Morgunblaðið - 26.07.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
Þessir hringdu . . .
Full þörf á
Kvennaathvarf-
inu
Eydís Ástráðsdóttir starfsmað-
ur Kvcnnaathvarfsins hringdi:
„Fannborg Þórmundsdóttir ber
fram fyrirspum í Velvakanda á
fimmtudaginn um hvort þörf sé á
Kvennaathvarfi, hvort ekki sé
hægt að láta lögregiuna sjá um
að hirða karlana, stinga þeim inn
og sofa úr sér vímuna eins og hún
orðar það. Þama er einmitt komin
rótin að skilningsleysi fólks á
þessu vandamáli. Ef málið væri
svona auðvelt mætti kannski deila
um þörfína á Kvennaathvarfínu
en svona gengur þetta alls ekki
fyrir sig. I fyrsta lagi eiga ekki
allir ofbeldismenn við áfengis-
vandamál að stríða, það gildir
bara um um það bil 50 til 60%
þeirra. í öðru lagi hefur lögreglan
aðeins rétt á að halda mönnum í
24 klst án þess að gefa út ákæm.
Það er sama hvemig á þetta mál
er litið, að láta karlana sofa úr
sér vímuna er engin lausn. Það
segir sig sjálft að það tekur engin
kona sig upp frá heimili sínu með
kannski 3 eða 4 böm og kemur
á Kvennaathvarfíð til að dvelja
þar mánuðum saman að gamni
sínu. Þar er slæm aðstaða, lítil
og fá herbergi og konan getur
alltaf átt von á annarri konu með
böm inn í herbergið hennar. Karl-
ar beita konur ekki bara ofbeldi
meðan þeir em undir áhrifum
áfengis. Ef kona sem gift er
manni sem á við áfengisvandamál
að stríða hyggur á skilnað yrði
lögreglan í mörgum tilfellum að
halda manninum inni í rúmt ár.
Auk þess höfum við ótal sinnum
tekið við konum hér sem þegar
hafa skilið og þurfa samt að koma
á athvarfið með bömin sín vegna
ónæðis og oft síendurtekinna inn-
brota fyrrverandi eiginmanna eða
sambýlismanna. Ef svara á spum-
ingum Svanborgar á fullnægjandi
hátt þyrfti nokkrar blaðsíður því
að ástæður fyrir komu kvenna til
Kvennaathvarfsins em margar en
aðalástæðan er samt sú að þess-
um konum og bömum þeirra er
hreinlega hvorki vært á heimilinu
né hjá ættingjum eða vinum."
Penni saknar
eiganda síns
Sigurrós Ólafsdóttir hringdi:
„Sá sem fann svartan byro-
penna á afgreiðsluborði í Eden
þ. 27. júní s.l. er beðinn um að
hringja í síma 12011. Góð fúndar-
laun verða greidd.
Seðlaveski tap-
aðist
Á.L. hringdi:
„Mánudagskvöldið 21. júlí varð
ég fyrir því óláni að týna veskinu
mínu með peningum og skilríkjum
í hér í miðbæ Reykjavíkur, senni-
lega fyrir utan Skalla. Þetta er
lítið seðlaveski, svart að lit. Skilvís
fínnandi er vinsamlega beðinn um
að hringja í síma Morgunblaðsins,
691100.
Þorvarður gaf
út skuldabréfið,
ekki Þorvaldur
Olafsson
Guðmundur A. Finnbogason
hringdi:
„í Velvakanda miðvikudaginn
23. júlí birtist grein eftir mig i
Velvakanda sem ber yfírskriftina
„Um Þorvald Ólafsson". Greinin
var samin í tilefni af því að Matt-
hías Á. Mathiesen utanríkisráð-
herra færði Landsbankanum 100
ára skuldabréf að gjöf á afmæli
bankans 25.júlí s.l. Við samningu
greinarinnar stóð ég i þeirri mein-
ingu að Þorvaldur Olíifsson hefði
gefíð skuldabréf þetta út, en eins
og lesa má bæði í frétt blaðsins
og á sjálfu skuldabréfínu, er hann
ekki útgefandi þess, heldur Þor-
varður Olafsson, bóndi á Jófríðar-
stöðum.
Hér hef ég því ruglað saman
þeim Þorvaldi og Þorvarði og biðst
afsökunar á þeim mistökum. Að
öðru leyti stenst allt það sem í
greininni stendur nema fæðingar-
dagur Lilju Aradóttur, dóttur Ara
Jónssonar stórbónda og kirkju-
haldara á býlinu Innri-Njarðvík.
Réttur fæðingardagur hennar er
24. september 1816.
Rautt veski tap-
aðist
H.J. hringdi:
„Ég varð fyrir því óhappi að
týna rauðu veski í skemmtistaðn-
um Hollywood, Ármúla 5 laugar-
daginn 12. júlí. Veskið er rautt
að lit og í því voru áríðandi kvitt-
anir og ökuskírteini. Finnandi er
vinsamlegast beðinn um að
hringja í síma 84818.“
Skriðjöklar gefa plötu sína á Akureyri.
Vinsældalisti rásar 2:
Njóta aðdáendur Skriðjökla
ekki sömu réttinda og aðrir?
Nokkrir hlustendur rásar 2
höfðu samband:
„Við erum héma nokkrir vinnufé-
lagar sem höfum verið að ræða
okkar á milli um uppistandið út af
vinsældalista rásar 2. Að okkar
dómi eru það forkastanleg vinnu-
brögð hjá starfsfólki rásarinnar að
svipta aðdáendur Skriðjökla at-
kvæðisrétti við val á listann. Ekki
síst þar sem lag eftir einn af starfs-
mönnum rásarinnar hafði komist
fyrirvaralaust í 1. sæti listans, áður
en nokkur maður hafði heyrt það.
Lag Skriðjöklanna „Ég sé um hest-
inn“ var hins vegar orðið gríðarlega
vinsælt fyrr á þessu ári eftir frá-
bæra frammistöðu þeirra félaga í
sjónvarpsþættinum „Á líðandi
stundu". „Hesturinn" er þar fyrir
utan miklu betra og skemmtilegra
lag en hallærislag Jóns Ólafssonar.
Sagt var að aðdáendur Bítlavinafé-
lagsins hefðu hringt inn lagið.
Aðdáendur Skriðjökla og „Hests-
ins“ gerðu það líka. Njóta aðdáend-
ur Skriðjökla ekki sömu réttinda
og aðdáendur annarra hljómsveita?
- Okkur félögunum fínnst að
starfsfólk rásarinnar hafi orðið sér
rækilega til skammar í þessu máli.
Jlpööur
á morgun
Lúk. 16. Hinn rangláti
ráðsmaður.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Orgelleikari BirgirÁs Guðmunds-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
ÁSPRESTAKALL: Vegna safnað-
arferðar austur undir Eyjafjöll
verður guðsþjónusta í Asólfs-
skálakirkju kl. 2. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BORGARSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sigfinnur Þorleifsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson messar. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólaf-
ur Skúlason.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
1. Orgelleikari Birgir Ás Guð-
mundsson. Sr. Hjalti Guömunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa
kl. 10. Sr. Lárus Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudagur 29. júlí: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Arngrímur Jónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Pétur
Maack. Organisti Kristín Ög-
mundsdóttir. Sóknarnefnd.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11 árdegis. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Sr. Frank M.
Halldórsson. Miövikudagur: Fyr-
irbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank
M. Halldórsson.
SEUASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 11. Altaris-
ganga. Síðasta guðsþjónusta
fyrir sumarleyfi.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Fermd verður Ellen
Halldórsdóttir búsett á Flórída,
Bandaríkjunum, P.T. Réttarseli
16, Reykjavík. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
koma kl. 20.30. Samkoma verður
miðvikudag kl. 20.30. Kveðju-
samkoma fyrir kaftein Miriam
Óskarsdóttur sem er á leiö til
Panama. Ofursti Guðfinna Jó-
hannesdóttir stjórnar. -
KFUM & K: Samkoma kl. 20.30.
Upphafsorð og bæn Steinunn
Ásgeirsdóttir. Ræðumaður
Guðni Gunnarsson. Gjafir í
starfssjóð.
FÍLADELFÍA Hátúni 2: Safnaðar-
guðsþjónusta kl. 14.00. Ræöu-
maður Sam Glad. Almenn
guðsþjónusta kl. 20.00 á vegum
Forlags Fíladelfíu. Elísabet Eir
og Guðný syngja tvísöngva. Flutt
verða ávörp. Samskot. Sam-
komustjóri Einar J. Gíslason.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Vestur-
Islendingar og vinir þeirra sér- .
staklega boðnir velkomnir. Sr.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 11.00 í Hrafnistu. Sr.
Bragi Friðriksson messar. Sr.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Hrafnistu Hafnarfirði kl. 11.00.
Sóknarprestur.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garðabæ: Hámessa kl. 14.00.
KAPELLA St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.00. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.00. v
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Lágmessa rúmhelga
daga kl. 8.00.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta verður kl. 14.00. Kristján
Björnsson guðfræðinemi prédik-
ar. Organleikari: Einar Sigurðs-
son. Sóknarprestur;
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa kl.
17.00. Sr. Sigurður Árni Þórðar-
son rektor Skálholtsskóla pré-
dikar. í dag, laugardag, verða
sumartónleikar kl. 15.00 og
17.00. Leikin veröa verk eftir Jón
Nordal tónskáld.
ÞORLÁKSKIRKJA Þorlákshöfn:
Messa kl. 11.00. Irma Sjöfn
Óskarsdóttir, guðfræðinemi,
prédikar. Minnst verður þess að
eitt ár er liðið frá vígslu kirkjunn-
ar. Tómas Guðmundsson.
Heilbirgðis- og tryggingamálaráðuneytið:
Reglugerð um starf-
semi Heilsuhælis
NLFI endurskoðuð
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið hefur skipað
nefnd til að endurskoða reglu-
gerð fyrir starfsemi Heilsu-
hælis NLFÍ í Hveragerði.
í frétt frá ráðuneytinu segir að
nefndinni sé sérstaklega falið að
gera tillögur að breyttri reglugerð,
með hliðsjón af breyttum lögum um
heilbrigðisþjónustu. Ennfremur að
kveða nánar á um afskipti héraðs-
læknis af rekstri hælisins og tengsl
endurskoðenda hælisins við ráðu-
neytið auk annarra atriða.
I fréttinni segir að ráðuneytið
vænti þess að með endurskoðun*^-
þessari takist að jafna þann ágrein-
ing sem upp heftir komið varðandi
rekstur Heilsuhælis NLFÍ í Hvera-
gerði.
í nefndinni eiga sæti: Ólafur Ól-
afsson, landlæknir, sem jafnframt
er formaður, Ingimar Sigurðsson,
lögræðingur, Dr. Jónas Bjamason,
efnaverkfræðingur, tilnefndur af
rekstrarstjórn Heilsuhælis NLFÍ,
og Friðgeir Ingimundarson, for-
stjóri Heilsuhælis NLFI, tilnefndur
af Náttúrulækningafélagi íslands.
SÓLBORG SIGURSTEINSDÓTTIR,
Hringbraut 111
lóst í Landspítalanum að morgni 25. júlí.
Fyrir hönd annarra aöstandenda,
María Jónsdóttir.