Morgunblaðið - 20.09.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 20.09.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986 31 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Sæll Gunnlaugur. Hvað getur þú sagt mér um stjörnukort mitt? Ég er fædd kl. 14.30, 3. júlí 1953 á Vest- íjörðum. Þakka þér fyrir." Svar Þú hefur Sól, Mars, Úranus og Miðhimin í Ki-abba, Tungl í Hrút, Merkúr í Ljóni, Venus í Nauti og Vog Rísandi. Tilfinningavera Margar plánetur í Krabba tákna að þú ert mikil tilfinn- ingavera. Þú ert að mörgu leyti íhaldssöm og þráir ör- yggi og varanleika en staða Úranusar á Miðhimni, ná- lægt Mars, táknar að ekki er víst að þér takist alltaf að skapa þér frið og ró. Úr- anusi fylgir þörf fyrir spennu, frelsi og nýjungar. Sól í samstöðu við Mars táknar að þú átt auðvelt með að beita þér í starfi, að vilji þinn og framkvæmdaorka starfa i einingu. Einlœg Tungl í Hrút táknar að til- finningar þínar eru opnar og einlægar. Þú ert hrein og bein og átt til að vera óþolin- móð og fljótfær. I daglegu lífi þarft þú töluverða hreyf- ingu og fjölbreytileika. Það að hafa Sól í Krabba og Tungl í Hrút gefur til kynna að þú sért í aðra röndina varkár og jafnvel feimin (Krabbi) en í hina óþolinmóð og ákveðin (Hrútur). Eldfim Krabbinn er viðkvæmur en Hrúturinn kappsfullur og snöggur upp á lagið. Þú get- ur því átt til að ijúka upp af litlu tilefni. Sem Krabbi lætur þú eitt óhugsað orð særa þig, dregur þig í skel, eða ef Hrúturinn nær yfir- höndina, ákveður að sókn sé besta vömin og ræðst á þann sem hefur sært þig. Stolt Merkúr í Ljóni táknar að þú ert stolt í hugsun og mótar þér ákveðnar skoðanir sem þú ert lítið fyrir að fela. Staða Merkúrs á Miðhimni táknar að þú hefur hæfileika til að starfa að málum sem hafa með viðskipti að gera, eða beitingu hugsunar og vitsmuna. Upplýsingamiðl- un, skrifstofustörf, mennta- mál, tungumál o.þ.h. Vilt þœgindi Venus í Nauti táknar að þú ert íhaldssöm í ást og vin- áttu, vilt varanleika og t,'yKR''yn(ii. Þú laðast að hlutum sem eru náttúrulegir og ekta, og kannt vel að meta góðan mat og þægindi. Réttlát Vog Rísandi táknar að þú leggur áherslu á að vera réttlát í mannlegum sam- skiptum og fáguð og kurteis í fasi og framkomu. Þú ert að öllu jöfnu ljúf og þægileg í umgengni, það er að segja þegar Krabbinn lætur ekki særa sig og Hrúturinn rýkur upp. Satúrnus Rísandi tákn- ar að þú leitast við að vera öguð og yfirveguð og hefur sterka ábyrgðarkennd. Hon- um getur hins vegar fylgt sú hætta að þú gerir of mikl- ar kröfur til þín og bælir sjálfa þig niður. Skapstór Að öðru leyti má segja að þú sért tilfinningarík og skapstór. Þú hefur gott minni og átt auðveit með að tjá þig. Staða margra plán- eta fyrir ofan sjóndeildar- hring táknar að starf út í þjóðfélaginu skiptir þig miklu. GRETTIR TOMMI OG JENNI LJOSKA HANN VEgPOR A MOKG- UHVef&ARFUNPUM ALLA VÁ, MAÐOR.' HEIL HÆTR)- LAOS VIKA/ FERDINAND O n M Á 1 1/ oMAFOLK MERE'S TME UIORLP UdAR I FLVINS ACE MI6U OVER N0 MAN'5 LANP... UERE'S TME UJORLP WARI FLVIN6 ACE UI6M OVER NO PER50N’5 LANP... Hér er flugkappinn úr fyrra stríði hátt yfir einsk- is manns landi... Þú heldur vist að þú sért að fljúga yfir einskis manns landi, eða hvað? Jæja, af hverju ekki engr- ar konu landi?! Hér er flugkappinn úr fyrra stríði að fljúga yfir engrar persónu landi... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Norður hefði getað reynt við þijú griind með þremur spiiðum yfir striigli makkers á þriðja sagnstigi, en hann valdi að passa. Vestur gefur: A/V á hættu. Norður ♦ G53 V 753 ♦ DG4 ♦ Á1074 Suður ♦ D ¥K62 ♦ Á53 ♦ KD9632 Vestur Nordur Austur Suður Vcstur Norður Austur Sudur 1 spaði Pass 2 spaðar 3 lauf Pass Pass Pass Það þarf býsna nákvæma vörn til að hnekkja þremur griindum, því ekki má gefa suðri níunda slaginn á spaða eða hjartakóng. En hér eru það þijú lauf sem eru til umræðu. Sá samningur hangir á bláþræði. Vestur lyftir spaðaás og skiptir svo yfir í tígul. Taktu við. Hættan í spilinu er augljós: að tapa þremur slögum á hjarta, sem er einum of mikið þegar spaða- og tígulslagimir bætast við. Nú er það ekki sjálfgefið að austur eigi tígulkónginn þótt vestur skipti yfir í tíuna. En það verður að teljast líklegt. ()g ef við gefum okkur að austur eigi tígulkónginn, þá er ljóst að vest- ur á hjartaásinn. Sem er alvar- legt mál, en þó viðráðanlegt — það er a segja, ef tígultían er gefin! Norður ♦ G53 V 753 ♦ DG4 ♦ Á1074 Vestur ♦ ÁK1042 VÁG8 ♦ 10962 ♦ 5 Suður Austur ♦ 9876 VD1094 ♦ K87 ♦ G8 ♦ D VK62 ♦ Á53 ♦ KD9632 Tilgangurinn með því er að koma í veg fyrir að austur kom- ist inn í spilið til að spila hjarta í gegnum kónginn. Vestur spilar áfram tígli og þú drepur kóng austurs með ás. Tekur svo tvisv- ar tromp og stingur spaða. Ferð síðan inn á blindan á tíguldrottn- ingu, spilar út spaðagosa, hendir hjaita heima og leggur upp kot- roskinn. Vestur verður að spila frá hjartaásnum eða út í tvöfalda eyðu. Umsjón Margeir Pétursson Á World Open-mótinu í Philadelphia í Bandaríkjunum í sumar kom þessi staða upp í skák hins kunna bandaríska stórmeistara Yasser Seirawan, sem hafði hvítt og átti leik, og Boris Kogan. 39. Bxe6+! og svartur gafst upp, því ef hann þiggur biskups- fómina með 39. — Bxe6 kemur laglcgur leikur: 40. Df8+! — Kxf8, 41. Rxe6+ - Ke7, 42. Rxc7 — Kd6, 43. Re8+ og svart- ur verður tveimur peðum undir í riddaraendatafli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.