Morgunblaðið - 25.06.1986, Side 19

Morgunblaðið - 25.06.1986, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986 19 Hótel Geysir Morgunblaðið/Davíð Haukadalur: Hótel Geysir formlega opnað Laugarvatni. LAUGARDAGINN 21. júní var formleg opnun á nýju hóteli við Geysi í Haukadal. Hótelið er til húsa í byggingu sem er í senn gömul og glæný. Um er að ræða gamla íþróttaskólahúsið, þar sem veitingasala var á sumrin allt til ársins 1984. Húsinu hefur nú verið umbreytt gjörsamlega, meðal annars með viðbyggingu, og þar hefst veitingasala frá og með næstu helgi. tímans? Meðal mögúleika sem nefndir hafa verið er að bjóða upp á skíða- og vélsleðaferðir inn á hálendið á vetrum og að koma upp heilsuræktaraðstöðu við hótelið. Þessa viku verður unnið af kappi við að fullbúa eldhús hótelsins til að starfsemi geti hafist um næstu helgi. Unnið er að ytra frágangi hússins og verið er að gera upp gömlu sundlaugina á lóðinni. Davíð Már Sigurðsson hótelstjóri Sigurður Greipsson stofnaði íþróttaskóla sinn í Haukadal um 1930 (hann starfaði til 1970) og byggði íþróttahúsið sem um ræðir árið 1946. Sú bygging er stein- steypt og hin traustasta. Þar ráku þau hjónin, Sigurður og Sigrún Bjamadóttir, veitinga- og gististað, Hótel Geysi, á sumrin. I janúar 1985 skemmdist húsið nokkuð af eldi, og um sumarið eftir lést Sigr urður. Nýir eigendur, Már Sigurðsson og Sigríður Vilhjálmsdóttir, kona hans, hófust handa um endur- byggingu hússins í mars síðastliðn- um, og er nú að mestu lokið fyrsta áfanga hins nýja hótels. I þeim áfanga er húsnæði til veitingasölu en ný álma með gistirými verður byggð síðar. í millitíðinni verður gisting seld í sveftipokapláss í gömlu húsi á lóðinni. Steinveggir gamla íþróttahússins bera nýbygginguna uppi en nýir léttbyggðir veggir em þar fyrir utan og myndast þannig pláss fyrir borð við stóra útsýnisglugga þaðan sem sér yfir hverasvæðið norðan megin. Vegna þes hve hátt var til lofts í íþróttahúsinu reyndist unnt að hafa tvær hæðir í nýju byggingunni. Nú rúmast um það bil 300 gestir f mat — tvöfalt fleiri en áður. Nýjar innréttingar em að sjálf- sögðu í húsinu, og býsna óvenjuleg- ar. Þær em allar unnar í fum og sérkennilega útskomar. Hönnun og smíði innréttinga er verk Erlends Magnússonar í Hveragerði en arki- tekt hússins er Kristinn Sveinbjam- arson. Hönnuður umhverfís er Ein- ar Sæmundsen. Eins og kom fram í ræðu Gísla Einarssonar í Kjamholti, oddvita Tungnamanna, við opnunina, þá era tekjur íslendinga af ferðamanna- stöðunum Gullfossi og Geysi æði miklar. Heimamenn í Biskupstung- um vilja gjaman að þessar tekjur skili sér í meira mæli til byggðar- lagsins. Hótelrekstur sem þessi er vemleg lyftistöng fyrir atvinnulífið í héraðinu, og það em einkum konur í sveitinni sem fá atvinnu við veit- ingastörfin. Eigendur hins nýja hótels telja nauðsynlegt að fá gesti allan ársins hring til að reksturinn beri sig. Til að svo megi verða þarf nauðsynlega að fá ný gistiherbergi í gagnið sem fyrst. En hvað er hægt að gera til að laða að fólk utan ferðamanna- Frá vígsluhátíðinni á laugardaginn. Athugasemd frá Mjólk- urfélagi Reykjavíkur MORGUNBL AÐINU hef ur borist eftirfarandi athugasemd frá Mjólkurfélagi Reykjavíkur: „Laugardaginn 21. júní birtist frétt í Morgunblaðinu varðandi það að sænskt fyrirtæki hyggist hefja framleiðslu á fóðri til fískeldis o.fl. I fréttinni er sagt að þessi nýjung þ.e. framleiðsla fiskfóðurs muni heijast á næsta ári. Hinir mörgu viðskiptamenn Mjólkurfélags Reylqavíkur vita að í tvö ár hefír tölvustýrð fóðurblönd- unarstöð MR í Sundahöfn framleitt fóður fyrir eldisfísk, bæði lax og silung, við miklar vinsældir. Tilefni þessarar athugasemdar er niðurlag fréttarinnar þar sem segir að fískfóðurframleiðsla sé ekki hafín í landinu en sé á undir- búningsstigi." Eru þeir að fá 'ann Sverrir Kristinsson rennir fyrir lax sem ekki reyndist vera undir á Iðunni. Góð veiði í Laxá í Leir „Héðan er allt gott að frétta og veiðin mun betri heldur en í fyrra, alls um 135 laxar komnir á land á 5 stangir síðan að veiðin hófst 9. júní. Fyrsta daginn veidd- ust 12 laxar og mesta dagveiðin var 15. júní, 19 laxar. Svo hefur þetta farið niður í einn lax á dag, meðan gmggið var sem mest í vatnsveðrinu á dögunum," sagði Guðbjörg Greipsdóttir, ráðskona í veiðihúsinu við Laxá í Leirár- sveit. Guðbjörg sagði mest vera veitt í Laxfossi og þar í kring, lítið enn sem komið væri fyrir ofan hann og ekkert fyrir ofan efri brú. Mikill lax væri f ánni og af ölium stærðum, þeir stærstu 14 og 15 punda og síðan allt niður í smálax. „Það er mikil fluguveiði í bland við maðkveiðina og græn Frances hefur verið mjög vinsæl og marg- 1 ar aðrar flugur hafa gefið skot," bætti Guðbjörg við. Erlendir veiði- menn em nú í startholunum, þeim verður hleypt í ána 5. júlí og ættu að gera það gott. Frábær byrjun í Dölunum Geysigóð veiði var fyrstu þrjá dagana í Laxá f Dölum, veiðin hófst á föstudaginn og á hádegi mánudags höfðu 76 laxar komið á land á 6 stangir. Laxinn veiddist um alla á, en mest efst í henni og neðst. Stærsti laxinn var tæp 20 pund og auk þess veiddust fjór- ir 17 punda fiskar og margir upp undir það enda var meðalþunginn vel yfir 10 pundum og smálax sást varla í hrúgunni. í gærdag hafði bæst nokkuð við töluna, en mesti krafturinn hafði Qarað út eins og tíðum gerist. Talsvert er komið af laxi í Laxá og hann er að ganga af krafti. Bærileg byrjun í Flóku 14 laxar veiddust fyrsta daginn í Flóku í Borgarfírði og þykir það bara góð byijun og fylgir sögunni að víða hafí mátt sjá lax þó ein- göngu neðan Múlastaðafoss. Stærsti laxinn var 13 punda fískur sem Ingvar Ingvarsson á Múla- stöðum veiddi ofarlega í ánni. Þessi veiði fékkst á laugardaginn, en strax á öðmm degi dró úr veiðinni, næsti hópur fékk 4 laxa á 2 dögum, og má búast við reyt- ingi einum saman uns göngumar taka að herða á ný á venjulegum tíma. Dræmt í Korpu ... Veiðin hófst í Korpu á laugar- daginn og veiddust aðeins tveir laxar fyrsta daginn, sem þó er auðvitað betra en ekki neitt. Eitt- hvað hefur slitnað upp úr ánni í viðbót, en um gífurveiði er ekki að ræða. Svo bregðast kross- tré____ Gamla máltækið um brestinn í krosstrénu á við er fjallað er um Iðu í Amessýslu og Stóm Laxá í Hreppum. A þeim veiðistöðvum hófst gamanið á laugardaginn og er skemmst frá að segja að veiði var engin og varla líf að sjá. Telst til tfðinda að þessir staðir bregðist í „opnun“, sérstaklega þykir vera góð vpn að eiga fyrstu dagana á Iðu, svo ekki sé talað um efsta svæðið í Stóm Laxánni. En þetta brást sem sé að þessu sinni, en veiðimenn ættu samt ekki að örvænta, því frést hefur að veiði- menn á „Stólnum" hjá Selfossi hefðu verið að „fá’ann" á sama tíma, eina 12 físka fyrri daginn og eitthvað minna þann seinni. Var þetta vænn lax og nýgenginn, sjálfsagt á leið upp úr. Rokvænir Þingey- ingar... Fregnir berast af geysilega stómm löxum í Laxá í Aðaldal og ekki líður sá dagur, að ekki veiðist þar 18—22 punda lax og iðulega þó nokkrir dag hvem. Þá em menn sammála um að líkams- burðir Laxárlaxins nú og yfír- bragð sé með því besta sem um getur. Tveggja ára fískur úr sjó er nú 15—19 pund í stað 10—14 punda og menn bíða þess í ofvæni að sjá hvað 3ja ára fískurinn verður þungur. Laxinn virðist yfirleitt vera 20 prósent feitari úr hafínu en áður og 12—14 punda fískar þykja næstum litlir. Sem dæmi má nefna, að í gærmorgun komu menn með 9 laxa afla úr Æðarfossum og var meðalþung inn rúmlega 15 pund. Þá fylgir þessu einnig, að fískur sé kominn upp un* alla á og þessir vænu era ekki síður ofarlega, að minnsta kosti þrír 20 punda laxar hafa veiðst fyrir löndum Ámes og meðalþunginn er í stakasta lagi á Núpum og Kili. Farinn að veiðast í Mýrakvísl og Reykjadalsá Þá er farinn að veiðast lax í Mýrakvísl og Reykjadalsá, ekki margir enn sem komið er, enda í allra fyrsta lagi í þessum ám, en til tíðinda telst, að 20 punda fiskar hafa veiðst í báðum ánum. Góð byrjun I Álftá Veiði hófst í Álftá litlu á Mýmm á föstudaginn og veiddist einn lax fyrsta daginn, annar á laugardag inn, tveir á sunnudaginn og tveir til viðbótar á mánudaginn. Þetta hafa verið 5—14 punda fiskar og mál manna að meira sé gengið ána af laxi en venja sé til á þessum tíma, en Álftá hefur löngum verið „síðsumarsá", þótt það hafi verið að breytast ofurhægt síðustu sumrin. Fimm laxar höfðu veiðst á maðk, einn á flugu, Þingeying straumflugu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.