Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 17

Morgunblaðið - 26.07.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986 17 Dönsk ferðaskrif- stofa með ódýr flug- fargjöld til Islands DÖNSK ferðaskrifstofa, Dansk folke-ferie, auglýsir nú íslands- ferðir með Flugleiðum fyrir 1995 danskar kr. eða um 10.300 kr islenskar. Ódýrasta fargjald sem íslending- um býðst til og frá Danmörku er hins vegar 16.100. Að sögn Sæmundar Guðvinsson- ar hjá Flugleiðum er það mjög takmarkaður fjöldi sæta sem ferða- skrifstofan getur selt á þessu verði enda vilja Flugieiðir síst af öllu lenda í samkeppni við sjálfa sig. Þetta fargjald sagði Sæmundur vera svipað og það sem sumar ís- lenskar ferðaskrifstofur hafa boðið í ýmsum sértilboðum, til dæmis til félagsmanna í ákveðnum samtök- um eða verkalýðsfélögum og sé liður í tilraun Flugleiða til að auka ferðamannastrauminn hingað til lands. Því miður væri aldrei alltaf hægt að gera öllum jafnhátt undir höfði en á móti kæmi að Flugleiðir byðu oft, sérstaklega á veturna þegar minna er að gera, íslendingum hag- stæðari fargjöld en útlendingum. fullvissu þess að hún mætti verða til þess að styrkja menningarsam- skipti íslendinga og Færeyinga. Mistök veröi leiörétt Enn er tími til að bæta úr þessum mistökum og taka að nýju upp við- ræður við landstjóm Færeyja og stjóm Norðurlandahúss um málið. Nauðsynlegt er að góðri reglu verði komið á þetta efni hið fyrsta og vel færi á því, að mínum dómi, að það yrði gert áður en forsetar Alþingis fara til Færeyja í haust í boði Lög- þingsins, þó að sú för sé út af fyrir sig ótengd því máli, sem ég hef gert að umræðuefni. Förin á það eigi að síður sammerkt með um- ræddum fjárveitingum til menning- arsamskipta milli landanna, að Alþingi á hlut að máli í báðum til- fellum og markmiðið með heimsókn þingforsetanna er fyrst og fremst að efla vinakynni og menningar- samskipti milli Færeyinga og íslendinga. Kjami málsins er sá, að íslend- ingar og Færeyingar eiga að efla samskipti sín og kynnast betur og leita allra leiða til virkrar sam- vinnu, sem getur komið báðum að gagni. Þrátt fyrir allt sem vel er gert í þeim efnum stendur margt til bóta. Höfundur er atþingismaður og fyrrverandi menntamálaráð- herra. ÞÝSKU KOSTAGRIPIRNIR 1987 ERU AÐ KOMA Betur búniz en nokkru sinni fyrr Menningarsamskipti ís- lendinga og Færeyinga V.W. Golf — mest seldi bíll í Evrópu V.W. Jetta — írábcer íjölskyldubíll Laugavegi 170-172 Simi 695500 eftir Ingvar Gíslason Um þessa helgi halda Færeying- ar árlega þjóðhátíð sína, Ólafsvök- una, í Þórshöfn. Þjóðhátíð Færeyinga á sér ekki marga líka meðal annarra þjóða, svo sérstæð er hún í færeysku þjóðlífi og svo einkennandi fýrir þjóðmenningu Færeyinga. Frá ómunatíð hafa Færeyingar hist á Ólafsvöku. Þar safnaðist fólk- ið saman hvaðanæva úr eyjunum ár eftir ár öldum saman líkt og ís- lendingar á Þingvöll fyrrum, og þessum_ sið halda Færeyingar enn í dag. Ólafsvakan hefur ætíð verið þjóðarsamkoma, þangað koma allir sem vettlingi geta valdið og heim- angengt eiga. Ólafsvakan rann saman við fomt þinghald þjóðarinn- ar, sem er jafngamalt þjóðinni, og þar fóru því fram þingstörf og dóm- störf og margs konar lögskil, auk þess sem Ólafsvakan var þjóðhátíð og afþreyingarsamkoma og heldur enn því einkenni. Hin langa þing- hefð Færeyinga og Ólafsvakan er merkur þjóðararfur, sem á áreiðan- lega ómældan þátt í að skapa þjóðarvitund Færeyinga og gerði þeim kleift, svo örfámennir sem þeir voru, að standast þá menning- arlegu ásókn, sem lengstum hefur fylgt völdum Dana í landinu og var langt umfram það, sem íslendingar urðu fyrir. Lögþing Færeyinga, sem á sér ævafomar rætur, er nú full- gilt löggjafarþing, sem starfar innan þeirra marka sem stjórnar- skráin ákveður. Setning Lögþings er fastur liður í hátíðarhöldum Ol- afsvöku, og þannig tengist fortíð og nútíð. Frændþjóðir og nágrannar íslendingar og Færeyingar em ekki aðeins nágrannar í Norður- Atlantshafi heldur náskyldar þjóðir að máli og menningu, áttu svipaða landnámssögu og hafa um aldir lif- að við lík kjör í öllum meginatriðum. Því er eðlilegt að þessar þjóðir eigi góð samskipti og fínni leiðir til þess að rækja frændsemi og nágrenni á sem virkastan hátt. Samvinnu Fær- eyinga og íslendinga þarf að efla, hvort sem er á sviði menningar eða hagrænna viðskipta. Ríkisstjórnir beggja landa eiga að láta sam- skiptamálin til sín taka og vinna að eflingu þeirra í sameiningu. Reyndar er gleðilegt til þess að vita að jákvæð samskipti íslendinga og Færeyinga hafa eflst á síðari ámm, bæði hvað varðar menningar- mál og hagræn viðskipti. En slík samskipti gætu þó aukist enn að mun. Ingvar Gíslason „Kjarni málsins er sá, að Islendingar og Fær- eyingar eiga að efla samskipti sín og kynn- ast betur og leita allra leiða til virkrar sam- vinnu, sem getur komið báðum að gagni.“ Gjöf við vígslu Norðurlandahúss Þegar Norðurlandahúsið (Nor- ræna húsið) var vígt í Þórshöfn við hátíðlega athöfn í maímánuði 1983 beitti ég mér fyrir því, sem mennta- málaráðherra í þáverandi ríkis- stjórn, að gjöf íslendinga til Norðurlandahússins í Færeyjum skyldi verða í því formi að ákveðin fjárhæð væri á fjárlögum hvers árs til þess að efla menningarsamskipti við Færeyjar. Við þessa ákvörðun hefur Alþingi fyliilega staðið og á fjárlögum undanfarinna ára hefur verið að finna fjárveitingu í þessu skyni. Nemur hún á líðandi ári 272 þús. kr. Þegar ég tilkynnti um gjöf þessa á vígsluhátíð Norðurlanda- hússins og afhenti menntamálaráð- herra Færeyja bréf þar að lútandi, lét ráðherrann, sem þá var Tórstein Poulsen, þau orð falla við mig að hann teldi eðlilegt að Lögþingið léti eitthvað af hendi rakna af sinni hálfu í sama skyni. Nú veit ég ekki hvort af því hefur orðið, en hafi svo ekki verið er æskilegt að taka það mál upp að nýju. I gjafabréfi því, sem ég undirrit- aði 5. maí 1983 og stílað var til’ landstjórnar Færeyja, var ráð fyrir því gert að >/3 fjárveitingarinnar gengi til styrktar færeyskum stúd- ent við Háskóla íslands, en V3 til styrktar samstarfi þjóðanna á sviði myndlistar, leiklistar og tónlistar eða annarra greina menningar- starfsemi og yrði íjárhæðinni ráðstafað í samráði við landstjórn Færeyja og Norðurlandahúsið í Þórshöfn. Onýttar fjárveitingar Ég þykist hafa komist að raun um að menntamálaráðuneytið hafi ekki sinnt því að framkvæma með réttum hætti þann vilja sem fram kom í ráðherrabréfi 5. maí 1983 né notfært sér velvilja Alþingis í þessu sambandi. Fyrir liggur að Alþingi veiti í þessu skyni 200 þús. kr. 1984, 250 þús. kr. 1985 og 275 þús. kr. 1986. Af fjárveitingu ársins 1984 voru aðeins nýttar 110 þús. kr. Pjárveiting ársins 1985 var heldur ekki fullnýtt. Hvernig fjár- veitingu líðandi árs hefur verið varið eða hvað fyrirhugað er í því efni, veit ég ekki. Vonandi stendur það til bóta frá því sem verið hefur fyrir- farandi ár. Ljóst er því að saman- lagt nema beinar fjárveitingar á þremur árum 725 þús. kr. á nafn- verði hvers árs. Á núvirði er þessi upphæð talin vera 915 þús. kr., en af henni hafa verið nýttar (á nú- virði) 361 þús. kr., sem merkir að 554 þús. kr. (á núvirði) hafa ekki verið notaðar eða óvíst hvernig nýttar verða. Til viðbótar þessu er þess að geta að heimild var fyrir aukafjárvaitingu í þessu skyni árið 1983 upp á 150 þús. kr., en tókst ekki að nýta vegna þess að ekki bárust í tæka tíð tillögur frá Færey- ingum um ráðstöfnun þeirrar fjárhæðar. Það gat ekki komið í minn hlut að reka sérstaklega á eftir tillögu- gerð landstjómar Færeyja, og stjórnar Norðurlandahússins, því að ég lét af embætti ráðherra fáum dögum eftir að gjöfin var afhent, en ég sakna þess að þessu máli hafa ekki verið gerð þau skil sem til stóð þegar gjöfm var ákveðin í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.