetta mót en fyrri mót félagsins og má þar nefna að nú var boðið upp á úrslit í gæðingakeppni, keppni unglinga og töltkeppni. Veðurguð- imir gengu að þessu sinni í lið með Fáksmönnum eftir að hafa sýnt þeim fálæti á undanfomum ámm þegar þessi mót hafa verið haldin. En af mörgu góðu sem þama gerð- ist ber hæst nýtt íslandsmet Leists Fulitrúar Fáks i A-flokki gæðinga á landsmótinu i sumar frá hægri talið, sigurvegarinn Sókron og Hreggviður, Heljar og Albert, Ljúfur og Ragnar, Smári og Hafliði, Gormur og Sigurbjörn, Djákni og Ragnar og Glanni Ómar og Kristján. frá Keldudal í 250 metra skeiði sem bætti núgildandi íslandsmet um eitt sekúndubrot. Átti enginn von á að þetta myndi gerast því mjög fátítt er að íslandsmet séu bætt í upphafi keppnistímabilsins. Knapi á Leist var nú sem áður Sigurbjöm Bárðar- son sem nú er að hefja sitt 20. keppnistímabil í kappreiðum. Er það óneitanlega skemmtilegt fyrir Sigurbjöm að ná þessum góða árangri á þessum tímamótum. Fimm_ hross náðu tíma undir 23,0 sek. í öðrum greinum kappreiða náðist einnig góður tími og má þar nefna árangur Neista frá Hraunbæ í 300 metra brokki 32,6 sek. Ekki er ósennilegt að Neisti eigi eftir að gera harða hrfð að íslandsmeti Fengs frá Ysta-Hvammi sem er 31,0 sek. í 350 metra stökki sigraði Spóla frá Máskeldu á 24,3 sek. en hún mætir nú leiks eftir árs frí vegna folaldseignar og í 250 metra stökki sigraði óþekkt hiyssa, Gas- ella, á 17,9 sek. sem er ekki amaleg byijun hjá ungu hrossi. Reyndar hljóp önnur óþekkt hiyssa, Þota, á sama tfma en var dæmd sjónarmun á eftir. Sölvi vann bikarinn til eignar Jafnframt því sem þama var keppt um hin venjulegu verðlaun í gæðinga- og unglingakeppni var þetta úrtak Fáks fyrir Landsmótið f sumar en Fákur sendir 7 hesta í hveijum flokki. Auk þess voru vald- ir þrír varahestar fyrir hvem flokk. Hleypti þetta meiri spennu í keppn- ina og hefúr vafalaust ýtt undir þátttöku. í B-flokk voru 54 skráðir til leiks, 43 í A-flokki, 24 í yngri flokk unglinga og 18 í eldri flokk. Mæddi mkið á dómumm í gæðinga- keppninni og mátti t.d. ekki tæpara standa með að tækist að ljúka dóm- um f B-flokki gæðinga fyrir myrkur. Þrátt fyrir mikið álag á dómumm í forkeppninni kom ekki fram í umræðum manna eftir að dómum lauk að misræmi hafi verið mikið. Hinsvegar töldu margir sem með fylgdust að einn dómari hafi sýnt áberandi hlutdrægni í dómum á B-flokksgæðingum. Ljótt er ef satt er. Það verður að teljast góður árangur að vinna bikar til eignar í gæðingakeppni hjá Fáki þar sem keppnin er jafii hörð og raun ber vitni um. En þessum ágæta árangri náði Sölvi frá Glæsibæ sem nú sigraði í þriðja skiptið í röð. Knapi á Sölva var nú sem áður Gunnar Amarsson. í A-flokki sigraði svo Sókron frá Sunnuhvoli en knapi á honum var Hreggviður Eyvindsson. Báðir þessir hestar vom einnig efstir eftir forkeppnina og héldu þeir sfnum sætum í úrslitunum. Smávægilegar breytingar urðu á röð þeirra sjö hesta sem vom í úr- slitum í báðum flokkum. í unglingaflokkunum var keppni einnig jöfn og skemmtileg. Var óneitanlega ánægjulegt að sjá hversu margir fylgdust með úrsiit- um unglinganna og var það athygli sem þeir svo sannarlega verðskuld- uð. Sérstaka athygli vakti sigurveg- arinn í yngri flokki Róbert Petersen sem keppti á stórglæsilegum hesti, Stelk frá Traðarholti. Framkvæmd til fyrirmyndar Það er einkum tvennt sem gerir útslagið með það hvort vel tekst til með mótahald eður ei. Annarsvegar er það veðrið og hinsvegar fram- kvæmd mótsins. Bæði þessi atriði vom í góðu lagi enda á þetta mót vafalaust eftir að ylja mörgum í endurminningunni. Innan Fáks er til urmull af góðum starfsmönnum með mikla rejmslu að baki. Gekk allt vel fyrir sig og var dagskráinni á síðasta degi mótsins t.d. lokið rúmlega fimm. Um aðstöðuna á Víðivöllum þarf ekki að fara mörg- um orðum því hún er í einu orði sagt frábær. En hér fara að síðustu úrslit í öllum greinum mótsins. í gæðinga- og unglingaflokki fara eins ogáður sagði sjö hestar í hveijum flokki en auk þeirra fylgja með þrír vara- hestar fyrir hvem flokk. Einkunnir eru úr forkeppni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.