Morgunblaðið - 20.09.1986, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
5
fljps fWiWWi PRMMP *
tSEMIHiSnil ^ * ~>C 1 • 1 1 1 • //
spSS! »»Synir ao þeir eru hræddir
— segir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2
■■■£
M| «1|
■■■■!
Stöð 2 er farin að senda út stillimynd. Hún lítur svona út.
„MÉR finnst þetta í hæsta lagi
neyðarlegt fyrir Ríkisútvarp-
ið-sjónvarp að ætla að fara að
færa sinn fréttatíma um
hálftíma, á þann sama tíma
og við hjá Stöð 2 ætluðum að
hafa okkar aðalfréttatíma,“
sagði Páll Magnússon, frétta-
stjóri Stöðvar 2, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Þessi ákvörðun Utvarpsráðs
sýnir að þeir eru hræddir við
okkur, en það er engin hætta á
öðru en við finnum ekki gott
svar við þessu. Maður leggst nú
undir feld yfir helgina og hugsar
upp eitthvað krassandi. Við vor-
Samþykkt útvarpsráðs:
Rás 2 geti sent út
allan sólarhringinn
Á FUNDI útvarpsráðs í gær
var samþykkt sú tillaga Eiðs
Guðnasonar þess efnis að fela
útvarpssljóra að hefja undir-
búning er miði að því að unnt
verði að útvarpa allan sólar-
hringinn á rás 2.
Þá samþykkti ráðið að lengja
dagskrá rásar 2 frá og með nk.
mánudegi þannig að útvarpað
verði milli kl. 12.00 og 14.00 alla
daga nema sunnudaga, en hingað
til hafa rásimar verið samtengd-
ar á þessum tíma og því hlé á
dagskrá Rásar 2. Morgunþætti
mun sem fyrr ljúka kl. 12.00 á
hádegi og við mun taka lítt kynnt
tónlist og fréttir verða samtengd-
ar kl. 12.20. Bæði leiknar og
lesnar auglýsingar verða fluttar
á þessum tíma. Kl. 13.00 hefst
svo eftirmiðdagsdagskráin, í stað
kl. 14.00, eins og verið hefur.
Þorgeir Ástvaldsson, dag-
skrárstjóri Rásar 2, sagði á fundi
með blaðamönnum í gær að þess-
ar breytingar væru til komnar
vegna samkeppni fyrst og fremst
og væri tímalengd útsendingar
afar mikilvægt atriði í þeim efn-
um bara rétt í þessu að heyra
af þessum áætlunum sjónvarps-
ins,“ sagði Páll um miðjan dag
í gær, „svo okkur hefur ekki enn
gefíst tími til að funda um mál-
ið.“
Páll sagðist ekki vita að svo
stöddu til hvaða ráða yrði gripið,
en auðvitað kæmi það vel til
greina að halda sínu striki og
hafa aðalfréttatímann kl. 19.30
eins og ákveðið hafði verið í upp-
hafi þrátt fyrir þessa ákvörðun
útvarpsráðs. „Þá munu a.m.k.
báðar fréttastofumar byrja
hlaupið á sama stað og það verð-
ur bara að koma í ljós hver
sigrar. Slagurinn er sem sé haf-
sagði Páll að lokum.
mn.
Bylgjan útvarpar
allan sólar-
hringinn um helgar
FORRÁÐAMENN hinnar nýju útvarpsstöðvar, Bylgjunnar, hafa
ákveðið að útvarpað verði alian sólarhringinn um helgar. Verður
þá stanslaus dagskrá frá kl. 6.00 á föstudagsmorgnum fram til 24.00
á sunnudagskvöldum.
um. „Samkeppnin er fyrst og
fremst hér á höfuðborgarsvæð-
inu, en við hjá Ríkisútvarpinu
megum ekki gleyma því að við
höfum 40% þjóðarinnar úti á
landsbyggðinni sem okkur ber
skylda að sinna enda hefur rás 2
nú yfir að ráða 38 sendum
víðsvegar um landið. Við megum
samt ekki ijúka upp til handa og
fóta nú allt í einu, heldur verður
að grandskoða kostnaðaráætlan-
ir og vega og meta hveiju sinni
hvaða breytingar munu best
koma að gagni.“
Einar Sigurðsson, útvaipsstjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hugmyndin í upphafi hefði verið
að útvarpa alla daga vikunnar allan
sólarhringinn og því væri nú verið
að fylgja þeirri ákvörðun eftir. „Við
höfum marglýst því yfir að við
hygðumst útvarpa alla sólarhringa
og geri ég mér vonir um að svo
geti orðið fyrir áramót. Við ætlum
að byija nú um helgar og sjá svo
til hvernig það reynist, en til okkar
hafa borist margar óskir um að svo
verði.“
Einar sagði að næturútvarpið,
sem verið hefði á dagskránni und-
anfarið til kl. 4.00 á morgnana,
hefði mælst mjög vel fyrir. Hug-
myndin er að frá 4.00 til 9.00 á
morgnana verði leikin tónlist af
rólegu nótunum og eftir það verði
aðeins farið út í hressari tónlist.
Einar sagði að óskir hefðu borist
viða að, sérstaklega frá fólki, sem
stundaði vaktavinnu. Þetta væri því
liður í að uppfylla óskir þeirra.
Um lengingu dagskrár rásar 2
sagði hann að sér þætti þetta eðli-
leg Viðbrögð af hálfu Ríkisútvarps-
ins. „Stofnun rásar 2 á sínum tíma
voru viðbrögð við dagskrá okkar.
Við munum halda áfram ótrauðir
og hef ég raunar trú á því að dag-
skrá rásarinnar muni halda áfram
að sveigjast að okkar.“
Einar vildi taka það fram, að
lenging dagskiúr Bylgjunnar væri
á engan hátt viðbrögð við lengingu
rásar 2, heldur hefði þetta ávallt
verið áformað. „Spurningin um það
hvenær Bylgjan bytjar að útvarpa
allan sólarhringinn alla vikuna er
ekki spuming um hvort, heldur
hvenær. Við verðum hins vegar að
fara þessa leið í áföngum enda fáum
við engin afnotagjöld," sagði Einar
Sigurðsson að lokum.
GE/R í 5. SÆT/Ð
Á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna árið 1981, var
Geir H. Haarde, hagfræðingur, einróma kjörinn formaður.
Slík samstaða um formannsefni hafði ekki náðst í hálfan
annan áratug.
TIL STJÓRNMÁLALEGRAR FORYSTU
KJÓSUM HANN í 5. SÆTI.
í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
í REYKJAVlK 18. OKTÓBER.
Þegar fjármálaráðherra fékk efnahagsmálanefnd Sjálfstæðis-
flokksins það verkefni 1983 að benda á mann til að gegna
stöðu aðstoðarmanns ráðherra, varð Geir H. Haarde
einróma fyrir valinu.
Hann hefur notið ótvíræðs trausts og virðingar samherja
sinna og tveggja fjármálaráðherra.
NÚ VEUUM VIÐ GEIR H. HAARDE
Stuðningsmenn
Skrifstofa stuöningsmanna Geirs H. Haarde er opin
alla daga frá kl. 14-21 aðTúngötu 6, símar 12544 og 12548.