Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 16

Morgunblaðið - 26.07.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 Hvað nú — lögreglumenn? eftir Björn Arnórsson Það olli mér mikillar undrunar, er ég nýkominn úr mánaðarsum- arfríi sá fyrstu fréttir af nýgerðu samkomulagi Landsambands lög- reglumanna við fjármálaráðherra. Sú undrun minnkaði ekki þegar ég síðar fékk að sjá samkomulagið í heild sinni — nú er ég forviða, og í sanneika sagt dálítið sár. Verkfall 1984 Mér er ennþá minnisstæður fund- ur, sem ég átti með lögreglumönn- um á lögreglustöðinni í Reykjvík í átökunum 1984. Lögreglumenn lögðu ekki niður vinnu í verkfallinu (vegna úrskurðar kjaradeilunefnd- ar) en störf þeirra voru takmörkuð við brýnustu verkefni — öryggis- vörslu. Því var það að þegar Alþingi var sett, þá vaknaði sú spuming meðal stéttvísra lögreglumanna hvort heiðursvörður við setningu þess flokkaðist undir öryggisvörslu og hvort þátttaka í heiðursverðinum skoðaðist ekki sem skortur á sam- stöðu með hinum félögunum t BSRB, sem lögðu algjörlega niður vinnu. Eftir nokkrar umræður urðu menn sammála um að verkfallið beindist ekki gegn lýðveldinu á ís- landi, þvert á móti bæri einmitt að leggja áherslu á lýðræðið og sýna því fyllstu virðingu. Það væri ein- mitt með skírskotun til lýðræðisins, sem BSRB væri að fara fram á aukinn verkfallsrétt fyrir félags- menn sína og einmitt með skírskot- un til sama lýðræðis mótmæltum við skerðingu á verkfallsrétti lög- reglumanna. Um þetta sjónarmið var einhugur og heiðursvörðinn stóð lögreglan með venjulegri reisn, og vottaði lýð- ræðinu þar með þá virðingu, sem alþingismenn og ráðherrar telja ekki alltaf í sínum verkahring. Það fer ekki á milli mála að lög- reglumenn áunnu sér virðingu allra þeirra er tóku þátt í þessu verk- falli. Menn gerðu sér ljóst að þeir voru í mjög erfiðri stöðu, vegna úrskurðar Kjaradeilunefndar, en menn gerðu sér þess vegna enn betur ljóst að lögreglumenn lögðu sig fram um að sýna stéttvísi sína og samstöðu með öðrum opinberum starfsmönnum í hvívetna. Nægir þar að nefna að lögreglu- menn höfðu afhent verkfallssjóði veglegar upphæðir löngu áður en áskorun þar að lútandi var send út til félagsmanna BSRB og mót- mæla- og stuðningsganga þeirra vakti athygli langt út fyrir land- steinana — fékk meðal annars umfjöllun í BBC. Af þessu stafa sárindin, sem ég drap á í upphafi. Ég hefði seint trúað — og trúi reyndar ekki fyrr en ég sé úrslit atkvaeðagreiðslunnar — að lögreglumenn ríði á vaðið að afsala sér verkfallsrétti með eigin undirskrift. Samstaða er nauðsyn En þótt við lítum fram hjá „prinsipmálinu" í þessu samkomu- lagi er hægt að benda á æði margt, sem hefur kjaralegt gildi, sem minna hefúr farið fyrir í umræð- unni. Launaviðmiðunin við önnur stéttarsamtök, sem fjallað er um í samkomulaginu, verður náttúru- lega því minna virði, sem samtökin, sem miðað er við verða veikari. Þá er ég að sjálfsögðu ekki að gera því skóna (sem sumir telja að verði raunin) að þetta sé fyrsta skref lögreglumanna út úr BSRB. Hvemig sem niðurstaða atkvæða- greiðslunnar verður, megum við aldrei láta þá ógæfu henda okkur — hvorki BSRB eða Landsamband lögreglumanna. En það er rök- studdur grunur um að fjármálaráð- herra ætli ekki að láta hér staðar numið. Næst á dagskrá séu heil- brigðisstéttir og aðrar stéttir er sinna öryggismálum, svo sem t.d. tollverðir. Ljóst er að ef það næði fram að ganga, mundi BSRB veikj- ast svo mjög að erfitt er að sjá hvemig bandalagið gæti varist síharðnandi árásum á mikilvæg réttindi eins og t.d. lífeyrissjóðina. Önnur réttindi eins og lögin um réttindi og skyldur, veikindaréttur- inn o.fl. kæmust strax á hættu- svæði. Það virðast ansi margir á íslandi í dag telja þessi réttindi vera eins og hvert annað náttúmlögmál, sem ekki verði hróflað við. Gleymist þá að öll kostuðu þau stórfelld átök og em forgengileg eins og önnur mannanna verk, ef ekki er staðinn um þau öflugur vörður. Og hvar stæðum við þá, með ósamhenta verkalýðshreyfingu, sem Iéti opinberar stofnanir reikna út þau kjör er þeim þætti réttlát á hveijum tíma? Að lifa eða deyja Enn er ótalið það sem olli mér ekki minnstum vonbrigðum, en það er það ákvæði er sérstaklega tekur fram heimild til aðildarfélaga Land- sambands lögreglumanna að semja um styttingu lágmarkshvfldar úr tíu stundum í átta. Á síðasta ári hafa forystumenn lögreglunnar undir ötulli handleiðslu Einars Bjamasonar, núverandi formanns landsambands- ins, gert ítarlega athugun á lífslengd þeirra lögreglumanna, sem gengið hafa vaktir. Það var sameiginleg niðurstaða Qármála- ráðuneytisins og Landsambands Björn Arnórsson „ — en menn gerðu sér enn betur ljóst að lög- reglumenn lögðu sig fram um að sýna stétt- vísi sína og samstöðu með öðrum opinberum starfsmönnum i hvívetna.“ lögreglumanna að leggja athuganir þessar fyrir tryggingafræðing til umsagnar. Umsögn hans var ótví- rætt á þann veg að athuganir þessar væru marktækar. Þessar skýrslur léku stórt hlut- verk í síðustu aðalkjarasamningum BSRB og fulltrúar lögreglumanna vom óþreytandi að kenna okkur hinum nauðsyn þess að stytta vinnutíma vaktavinnumanna allra (félagsvitundin þrengdi niðurstöð- urnar ekki til lögreglumanna einna). Það voru líka gerðar tilraun- ir í þessa átt og þó niðurstaðan ylli okkur öllum vonbrigðum, þá voru þó settar fastari skorður í samningsákvæðið um lág- markshvíld — er það ekki síst fulltrúum lögreglumanna að þakka. Því spyr ég: Er fjárhagsávinning- ur þessa samkomulags þess virði að afsala sér verkfallsrétti (jafnvel þó skertur sé) og snúa við blaðinu í baráttunni fyrir tíu tíma lágmarks- hvfldinni? Er það þetta samkomu- lag, sem sæmir að reisa sem minnismerki yfir drengilega og heil- brigða baráttu lögreglumanna undanfarin ár? Svari hver sem vill. Aukin laun Ég get ekki skilið við þetta mál án þess að taka rækilega fram að launahækkanir lögreglumönnum til handa eru löngu orðin knýjandi nauðsyn — ekki aðeins vegna lög- reglumannanna heldur ekki síður vegna okkar hinna. Það er alvarlegt mál fyrir alla þjóðina er reyndir og hæfir lögreglumenn flæmast úr starfi vegna kjaranna. Ég hef einn- ig mikla ánægju af því að geta vottað að þessi stétt (alveg eins og t.d. fangaveðir) hefur lagt áherslu á aukna menntun, til að geta sinnt starfi sínu enn betur, ekki síður en á kjarabaráttuna. Krafan um vinnu- tímastyttinguna hefur nefnilega einnig verið sett fram með því hug- arfari að geta veitt okkur borgurun- um betri þjónustu. Það má því ekki líðast — og verð- úr seint trúað — að fjármálaráð- herra verði látinn komast upp með það að tengja slíka afarkosti, sem hér hefur verið frá greint, við sjálf- sagðar kauphækkanir. Gegn því ber að skera upp herör! Höfundur er hagfrteöingur BSRB. Hvað er að frétta af friðarári? eftir Guðrúnu Agnarsdóttur Hvað er að frétta af friðarári? Á 40 ára afmæli Sameinuðu þjóð- anna þ. 24. október 1985 var því lýst yfir að árið 1986 yrði alþjóð- legt friðarár á þeirra vegum. Væntingar Sameinuðu þjóðanna í samþykkt allsheijarþingsins þann 24. október, þar sem tiikynnt var um tilgang hins alþjóðlega frið- arárs og þær væntingar sem við það eru bundnar, eru öll þjóðríki, allar stofnanir Sameinuðu þjóð- anna, öll áhugamannasamtök, félög sem sinna mennta-, vísinda-, menn- ingar- og rannsóknarmálum, svo og fjölmiðlar, hvött til að leggja þessu málefni lið. Þess er jafnframt getið að hið alþjóðlega friðarár sé ekki einungis til þess fallið að haldn- ar séu hátíðir og minningarathafnir í tilefni friðar heldur bjóði það upp á tækifæri til þess að íhuga og bregðast við af hugvitssemi til þess að ná meginmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, þ.e. varðveislu friðar. í erindisbréfi frá aðalritara SÞ til fastafulltrúa íslands hjá SÞ var beðið um upplýsingar varðandi stofnun stjómskipaðrar nefndar sem hafí það hlutverk að sjá um samræmingu og skipulag vegna aðgerða á árinu eins og tíðkast hefur um alþjóðaár tengd öðram málefnum, t.d. ár æskunnar á sl. ári og í tilefni kvennaáratugarins. Ennfremur var spurt um fyrir- hugaðar aðgerðir á íslandi, sam- vinnu okkar við aðrar þjóðir í tilefni friðarárs og um það hvort íslend- ingar muni fara fram á aðstoð eða þátttöku SÞ í einhveijum þeim að- gerðum sem fyrirhugaðar era. Aðildarríkjum sem enn höfðu ekki tilkynnt um áform sín var gef- inn kostur á því að láta til sín heyra á fundi þ. 14. febrúar sl. í sama bréfí var beðið um upplýsingar um fyrirætlanir aðildarríkjanna sem fara eiga í skýrslu til 41. aðalþings SÞ og verða þær að berast eigi síðar en 31. júlí. Fyrirspurn Kvenna- lista, svar for- sætisráðherra Þann 18. mars sl. var rædd á Alþingi svohljóðandi fyrirspum frá Kvennalista: 1. Hefur ríkisstjómin skipað undirbúningsnefnd vegna friðarárs Sameinuðu þjóðanna 1986? 2. Hvaða áætlanir hefur ríkis- stjómin gert í tilefni friðarárs- ins 1986? í svari sínu upplýsti forsætisráð- herra að ríkisstjómin hefði sam- þykkt á fundi 23. janúar si. þá tillögu utanríkisráðherra að fela Félagi Sameinuðu þjóðanna að skipuleggja dagskrá í tilefni friðar- árs í samráði við utanríkisráðuneyt- ið og að höfðu samráði við þau fjöldamörgu samtök sem tengjast þessu friðarátaki. Kom fram í máli ráðherra að ákveðið var að fé verði veitt úr ríkissjóði til að kosta þá starfsemi sem Félag SÞ gerir tillögu um og samþykkt verður. Forsætisráðherra kynnti nokkrar hugmyndir sem fram komu á ríkis- stjómarfundinum: Hátíðarsamkoma í Þjóðleikhús- inu í október eða nóvember. Ráðstefna í Reylqavík um þátttöku íslendinga í alþjóðlegu friðarsam- starfi og um ófriðarsvæði í heimin- um. Kynningarbæklingi yrði dreift með ýmiss konar efni, t.d. látið í té af SÞ í tilefni friðarársins. Útgáfa frímerkis á vegum Póst- og símamálastofnunarinnar eða myntar af hálfu Seðlabankans. Víðtæk kynning í Qölmiðlum um markmið friðarársins. Félagi SÞ var síðan falið að gera ítarlega starfsáætlun vegna þessa verkefnis sem yrði tilbúin fljótlega. Sine Manibus eða of síðar ermar? Þetta var 18. mars. Síðan eru liðnir rétt fjórir mánuðir og það bólar ekki á neinum aðgerðum. Þegar fyrirspum þessi var rædd þótti það lýsa áhugaleysi stjóm- valda hve seint var farið af stað og var ísland borið saman við hin Norðurlöndin sem hófu undirbúning þegar á árinu 1985. Forsætisráðherra fullyrti að þetta starf yrði engin lognmolla heldur alvörastarf. Um miðjan apríl þegar umræður urðu um skýrslu utanríkisráðherra minntist ég aftur á þetta mál í tengslum við afstöðu ríkisstjórnarinnar til loftárásar Guðrún Agnarsdóttir „Ég taldi íslensk stjórn- völd gjarnan sein til að taka afstöðu á alþjóða- vettvangi í friðar- og afvopnunarmálum, gera sér far um að móðga engan og ganga hægt um dyr.“ Bandaríkjamanna á Líbýu. Ég taldi íslensk stjómvöld gjaman sein til að taka afstöðu á alþjóðavettvangi í friðar- og afvopnunarmálum, gera sér far um að móðga engan og ganga hægt um dyr. Þau vildu fremur slá mynt til að minna á frið- inn en taka einarðlega afstöðu á alþjóðavettvangi þegar það skiptir máli. Við veltum fyrir okkur orðalagi sem engan myndi st.yggja meðan aðrar Evrópuþjóðir reyndu að koma í veg fyrir þær loftárásir sem voru yfirvofandi. Forsætisráðherra vildi reka af sér slyðraorðið og ítrekaði þær hug- myndir sem hann kynnti í svari við fyrirspuminni í mars, en lauk síðan máli sínu með því að segja að rík áhersla hefði verið lögð á það við stjóm Félags SÞ að hendur verði látnar standa fram úr ermum og unnið verði með þeim fjölmörgu aðilum sem vilja tjá sig um frið. Enn bíða menn eftir handaverk- um félagsins og sjöundi mánuður friðarársins senn liðinn. Því spyr ég nú: 1. Hvenær megum við vænta lífsmarks úr homi stjómvalda vegna friðarársins? 2. Hafa SÞ þegar verið sendar þær upplýsingar um fyrirætlanir ís- lendinga á friðarári sem birtast eiga í skýrslu til 41. aðalþings og berast eiga fyrir 31. júlí? 3. Ef svo er, hveijar era þessar fyrirætlanir og hvernig líður fjármögnun þeirra? Höfundur er þingkona Samtaka um kvennajista. 69-11-00 Auglýsingar22480 Afgreiðsla 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.