Morgunblaðið - 25.06.1986, Blaðsíða 23
Alnæmisráðstefnan 1 París
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986
23
Bandaríkjamaður
með alnæmi á
hástigi hlaut bata
París, AP.
BANDARÍSKUR alnæmissjúklmgur, sem hafði sjúkdóminn á hástígi,
hefur hlotíð bót í kjölfar meðferðar, þar sem tvíburabróðir hans
kom við sögu. Eftir 10 mánaða meðferð er líðan sjúklingsins góð,
að því er fram kom i fyrirlestri vísindamanns á alþjóðlegu alnæmis-
ráðstefnunni í París í gær.
„Þetta er enginn stórsigur,"
sagði dr. Anthony S. Fauci, sem
starfar við Bandarísku heilbrigðis-
stofnunina í Bethesda í Maryland,
í fyrirlestrinum á ráðstefnunni. „En
þegar hafðar eru í huga þær fram-
farir, sem hafa orðið í framleiðslu
á bóluefni gegn alnæmi, er ljóst,
að þama er um að ræða lítinn en
mikilvægan skerf til aukinnar þekk-
ingar á sjúkdómnum," sagði hann.
Búist er við, að á miðvikudaginn
kemur segi franskir vísindamenn
einnig góðar fréttir af beinmergs-
flutningi milli ættingja.
Dr. Fauki sagði, að Bandarílq'a-
maðurinn, sem um ræddi, hefði
verið einn þriggja alnæmissjúkl-
inga, sem gengist hefðu undir svip-
aða meðferð, þar sem beitt var
lyíjagjöf og beinmergsflutningi
milli eineggja tvíbura. LjrQagjöfin
hefði reynst árangurslaus, en bein-
mergsflutningurinn aðeins borið
árangur í einu af þremur tilfellum.
Að tíu mánuðum liðnum, er maður-
inn við góða heilsu og fullvinnandi.
Harður árekstur
Þrettán manns létu lífið i árekstri fjögurra btía í Berks-
hire á Engiandi sl. mánudagsmorgun. Hér er verið að
fjarlægja einn bílinn af slysstað.
Bandaríkin:
Haig í fram-
boð til forseta?
Washington, AP.
ALEXANDER HAIG, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hefur sagt að verið
getí að hann bjóði sig fram tíl
forseta í næstu forsetakosning-
um þar í landi.
Þetta kom fram sl. mánudag er
Haig veitti viðtöku sérstakri viður-
kenningu frá samtökum um alþjóð-
legar herfræðirannsóknir í Virginíu
í Bandaríkjunum. Haig, sem orðinn
er 61 árs gamall, er 4 stjömu hers-
höfðingi og hefur gengt ýmsum
trúnaðarstöðum þ.á m. verið yfir-
maður herafla Atlantshafsbanda-
lagsins í Evrópu og starfsmanna-
stjóri í Hvíta húsinu.
Grænland:
Eindæma dræm
steinbítsveiði
Kaupmannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
STEINBÍTSVEIÐI við Græniand hefur gengið hræmuiega það sem
af er þessu ári. Framleiðsla steinbítshrogna hefur verið miklu minni
en vinnslufyrirtækin reiknuðu með, bæði þau sem eru í einkaeign
og þau sem heimastjórnin rekur.
Ole Ramlau Hansen, forstjóri
stærstu fiskvinnslunnar á Græn-
landi, Godtháb Fiskeindustri, sagði
í viðtali við grænlenska útvarpið,
að fyrirtæki hans tæki venjulega á
móti um 100 tonnum af steinbíts-
hrognum á ári. A þessu ári hafa
því borist 5 tonn til vinnslu. Og
sömu sögu er að segja frá flestum
sjávarplássunum. Þar hefur aðeins
verið landað 16 tonnum af steinbíts-
hrognum samtals, þar af 13 tonnum
í bænum Manniitsoq (Sukkertopp:
en), sem er á vesturströndinni. í
meðalári berast um 300 tonn af
steinbítshrognum til verksmiðjanna
á vesturströndinni.
ORKUBANKINIXI
AUGLÝSIR
Byrjendanámskeið er að hefjast í Orkubankanum í Kung-
Fu laugardaginn 28. júní. Námskeiðið mun standa v'fir í
einn og hálfan mánuð. Æft er þrisvar í viku. Verð á nám-
skeiðin er aðeins 2.000 kr. og innifalið er í líkamsræktina
þrisvar í viku. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Friðrik P.
Ágústsson.
, Orkubankinn hefur upp á góða þjónustu að bjóða:
Vaxtarrækt, aeróbic, nudd, sólarium,
vatnsgufa, heilsubar.
ORKUBANKINN
Hraustur banki
Orkubankinn
Vatnsstíg 11,
sími 21720.