Morgunblaðið - 11.06.1986, Blaðsíða 46
Ferðir og ferðalög
Guðjón, strákurinn sem þið
kynntust á síðustu bamasiðu
er að fara í sumarfrí. Hann ætlar
að ferðast með fjölskyldu sinni
innanlands í sumar. Guðjón er búinn
að skoða íslandskortið vel og vand-
lega. Hann hefur fundið átta kaup-
tún og kaupstaði sem hann langar
að heimsækja.
Þessir staðir eru merktir inná
kortið með tölustöfum frá 1 til 8.
Þeir liggja út um allt land, svo ekki
er víst að fjölskyldan vilji koma við
á öllum þessum stöðum. í stafagát-
unni héma við hliðina getur þú
fundið út einn stað sem þau vildu
öll fara til. Hann er merktur í stafa-
þrautinni með tölunni 9. Hann er
ekki merktur á kortið. Ef þú fyllir
vel út heitin á hinum stöðunum þá
getur þú lesið stafina sem verða f
röðinni merktri 9 og fundið út heitið
á staðnum sem Guðjón og fólkið
hans ætlaði örugglega að heim-
sækja í fríinu.
Sendu okkur svarið um leið og
þú svarar myndagátunni.
Fylltu út í stafaþrautinni heitin á
kaupstöðunum og kauptúnunum sem
Guðjón vill heimsækja. Hvað verður
þá eftir í reit 9?
Jón Gunnar Gunnarsson
Myndagátan 5
Enn á ný bámst mörg svör við myndagátunni. Allir sem sendu
inn svör höfðu rétt svar. Á myndinni var tala. Rétta svarið
sem dregið var úr bunkanum átti Halldóra Hálfdánardóttir, Amar-
tanga 5, Mosfellssveit.
Margir hafa talað um að myndagátan væri of létt. Núna ætlum
við að bæta úr því. Myndin í dag er örugglega erfíð fyrir marga.
Reynið samt að fínna svarið og sendið okkur línu. Heimilisfangið
er:
Bamasíðan,
Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reykjavík.
Sumar
og sól!
Hver árstími er skemmtilegur
og hefur eitthvað skemmti-
legt að bjóða uppá. Sumarið er
tími fría. Margir ferðast í fríinu
sfnu. Sumir fara til útlanda en
aðrir ferðast innanlands. I ferða-
lögum eru alls konar farartæki
notuð, flugvélar, bílar, bæði stórir
og smáir, bátar og skip, jám-
brautalestir að ógleymdum hest-
verða að fínna sér eitthvað annað
að gera á sumrin, margir fara á
sundnámskeið, aðrir eru með í
skólagörðunum og rækta græn-
meti. Sumarbúðir eru víða á
landinu og margir fá að fara viku
eða hálfan mánuð í sumarbúðir.
Ymis íþrótta- og leikjanámskeið
unum.
Á sumrin er oftast gott veður
og þess vegna geta allir verið
mikið úti. Böm sem búa í sveitum
fá oft að vera með í skepnuhirð-
ingu og heyskap og fara í útreiða-
túra. Borgar- og bæjarbömin
em lfka vinsæl. Margir sem eru
aðeins eldri reyna að fá sér vinnu
og sumir fá það t.d. við að passa
yngri böm eða selja blöð. Á næstu
bamasmíðum ætlum við að kynn-
ast nokkru sem böm eru að fást
við í sumar.
Vinir frá mörgnm löndum
Yngsti viðmælandi okkar á
bamasfðunni til þessa er 6
ára og heitir Jón Gunnar Gunnars-
son. Fyrsta spumingin til Jóns
Gunnars er: Hvar áttu heima?
— í uppsölum í Svíþjóð.
En þú ert íslenskur, hvers
vegna áttu þá ekki heima á ís-
landi?
— Pabbi og mamma er að læra í
háskólanum og ég fylgi þeim.
Hvað gerir þú á meðan pabbi þinn
og mamma eru í skólanum?
— Égferá„dagis“.
Hvað er „dagis"?
— Það er bamaheimilið mitt.
Það er í garðinum hjá húsinu sem
við eigum heima í. Ég get verið
þar allan daginn.
Hefurðu með þér nesti?
— Nei, við fáum mat þar.
Hvað em mörg böm á heimil-
inu?
— Við eram fímmtán.
Hvað heita vinir þínir?
—Einn heitir Peter og er frá
Búlgaríu. Hann er 6 ára. Jóhann
og Gústaf era báðir 7 ára og era
sænskir. Svo á ég líka eina litla
vinkonu frá Þýskalandi. Hún er
bara tveggja ára og heitir Frið-
rikka.
Hvað gerir þið á bamaheimil-
inu?
— Við leikum okkur, teiknum
og litum. Þar era líka stórir púðar
sem við getum byggt úr. Um
daginn byggðum við geimskip.
Stundum föram við eitthvað öll
saman. Einu sinni fóram við á
náttúragripasafn. Við sáum elg,
uglu og öm. Þau vora öll upp-
stoppuð. Við fóram líka niður á
járnbrautarstöð með mömmu
einnar stelpunnar.
Þú ert orðinn 6 ára, fara krakk-
ar í Svíþjóð ekki í sexára bekk?
— Nei við byrjum 7 ára í skólan-
um. Ég hlakka til að byija í skól-
anum næsta vetur. Ég kann að
lesa og svolítið að skrifa. Við
gemm ýmis verkefni á dagheimil-
inu. Það er það skemmtilegasta
sem ég geri þar.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki
á dagheimilinu?
— Ég leik mér heima. Spila
fshokkíspil við pabba. Á laugar-
dögum baka ég oft með mömmu.
Síðast bökuðum við snúða. Svo
horfí ég á sjónvarpið.
Hvað horfirðu á í sjónvarpinu?
— Ég horfí mest á bamaefni
og íþróttir.
Núna ertu kominn heim til ís-
lands.
— Já, við komum hingað á
sumrin. Það er gaman að hitta
afa og ömmur. Svo á ég líka
frændur, frænkur og vini.
Hvað ætlar þú að gera héma
í sumar?
— Leika mér og svo föram við
kannski í ferðalag.
Hér kveðjum við Jón Gunnar.
Það er alltaf gaman þegar náms-
menn erlendis flykkjast heim í
fríum hvort sem það era jól eða
sumar. Bömin sem fylgja þessum
námsmönnum á ferðalögum víða
um heim alast upp í mjög alþjóð-
legu umhverfí. Við vonum að Jón
Gunnar og önnur námsmanna-
böm eigi eftir að eiga gott sumar
hér á landi.
Heilann í bleyti
Héma er gáta. Þú mátt hugsa þig um í fímm sekúndur áður
en þú svarar.
Fyrir nokkru fór Jón út á sjó að físka. Hann beið lengi án þess
að verða var, svo að hann ákvað að festa færið við bátinn, fá sér
af nestinu sínu og lesa svo restina af bókinni sem hann hafði með
sér.
Færið var nákvæmlega fjögurra metra langt, og var helmingur
þess undir yfirborði sjávarins. Meðan Jón las steig vatnið. Hann
las í þijár klukkustundir, og vatnið hækkaði að jafnaði um níu
sentimetra á klukkustund.
Hve margir sentimetrar af færinu vora undir yfírborðinu þegar
hann var búinn með bókina. j.