Morgunblaðið - 25.06.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
f Mexíkó
Imorgunþætti rásar 2 í fyrradag
var rætt við tvo sparkfræðinga
(þetta nýyrði er víst komið frá
Kristni R. Ólafssyni sparkfræðingi
Ríkisútvarpsins á Spáni). Nú en
sparkfræðingamir voru þau Erla
Rafnsdóttir knattspymukona og
Guðrjón Amgrímsson blaðamaður.
Að sjálfsögðu bollalögðu þau Guð-
jón og Erla hvemig færi nú með
úrslitaleikinn. Heyrðist mér að þau
byggjust helst við því að Argentína
og Frakkland mættust í úrslita-
leiknum og var Erla jafnvel ekki
frá því að Belgía kæmist í úrsiit.
Já svo sannarlega get ég verið
sammála þessum ágætu gestum
morgunútvarps um að Frakkar eiga
skilið að sigra á þessu móti. Þannig
er ég persónulega þeirrar skoðunar
að helsti leikmaður Frakka, Michel
Platini, sé einhver sterkasti knatt-
spymumaður er sést hefír og vitna
ég þá til nákvæmra sendinga hans
á miðjunni, sendinga er nánast
fylgja þaulhugsuðu forriti. Það er
unun að fylgjast með þessum af-
burðamanni er virðist ætíð hafa
yfirsýn yfir gang leiksins, jafnvel á
úrslitastundu þegar aðrir leikmenn
leika af fingmm fram. Nú en þá
er þessum formála lokið og ég vík
að hlut sjónvarpsins í heimsmeist-
arakeppninni.
Hlutur sjónvarps
Ég hef rætt við ýmsa fótbolta-
áhugamenn um beinu útsending-
amar frá Mexíkó. Flestir em sam-
mála um að það sé miklu meiri
áhugi fyrir slíkum sendingum frá
heimsmeistarakeppninni en frá til
dæmis enskum leikjum_Þetta
er eins og svart og hvítt... sagði
ágætur knattspymuáhugamaður
við mig er þetta mál bar á góma ...
þegar enska knattspyman er sýnd
í beinni útsendingu er enginn í sjón-
varpsstofunni enda bíðum við eftir
styttum leikjum og úrdrættinum.
Nú en ekki em allir sammála um
að boltinn frá Mexíkó skuli ríkja á
skjánum. Þannig lenti ég í matar-
boði í fyrrakvöld þar sem aðeins
einn úr hópi gestanna varði beinu
útsendingamar og ekki má gleyma
lesendabréfum er birst hafa í Vel-
vakanda að undanfömu frá fólki
er stynur undan fótboltanum. Þann-
ig segir Valger^ur F. Baldursdóttir
í Velvakandabréfí frá 19. þessa
mánaðar: Er fótbolti kannski það
eina sem forráðamenn sjónvarpsins
hafa sjálfír áhuga á að sjá? Ég
hygg að fólk noti sjónvarp nú til
dags mestmegnis til afþreyingar að
loknum löngum vinnudegi og því
er það lágmarkskrafa að sjónvarpið
sýni myndir við þess hæfi. íslend-
ingar eiga ekki ótakmarkað fé og
því er fáránlegt að sóa svo miklu
af ráðstöfunarfé sjónvarpsins á
hverjum tíma í fótbolta - heims-
meistarakeppni eða ekki. Væri ekki
nær að nota þessa peninga til að
bæta þjónustu við sem flesta not-
endur frekar en einhvem lítinn hóp
manna og kvenna?
Vandratað er meðaihófíð en þó
held ég að flestir geti verið sammála
um að úrslitaleikina í heimsmeist-
arakeppninni verði að sýna beint
og þá verði annað dagskrárefni að
víkja. Dagskráin má hins vegar
ekki líða vegna veigaminni leikja.
Og að lokum þetta. Bjami stendur
sig prýðilega við að lýsa því sem
fram fer í Mexíkó en þó held ég
að sé kominn tími til að fleiri spark-
fræðingar fái að spreyta sig á
skjánum og koma þá í hugann
menn á borð við Kristin R. Ólafsson
og Hermann Gunnarsson, nú og
kannski fengist Ómar til að sveigja
Frúna frá heiðarbýlum og inn á
miðjan völl.
Ólafur M.
Jóhannesson
Þáttur úr sögu Reykjavíkur, „Hálfdanska bælið“, er á dagskrá rásar eitt í kvöld.
Þættir úr sögu Reykjavíkur:
Hálfdanska
bælið
■■■■ „Hálfdanska
0~| 30 bælið“ nefnist
"A annar þáttur í
þáttaröðinni úr sögu
Reykjavíkur sem er á dag-
skrá rásar eitt í kvöld.
Umsjónarmaður er Gerður
Róbertsdóttir. Þessi þáttur
flallar um tímabilið 1786
til 1840 í sögu borgarinnar.
Á þeim tíma réðu danskir
kaupmenn, og þó aðaliega
hálfdanskir fatorar þeirra,
lögum og lofum f bænum.
íslenskir embættis- og
menntamenn vildu ekki
búa þar og allflestir lands-
menn höfðu andúð á
Reykjavík. í hugum flestra
var bærinn hálfdanskt bæli
á þessu tfmabili. En smám
saman breyttist þetta við-
horf, tómthúsmönnum
fjölgaði í bænum, sjávarút-
vegur verður aðalatvinnu-
greinin og embættismenn
setjast þar að.
Hótel:
Hljóðvarp
— þáttur í samvinnu við hlustendur
Brúðkaupið
■§■■ Hljóð-varp er á
0020 dagskrá rásar
— eitt í kvöld,
Ævar Kjartansson sér um
þáttinn í samvinnu við
hlustendur. Þáttur þessi er
á dagskrá vikufega og er
þar gerð tilraun til að
skapa vettvang fyrir hlust-
endur að koma efni á fram-
færi í beinni útsendingu.
Geta hlustendur t.d. sent
þættinum efni á snældum.
Hugmyndin er sú að þar
geti verið um að ræða eins
konar hljóðpóst sem gæfí
kost á skoðanaskiptum,
auk þess sem hlustendur
eru hvattir til að senda frá-
sagnir og jafnvel stuttar
sögur og ljóð. Einnig er
hægt að mæta á staðinn
og viðra sínar skoðanir eða
taka lagið. Umsjónarmað-
ur hefur fastan símatíma á
mánudögum kl. 16—18 og
síminn er 22260.
■■■■ Brúðkaupið, 19.
0"| 05 þáttur banda-
^ A ríska fram-
haldsmyndaflokksins Hót-
el, er á dagskrá sjónvarps
í kvöld.
Brúðkaup á að fara
fram á St. Gregory og eru
það afkomendur auðugs
fólks sem ætla að ganga í
það heilaga. Þá gerast
óvæntir atburðir og allt
virðist ætla að fara út um
þúfur. Með aðalhlutverk
fara James' Brolin, Connie
Sellecca og Anne Baxter.
Brúðkaupið, 19. þáttur myndaflokksins Hótels,
dagskrá sjónvarps í kvöld.
er á
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
25. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttirá ensku.
8.00 Fréttir.
8.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og Vanda"
eftir J.M. Barrie. Heiðdís
Norðfjörð byrjar lestur þýð-
ingar SigríðarThorlacius.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna
10.00 Fréttir
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Guðmundur Sæ-
mundsson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Land og saga. Ragnar
Ágústsson sér um þáttinn.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Ýrr Bertelsdóttir og Guð-
mundurJónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. - Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Börn
og umhverfi þeirra. Umsjón:
Anna G. Magnúsdóttir og
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miödegissagan „Fölna
stjörnur" eftir Karl Bjarnhoí.
Kristmann Guðmundsson
þýddi. Arnhildur Jónsdóttir
' les (22).
14.30 Norðurlandanótur. Fær-
eyjar.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Suðurland.
Umsjón: Einar Kristjánsson,
Þorlákur Helgason og Ásta
R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Sfödegistónleikar
a. Hörpukonsert nr. 4 í
Es-dúr eftir Franz Bertini.
Annie Challan leikur með
Antinqua musica-kammer-
sveitinni; Marcel Couraud
stjórnar.
b. Sinfónía nr. 6 í A-dúr eftir
Joseph Haydn. Hljómsveit
Ríkisóperunnar í Vín leikur;
Max Goberman stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi: Kristín Halldórsdóttir.
Aðstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir
17.45 í loftinu. Umsjón Hall-
grímur Thorsteinsson og
Guðlaug María Bjarnadóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
lé.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 Sagan: „Sundrung á
Flambardssetrinu" eftir
K.M. Peyton. Silja Aðal-
steinsdóttir les þýöingu sina
(5). .
20.30 Ýmsar hliöar. Þáttur í
umsjá Bernharðar Guð-
mundssonar.
21.00 Islenskir einsöngvarar
og kórarsyngja.
21.30 Þættir úr sögu Reykja-
víkur: Annar þáttur: „Hálf-
danska bælið". Umsjón:
Geröur Róbertsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljóövarp. Ævar Kjart-
MIÐVIKUDAGUR
25. júní
09.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
son, Kolbrún Halldórsdóttir
SJÓNVARP
I
17.00 Úr myndabókinni - 8.
þáttur.
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni.
Doðabrá prinsessa, I
Klettagjá, Raggi ráðagóði,
Snúlli snigil! og Alli álfur,
Ugluspegill, Lúkas, Ali
Bongó og Alfa og Beta.
Umsjón: Agnes Johansen.
17.50 HM í knattspyrnu
- undanúrslit.
Bein útsending frá Mexíkó.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
MIÐVIKUDAGUR
25. júní
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Frá Listahátíð - Tónleik-
ar The New Music Consort
á Kjarvalsstöðum 7. júni sl.
Hljómsveitinni til aðstoðar
eru Halldór Haraldsson og
Gísli Magnússon píanóleik-
arar. Stjórnandi upptöku:
Elín Þóra Friðfinnsdóttir.
21.05 Hótel
19. Brúðkaupið.
Bandarískur myndaflokkur í
22 þáttum. Aöalhlutverk:
James Brolin, Connie
Sellecca og Anne Baxter.
Auöugt fólk ætlar að halda
brúökaup barna sinna á St.
Gregory. Óvæntir atburðir
setja strik í reikninginn og
allt virðist ætla að fara út
um þúfur.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.50 H M í knattspyrnu
- undanúrslit
Bein útsending frá Mexikó.
23.45 Fréttir í dagskrárlok.
ansson sér um þátt í sam-
vinnu við hlustendur.
23.10 Djassþáttur. — Jón Múli
Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
og Kristján Sigurjónsson.
Inn í þáttir fléttast u.þ.b.
fimmtán mínútna barnaefni
kl. 10.05 sem Guðríður
Haraldsdóttir annast.
12.00 Hlé
14.00 Kliöur
Þáttur í úmsjá Gunnars
Svanbergssonar og Sigurð-
ar Kristinssonar. (Frá Akur-
eyri.)
15.00 Núerlag
Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
16.00 Taktar
Stjórnandi: Heiöbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill
Erna Arnardóttir sér um tón-
listarþátt blandaöan spjalli
við gésti og hlustendur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar í þrjár
mínútur kl. 9.00, 10.00,
11.00, 15.00, 16.00 og
17.00.
SYÆÐISÚTYARP
REYKJAVÍK
17.03—18.15 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
—FM 90, 1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 HMz.