Morgunblaðið - 20.09.1986, Blaðsíða 13
MGRGÚMBLAÐÍÐ, LÁUGARDAGUR 20. ÖH>TEMBER>Í986
13
svarandi, sá þriðji er full langtir
enda varð raunin sú að hann var
mest notaður, sá fjórði er aðeins
fyrir léttan akstur og meiri hraða.
Hlykkjóttur vegurinn leyfir ekki
mikinn hraða, en reynir þeim mun
meira á stýri og fjöðrun. Stýrið er
hárnákvæmt, enda ekki nema þrír
og hálfur snúningur borð í borð.
Því er auðvelt að aka krókótta vegi
og að snúast innanbæjar og ekki
er þungt að snúa stýrinu þrátt fyr-
ir næmi þess.
Fjöðrunin er einstök! Á einhvern
hátt hefur snjöllum mönnum hjá
Citroén tekist að gera hana lunga-
mjúka og um leið hæfa til að taka
við öllum ójöfnum af fullri einurð.
Í beygjum leggst AX-inn mjög lítið
og hagar sér á allan hátt eins og
þeir bílar sem sérstaklega eru gerð-
AX 11 TRE þá tilfinningu að ekið
væri þægilegum og öruggum bíl.
Þó eru nokkur atriði sem þarf að
lagfæra áður en hann yrði seldur
hér á landi og er það vegna hinna
sérstöku aðstæðna sem hér eru og
fínnast vart annars staðar. Þar á
ég við veður að íslenskum hætti
með láréttu regni og skafrennings-
bylgjum. Loka þarf opum sem eru
úr hjólaskálum inn í vélarrúmið og
vegna steinkasts og aurbleytu á
malarvegum okkar þarf að veija
nokkra hluta undirvagnsins betur.
Það ætti ekki að vera erfiðleikum
bundið, enda nú þegar gert á minni
Citroén-bílunum, t.d. að setja
hlífðarpönnu undir bensíntankinn,
sem á AX er staðsettur framan við
afturöxulinn af öryggisástæðum og
er úr sterku plastefni.
Framfjaðra- og hjólabúnaður í
AX. MacPherson-gerðin er lögð
til grundvallar, gúmmípúðar
einangra hljóð mjög vel. Takið
eftir hve stýrismaskínan er of-
arlega, það sparar pláss!
Afturhjólunum er þannig kom-
ið fyrir. Láréttur fjöðrun-
arbúnaður og demparar spara
heilmikið pláss í farangurs-
rými.
ir til snaraksturs. Hann fjaðrar
sjálfstætt á hveiju hjóli og þau eru
í ofanálag með nýjum dekkjum, sem
sérstaklega voru hönnuð hjá Mie-
helin fyrir þennan bíl og gera hann
enn stöðugri í beygjum.
Rými er með besta móti, þó má
finna að því að fótarými er ekki
nóg fyrir langfætta ökuþóra og aft-
urí er lofthæð fulllítil fyrir hávaxna.
En nýting annars rýmis er eins og
best getur orðið, sérstaklega eru
smámunageymslur margar og góð-
ar.
Útsýni er mjög gott að einu at-
riði undanskildu: innispegillinn
skyggir óþægilega á til hægri.
Oryggisbúnaður er m.a. fólginn
í sjálfri hönnun boddýsins, árekstr-
artilraunir sýna að AX-inn fer fram
úr þeim kröfum sem gerðar eru um
bíla af þessari stærð. Beltin að
framan eru í sætunum og þarf því
ekki að stilla þau eða verða fyrir
óþægindum þótt sætin séu færð.
Hemlarnir eru næmir og vandalaust
að stöðva eða hægja ferðina. Þó
fannst mér að full mikið álag væri
á framhjólunum þegar bremsað er
á miklum hraða.
Þægilegiir og- örug-gnr
Að öllu samanlögðu gaf Citroén
Innréttingin í AX er hagnýt og
nýtir rýmið vel. Allt framstykk-
ið er smíðað í heilu lagi til að
fá aukinn styrk og betri hljóð-
einangrun. I hurðum er pláss
fyrir hitabrúsa eða annað af
flöskukyni.
Citroen AX 14
AX 14 er að grunni til sami
bíllinn og hinir minni, vélin er
stærri og meira er í búnað hans
lagt. Þar má nefna fleiri þægindi
innandyra, styrkari fjöðrnn, tvo úti-
spegla o.fl.
AX 14 er mun snarpari en
11-gerðin og fimm gíra kassinn er
með góðum hlutföllum og ef á reyn-
ir geta tveir þeir fyrstu komið
bílnum í hundraðið á rétt rúmum
10 sekúndum, með tvo menn innan-
borðs! Aksturseiginleikar eru betri
og stýrið er næmara en í 11-gerð-
inni. I heild má segja að þar sem
munar á bílunum, er 14-gerðin með
afgerandi yfirburði.
Niðurstööur
Markmið Citroén var að skapa
hagkvæman og fullkominn smábíl
sem höfðar til nýrra og yngri kaup-
enda án þess að fæla frá hina sem
eldri eru. Bíllinn varð að vera ódýr
og spameytinn, aflmikill og liðug-
ur, rúmgóður og lítill! Allt er þetta
hálf þversagnakennt, en — ekki
verður betur séð en að sérlega vel
hafi til tekist. Bíllinn er laglegur
og straumlínulagaður (loftmót-
stöðustuðullinn er Cd. 0,31), sér-
lega lipur í akstri og þægilegur.
Þeir gallar sem fram komu í
reynsluakstri tveggja gerða af AX
eru fremur smáir í sniðum og létt-
vægir, kostirnir vega hinsvegar
þungt og ber þar hæst afburðagóða
fjöðrun, sem er reyndar ekki hin
vel þekkta Citroén-vökvafjöðrun,
heldur gormar að framan og vind-
ingsstrengur að aftan. Þessi fjöðmn
hefur það fram yfir vökvafjöðrunina
í t.d. GS, að fara betur í smáum
og skörpum holum og er að öðru
leyti ekki síðri eiginleikum búin.
Nýjar framleiðsluaðferðir og al-
gjörlega ný hönnun hafa skilað
Citroén ríkulegum árangri. AX er
einn skemmtilegasti smábíllinn sem
í boði er í dag. Nú er aðeins eftir
að vita hvenær hann kemur hingað
á markað og hvort verðið verður
við hæfi.
Helstu kostir: Afburðagóð fjöðr-
un, góðir aksturseiginleikar, spar-
neytni, góð nýting rýmis, gott
vélarafl.
Helstu gallar: Innispegill skyggir
á útsýni, fótaiými ökumanns full
þröngt.
Steypuskemmd-
ir í útveggjum
MIKLAR steypuskemmdir hafa
komið fram á útveggjum menn-
ingarmiðstöðvarinnar við Gerðu-
berg í Breiðholti og eru viðgerðir
hafnar.
Að sögn Guðmundar Pálma
Kristinssonar deildarverkfræðings
á byggingardeild Reykjavíkurborg-
ar, stafa skemmdimar af lélegri
steypu á þeim árunum, sem húsið
var í byggingu. „Þetta er óeðlilega
mikið viðhald á nýju húsi,“ sagði
Guðmundur en sex ár eru liðin frá
því húsið var fyrst tekið í notkun
og í fýrra opnaði Borgarbókasafnið
útibú í hluta hússins.
Á íjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir þetta ár er gert ráð fyrir 1,8
miljjón króna I viðgerð á húsinu.
Verkið var boðið út og næstlægsta
tilboði, frá Semtak sf., tekið. Verk-
leg ráðgjöf er í höndum Línuhönn-
unar hf.
BLÓMASAL
ferskum og nýtilhöföum
Nýr og spennandi fiaust sérréttaseðill
auk annarra úrvals málsverða.
alskyns
grcenmeti og brauðum.
/
SigurðurÞ. Guðmundsson leikur hugljúflög
á píanóið.
H uggulegt kvöld í Blómasal
fiennar vegna.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIÐA fit HÓTEL