Morgunblaðið - 26.07.1986, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1986
• Landsliðshópurinn sem keppir við vestur-þýska landsliðið um helgina og á miðvikudaginn: Efri röð frá vinstri: Svanfrfður Guðjónsdóttir,
form. kvennanefndar KSÍ, Katrín Eiríksdóttir, Karitas Jónsdóttir, Ema Lúövíksdóttir, Halldóra Gylfadóttir, Svava Tryggvadóttir, Vala Úlfljóts-
dóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Sigurbergur Sigsteinsson, landsliðsþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Ingibjörg Jónsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Arna Steinsen, Magnea Magnúsdóttir, Krístfn Arnþórsdóttir, Ásta M. Reynisdóttir. Á myndina vantar Guðrúnu Sæ-
mundsdóttur og Sigurlín Jónsdóttur.
Kvennalandsliðið:
Mætir V-Þjóðverjum
íKópavogi á morgun
ÍSLENSKA kvennalandsliðið leik-
ur 2 landsleiki gegn landsliði
Vestur-Þýskalands á morgun og
miðvikudag.
Leikurinn á morgun verður í
Kópavogí og hefst klukkan 18, en
á miðvikudag verður leikið i Laug-
ardalnum og hefst sá ieikur klukk-
an hálf átta.
íslenski hópurinn er skipaður
leikmönnum frá 6 félögum og eru
2 nýliðar í hópnum. Eftirtaldir leik-
menn hafa verið valdir fyrir leikina,
landsleikjafjöldi i sviga: Erna
Lúövíksdóttir, Val, (9), Vala Úlf-
Ijótsdóttir, ÍA, (1), Arna Steinsen,
KR, (5), Ásta B. Gunnlaugsdóttir,
UBK, (11), Ásta M. Reynisdóttir,
UBK, (6), Guðrún Sæmundsdóttir,
Val, (2), Halldóra Gylfadóttir, ÍA,
(3), Ingibjörg Jónsdóttir, Val, (0),
Laufey Siguröardóttir, Berg. Glad-
bach, (8), Magnea Magnúsdóttir,
UBK, (9), Karítas Jónsdóttir, ÍA,
(3), Katrin Eiríksdóttir, ÍBK, (2),
Kristín Arnþórsdóttir, Val, (6), Sig-
urlín Jónsdóttir, ÍA, (0), Svava
Tryggvadóttir, UBK, (4) og Vanda
Sigurgeirsdóttir, ÍA, (4).
íslensku stúlkurnar léku tvo
landsleiki gegn þeim færeysku fyrr
í sumar og vann íslenska liðið báða
leikina með miklum yfirburðum. Til
þessa hafa veriö leiknir 11 lands-
leikrr og hefur liöið unnið 3, gert 2
jafntefli og tapað 6 leikjum. Leikið
hefur verið gegn landsliðum Nor-
egs, Finnlands, Skotlands,
Svíþjóðar, Sviss og Færeyja. Vest-
ur-Þjóöverjar eiga eitt af bestu
kvennalandsliðum í Evrópu, og er
því ekki ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur.
Næstu leikir kvennafandsliðsins
verða í lok ágúst, en þá verður
leikiö gegn Svisslendingum.
Þjálfari íslenska liösins er Sigur-
bergur Sigsteinsson.
Knattspyrna
helgarinnar
Margir knattspyrnuleikir verða
í deildakeppni karla og kvenna
um helgina auk leikja íyngri flokk-
unum. Heil umferð verður f 1.
deild karla, 3 leikir í 2. deild og
landsleikur f kvennaknattspyrnu.
Norðurlandamót drengjalands-
liða hefst í Danmörku á morgun
og þá verður einnig leikur úrvals-
liðs Suður-Amerfku gegn úrvals-
liði annarra þjóða til styrktar
Mexíkönum, sem urðu fyrir tjóni
vegna jarðskjálftans í Mexfkó-
borg fyrir tæpu ári, og fer leikur-
inn fram í Los Angeles í
Bandaríkjunum.
Laugardagur 26. Júl(
1. daild:
Akureyrarvöllur Þór A.—Víöir
Kópavogsvöllur UBK—(BV
Akranesvöllur lA—KR
2. deild:
Siglufjaröarvöllur KS—Þróttur R.
Vopnafjaröarvöllur Einherji — ÍBÍ
Njarövikurv. Njarövik — Skallagrimur
3. deild karia:
Fáskniösf völlur Leiknir F. — Reynir Á.
Sauöárkróksv. Tindastóll — Valur Rf.
Ólafsfjarðarvöllur Leiftur — Austri E.
Neskaupstaður Þróttur N. — Magni
4. delld karla:
Stykkishólmsv. Snaefell — Þór Þ.
Stokkseyrarv. Stokkseyri—Vikingur Ól
Gervigrasvöllur Léttir — Vikverji
Gervigrasvöllur Árvakur — Grótta
kl.
14.00
14.00
14.30
14.00
14.00
14.00
14.00
14.00
14.00
14.00
14.00
14.00
15.00
13.00
Fellavöllur Leiknir R. — Hafnir 14.00
Hólmavikurvöllur Geislinn — Hörður 14.00
isafj.v. Badmint. isafj. — Bolungarvfk 14.00
Súgandafjaröarv. Stefnir—Reynir Hn. 14.00
Hofsósv. Höfðstrendingur — Kormákur 14.00
Svalbarðseyrarv. Æskan — Austri R. 14.00
Húsavikurvöllur Tjömes — HSÞ-b 14.00
Seyöisfjaröarvöllur Huginn — Súlan 14.00
Breiödalsvöllur Hrafnkell — Sindri 14.00
Sunnudagur 27. júll
1. delld:
ValsvöllurValur —FH 20.
Keflavikurvöllur IBK — Fram 20.
2. deild kvenna:
Borgarnesv. Skallagrimur—Afturelding 14.
(R-völlur ÍR — Grundarfjörður 14.
4. delld karta:
Gervigrasv. Skotf. R. — Grundarfjörður 14,
Kópa.v. Landsl. kv. island — V. Þýskal. 18.
27. júli tll 3. ágúst:
Noröurl.mót drengjalandsliöa í Danmörku.
00
.00
00
.00
.00
00
íslandsmótið
1. deild
KÖPAVOGSVÖLLUR
Breidablik — I.B.V.
laugardag kl. 14.00.
SPORTBÚÐ
KÓPAVOGS
Hamraborg 22
Sími 641000
Búðin sem Blikar
versla í
Kópavogsbúar fjölmennið
á völlinn og styðjið
liðið ykkar.
Breiðablik í
umbro
BYKO
Fimmtíu þúsund
horfðu á fyrstu
æfingu Barcelona
Frá Bob Hennassy, fréttamanni Morgunblaöslns I Englandl.
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt af
knattspyrnuáhuganum í Barc-
elona. Á fyrstu æfingu leik-
manna fyrir næsta
keppnistímabil, sem haldin
var á Nou Camp, heimavelli
liðsins í Barcelona, komu 50
þúsund áhorfendur — hvorki
meira né minna. Geysileg
stemmning var á leikvellinum,
flöggum liðsins veifað og flug-
eldar sprengdir á meðan
leikmennimir skokkuðu örlft-
ið, skiptu f tvö lið og tóku
léttan leik. „Ef þetta er svona
á æfingum, hvernig er þetta
þá á leikjunum?" sagði Gary
Lineker, sem þarna kynntist
áhorfendum í knattspyrnu-
borginni í fyrsta sinn.
Á æfingunni voru leikmenn
liösins kynntir fyrir áhorfendum
og var Lineker, sem nefndur
er „markaprinsinn", fagnað
gríðarlega. Það sama má
reyndar segja um Mark Hughes
og aðra leikmenn. Leikmenn-
irnir héldu í gær í tveggja vikna
æfingabúðir til Andorra.
Vinsældir knattspyrnunnar i
Barcelona eru lygilegar, og
byggjast reyndar að hluta til á
því að knattspyrnufélagið varð
einskonar sameiningartákn
íbúanna sem vildu sjálfstæði
Katalóníu á valdatíma Francos,
og hefur nánast trúarlega
merkingu í hugum þeirra. Til
marks um þessar vinsældir má
nefna að í þorginni eru gefin
út þrjú dagblöð sem fjalla ein-
göngu um knattspyrnu. Þá er
i borginni útvarpsstöð sem ber
nafn félagsins og útvarpar 5
klukkustundum af spjalli, við-
tölum og umsögnum um félag-
• Gary Lineker
ið og leikmenninna — á hverjum
einasta degi.
Barcelona er lokaö félag —
meölimirnir eru 109.052, og
hver borgar um 2 þúsund krón-
ur í árgjald, Langur biðlisti er
eftir félagsskírteinum, og talið
er að svartamarkaðsverö þeirra
sé allt að 120 þúsund krónur.
Skírteiniö færir eigandanum
rétt til að kaupa miða á alla
heimaleikina 25 fyrir samtals
um 2.500 krónur. Meðaláhorf-
endafjöldi á leikina er yfir 100
þúsund manns. Ofan á þetta
hlaðast svo gríöarlegir fjármun-
ir sem félagið fær fyrir auglýs-
ingar á leikvellinum og annars
staðar. Barcelona er svo
ákveðið í slíkum samningum að
enginn leikmanna má t.d. leika
í skóm merktum framleiðanda
nema greitt sé fyrir það stórfé
— ef ekki, þá eru hvítu rendurn-
ar einfaldlega fjarlægðar af
skónum.