Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Sakleysið
uppmálað
Innocenti 990. Sakleysislegur og smekklegur smábill.
Suður i Mílanóborg á Ítalíu
er bangaður saman bíll nokkur
og nefnist þvi sakleysislega
nafni Innocenti. Nafngiftin
gæti gefið til kynna að honum
sé nú ekki beinlínis ætlaður
staður i þeim hluta markaðar-
ins semjgerir kröfur um afl og
hraða. Utlit bílsins er líka með
eindæmum sakleysislegt og
virðist helst eiga að höfða tU
þeirra kaupenda sem vilja bæta
litlu og vinalegu krútti við fjöl-
skylduna. En - er nú svo víst
að hann sé svo alsaklaus þessi?
Athugum málið.
Innocenti er framleiddur í
tveimur grunnútgáfum, bensín og
diesel. Síðan eru tilbrigði við
bensínstefið og þar skýtur upp
kollinum einn óþekktargemlingur:
Turbo! Gat nú verið! Fer þá mesti
blíðubragurinn af fjölskyldu þess-
ari þegar slíkir ólátabelgir gera
sig þar heimakomna, það gerðist
í vor að Turboinn bættist í hóp-
inn. Því miður hef ég ekki
upplýsingar um hann, aðrar en
þær að hann lítur út eins og hin-
ir og er í tæknilegu tilliti eins
uppbyggður.
Japanskt ætterni
Já, já, þeir eru líka hér. Dai-
hatsu leggur til vélbúnaðinn í
Innocenti-bflana. Vélin er 993
sm3 Daihatsu og skiptingin er frá
þeim líka. Vélin er 52 hestöfl,
þriggja strokka og getur fleygt
bflnum fram á 145 km hraða.
Hann er framdrifínn og með
fímmgíra kassa eða tveggja gíra
sjálfskiptingu (Daimatic). Ben-
síneyðsla er að jafnaði 6,8 lítrar
á hundraðinu. Diskahemlar eru
að framan og skálar að aftan og
sjálfstæð fjöðrun á hveiju hjóli.
Fimm manns komast fyrir eða,
ef aftursætin eru felld fram, tveir
og 990 1 af farangri.
Ég átti þess kost að skoða
nokkra svona bfla í vor og það
er sannast sagna að litli Inno-
centi kom á óvart. í fyrsta lagi
ber að nefna að frágangurinn á
öllu er einstaklega góður og plás-
sið ótrúlega gott í ekki stærri bfl.
(Hann er aðeins 3.375 m á lengd
og 1.52 m á breidd). Sætin eru
góð og mælaborð óvenjuvel búið
mælum. Bfllinn lítur í heild vel
út og sé verðið í lagi er hann all-
góður kostur fyrir þá sem vilja
lítinn og þó rúmgóðan bfl.
Innocenti er ekki enn fluttur
hingað til lands, að því er ég best
veit, en - eins og fyrr segir - ef
verðið er í lagi á hann ekki síður
erindi á okkar markað en aðrir í
þessum stærðarflokki, er jafnvel
betri kostur ef eitthvað er.
Hyundai-flotans
Stafnbúi
Nú eru Kóreumenn komnir í
hóp stærri bflaframleiðenda með
Hyundai-bílnum og geysast fram
á vígvöll samkeppninnar á heims-
markaðinum með fólksbflana í
broddi fylkingar og er þessi stafn-
búi þess flota. Stellar heitir hann
og hefur ekki minni afrek á sinni
metaskrá en að hafa tekið
kanadíska markaðinn með áhlaupi
í fyrra. Eins og myndin ber með
sér er Hyundai Stellar með hefð-
bundnu lagi, sæti eru fyrir fímm,
vélin er að framanverðu og drif
að aftan. Völ er um tvær gerðir
véla, 92 hestafla 1400 vél eða 100
hestafla 1600. Lykillinn að vel-
gengni Hyundai í Vesturheimi er
gamalkunnug uppskrift: Lágt
verð, vandaður bfll, gott útlit og
spameytin, aflmikil vél. Stellar á
sér minni bræður tvo, Pony og
Excel. Þá framleiða Hyundai-
verksmiðjumar suður-kóresku
einnig álitlegt úrval af vömbflum
og rútubflum.
Ekki hef ég enn haft spumir
af því að Hyundai-flotinn sé lagð-
ur í Íslandsvíking, en trúlegt þykir
mér að gott yrði þeim til fanga
hér á þessum síðustu bflasölutím-
um á Islandi.
PARTAR
Yatnsmálning á bíla
Hjá Volvo er nú verið að
þróa málningu sem byggir á
vatni sem aðaiuppistöðu, og
er þess að vænta að strax á
næsta ári verði silfursanseruð
slík málning notuð í fram-
leiðslunni. Þessi málning mun
bera nafnið Aquabase (vatns-
grunnur).
Moskvitsch
Nú mun nýr Moskvitsch
vera í burðarliðnum og mun
þar vera ámóta bylting í fram-
leiðslunni og varð hjá Lada
með tilkomu Samara.
IH selur mest
Intemational Harvester
hefur mesta markaðshlutdeild
vörubfla jrfir 16 tonn í Banda-
ríkjunum. Þeirra hlutur er
21,4%. í 7. sæti er Volvo með
8,8%, lítið eitt framar General
Motors, sem er í 8. sæti.
Arftaki Willys
Nú er nýi jeppinn frá Amer-
ican Motors kominn á fulla
ferð. Hann heitir Wrangler og
tekur við af CJ-5/CJ-7 sem
áður hét Willys. Sá fyrsti hing-
að til íslands er væntanlegur
nú þessa dagana.
Bens 4x4
Nú eru í gangi tilraunir hjá
Daimler/Bens verksmiðjunum
með Qórhjóladrif í fólksbflana
og eins og við er að búast úr
þeim herbúðum er ekki um
neitt venjulegt kerfi að ræða.
Þeir vilja hafa aldrif þegar á
þarf að halda, ekki annars, og
- bfllinn sér algjörlega sjálfur
um að tengja drifín þegar
beggja er þörf.
Rúllutertur
Heimglishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Rúllutertur eru fljótbakaðar,
þægilegar í meðförum og flestum
þykja þær hreint afbragð með
kaffinu. Hér á eftir birtast upp-
skriftir af fímm mismunandi
tegundum rúllutertu. Með þær er
þó farið á sama hátt, bakað í
rúllutertumóti eða á smjörpappír
á bökunarplötu. Kökunum er
hvolft á sykraðan pappír eða sykr-
inum skráð yfír bakaða kökuna
og síðan hvolft. Rúllutertumar
má frysta, alveg tilbúnar, með
góðum árangri.
Mokkarúlla
3 egg
l'/2 dl sykur
3/< dl kartöflumjöl
1 tsk. vanillusykur
2 matsk. kakó
1 tsk. lyftiduft
Egg og sykur þeytt vel, þurr-
efnin sigtuð og sett varlega saman
við. Deigið sett í mót eða á smjör-
pappír, smurt með bræddu
smjörlíki, bakað í 6—8 mín. við
250 °C og hvolft á pappír.
Kaffikrem
1 matsk. skyndikaffí (kaffiduft)
V2 matsk. sjóðandi vatn
2 matsk. flórsykur
100 g smjör eða smjörlíki
2 eggjarauður
Kaffíduftið leyst upp í vatninu
og samanvið er hrært flórsykri,
smjöri og eggjarauðum. Kremið
bragðbætt ef þurfa þykir t.d. með
sterku nýlöguðu kaffí eða ijóma-
lögg, smurt jafnt á kökuna og
síðan rúllað saman.
Kókosrúlla
3 egg
2 Vs dl sykur
3 dl kókosmjöl
U/2 tsk. lyftiduft
Egg og sykur þeytt vel saman,
kókosmjöl, kartöflumjöl og lyfti-
duft sett varlega saman við.
Deigið sett í mót eða á pappír og
bakað í 6—8 mín. við 250 °C.
Þegar kakan er bökuð er kók-
osmjöli stráð yfir og henni
hvolft á bökunarpappír.
Kremið
150 g smjör eða smjörlíki
2 dl flórsykur
1 eggjarauða
börkur og safí úr einni sítrónu
Smjör og flórsykur þeytt vel,
eggjarauðu, berki og safa hrært
saman við. Kremið smurt jafnt á
kökuna og hún rúlluð saman,
geymist á köldum stað. Kökuna
má frysta.
Súkkulaðirúlla
3 egg
IV2 dl sykur
1 dl hveiti
3 matsk. kartöflumjö!
1 tsk ljrftiduft
Egg og sykur þeytt vel saman,
þurrefnum bætt varlega saman
við og deigið sett í smurt form
eða á smjörpappír. Bakað við 250
°C í 6—8 min. Kökunni hvolft
á sykraðan pappír og látin
kólna.
Mokkarúlla og kókósrúlla.
Súkkulaðikrem
150 g smjör
IV2 dl flórsykur
1 eggjarauða
3 matsk. kakó
Smjör og sykur þejrtt vel sam-
an. eggjarauðu og kakói bætt
saman við og hrært vel. Kreminu
smurt á kökuna og hún rúlluð
saman. Kökuna má setja í frysti.