Morgunblaðið - 20.09.1986, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
HVAÐ
ERAD
GERAST
UM
VEGN A tæknilegra mistaka birtist í föstudagsblaðinu
dáikurinn: „Hvað er að gerast um helgina" óbreyttur frá
því í síðustu viku. Morgunblaðið biður þá sem orðið hafa
fyrir óþægindum af þessum sökum, velvirðingar á þessum
mistökum og birtist hér dálkurinn í sinni réttu mynd.
FÉLAGSLÍF
KFUMog K:
Hvatningar-
samkoma
Haldin verður hvatningarsam-
koma í upphafi vetrarstarfs, sunnu-
daginn 21. september klukkan
20.30, á Amtmannsstíg 25. Þórunn
Elídóttir, æskulýðsfulltrúi, flytur upp-
hafsorð og bæn. Sagðar verða
fréttir af starfinu, kór KFUM og K
syngur og leikið verður á píanó.
Ennfremur mun Málfríður Finn-
bogadóttir, formaður KFUM og K,
flytja hugleiðingu. Mikill almennur
söngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
MENNING
Þrídrangur:
Torfhleðslusýning
Torfhleðslusýningin FOLD ’86
verður formlega opnuð laugardag-
inn 20. september næstkomandi
klukkann 15.00 í Vatnsmýrinni
sunnan við Norræna húsið. Opnun-
artímar sýningarinnar eru frá kl.
15-21.00 alla daga. Henni lýkur 5.
október nk.
FOLD '86 eróðurtil islenskrar
menningar að fornu og nýju og
byggir á fjölbreyttri dagskrá. Dans-
aðir verða íslenskir þjóðdansar,
kveðnar rímur, og farið með Ijóð og
kvæðí. Tekist verður á í islenskri
glímu og kynntar nýjungar í bar-
dagalist. Drukkið verðurminni
goðanna og blótað til árs og friðar.
Varðeldar verða tendraðir á sýning-
arsvæðinu og seiður framinn að
fornum sið. Jafnframt verður galaður
rúnagaldur, harmónikkutónlist leik-
in, sungið um álfa og fjallað um
dularmögn íslands.
Á sýningarsvæðinu sjálfu má sjá
nýstárlegar torfbyggingar með
hvolfþökum og myndverk úr nátt-
úrulegu efni. Boðið verður upp á
veitingar, rúnasteina, og handunn-
inn barmmerki til sölu. Leikhóparnir
Veit mamma hvað ég vil? og Kram-
húsið verða með uppákomur,
dansa, leiki og tónlist. Einnig verður
leikið steinaspil, haldin tehátíð og
margt fleira gert til skemmtunar og
fróðleiks.
Aðgangur á sýninguna er ókeyp-
is.
TÓNLIST
Skíðaskálinn í
Hveradölum:
Haukur Morthens
og félagar
i Skíðaskálanum í Hveradölum
munu Haukur Morthens og félagar
leika á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldum út september-
mánuð.
Vestmannaeyjar:
Eyjakvöld
Á haustmánuðum í fyrra byrjaði
Hótel Gestgjafinn með hin svoköll-
uðu Eyjakvöld, skemmtanir þarsem
snæddur var matur frá Vestmanna-
eyjum og sungin Eyjalög.
í ár verður þessu haldið áfram.
Um skemmtiatriði sjá Runólfur Dag-
bjartsson leikari, Helgi Hermanns-
son söngvari, Jónas Þ. Dagbjarts-
son fiðluleikari, Ásta Ólafsdóttir,
Ásdís Þórarinsdóttir og Jónas Þórir
hljómborðsleíkari.
Gestir eru beðnir að mæta tíman-
lega því að boröhald hefst kl. 20.30
og skemmtiatriðin kl. 21.30.
íslenska óperan:
II Trovatore
íslenska óperan hefur vetrarstarf-
ið með sýningu á óperunni II
Trovatore eftir Verdi, sem frumsýnd
var í apríl sl. Voru þá 18 sýningar
fyrirfullu húsi. IITrovatoreverður
sýnd í íslensku óperunni á laugar-
dagskvöld kl. 20 og á Blönduósi,
sunnudagskvöld, klukkann 20.00. í
aðalhlutverkum eru Kristinn Sig-
mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Garðar
Cortes, Viðar Gunnarsson og Elísa-
bet Waage.
SÖFN
Sjóminjasafnið:
Sjóminjasafn íslandsverðuropið
í sumar, þriðjudaga til sunnudaga,
frá kl. 14 til 18. Safnið er til húsa á
Vesturgötu 8 í Hafnarfirði.
Árbæjarsafn:
Opið um helgina
Árbæjarsafn er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.30 til kl.
18.
Sædýrasafnið:
Dýrin mfn stór
ogsmá
Sædýrasafnið verður opiö um
helgina eins og aðra daga frá kl.
10 tiM 9. Meðal þess sem er til
sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn,
apar, kindur og fjöldi annarra dýra,
stórra og smárra.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safn og garður
Listasafn Einars Jónssonar er
opið alla laugardaga og sunnudaga
13.30 til 16. Höggmyndagarðurinn
er opinn daglega frá kl. 11 til 17.
Mokkakaffi:
Sýning á prjóna-
flíkum
Ólöf Guðrún Sigurðardóttir (Lóa)
hefur opnað sýningu á sérhönnuð-
um prjónaflíkum á Mokkakaffi við
Skólavörðustíg f Reykjavik. Sýningin
stendurtil næstu mánaðamóta.
Listasafn ASÍ:
„World Press
Photo ’86“
í Listasafni ASÍ á Grensásvegi
16, efstu hæð, stendur nú yfir frétta-
Ijósmyndasýningin „World Press
Photo '86". Á sýningunni eru um
180 Ijósmyndir sem hlutu verðlaun
í alþjóðlegri samkeppni þlaðaljós-
myndara. Sýningin eropin frá kl.
16 til 20 virka daga og 14 til 22 um
helgar. Sýningunni lýkur 21. sept-
ember.
Kaffiveitingar kl. 14 til 18 um
helgar.
MYNDLIST
Hallgerður:
Hallgrímur sýnir
Hallgrímur Helgason sýnir um
þessar mundir í sýningarsalnum
Hallgerði, Galleri Langbrók á Bók-
hlöðustíg 2 I Reykjavík.
Hallgrímur fæddist 1959 en hóf
ekki að mála fyrr en á miðju árinu
1983, eftir skamma viðdvöl í skól-
um, hér heima og erlendis.
Þetta er níunda einkasýning
Hallgríms en einnig hefur hann tek-
ið þátt I nokkrum samsýningum,
m.a. í New York.
Síðastliðinn vetur dvaldi hann I
Bandaríkjunum, en nú i sumar hefur
hann stundað list sína hér heima
og er afrakstur sumarsins nú til
sýnis, um 30 málverk.
Sýningin er opin frá kl. 12 til 18
virka daga og 14 til 22 um helgar.
Henni lýkur 21. september, en þá
heldur Hallgrímur aftur til Banda-
ríkjanna.
Gallerí Gangskör
Jón Þór Gísla-
son sýnir
Laugardaginn 20. september
klukkann 14.00verðuropnuðsýn-
ing á málverkum Jóns Þórs Gísla-
sonar I Gallerí Gangskör á
Amtmannsstíg 1.
Jón Þór lauk námi frá Myndlista-
og handíöaskóla íslands 1981 og
hefur síðan unnið sjálfstætt að list-
sköpun sinni. Hann hefur haldið
tvær einkasýningar og tekið þátt I
samsýningum. Sýningin verðuropin
fráklukkann 12-18.00 virka daga
og klukkann 14-18.00 um helgar.
Sýningunni Iýkur2. október.
Bólvirkið:
Saga og ættfræði
Á annarri hæð I húsi verslunar-
innar Geysis, Vesturgötu 1, stendur
nú yfir sýning á vegum Bólvirkisins
á gömlum Ijósmyndum úr Grófinni.
Þá er sýnt líkan sem 10 ára nemend-
ur úr Melaskóla gerðu I tilefni 40
ára afmælis skólans og 200 ára
afmælis Reykjavíkur.
Einnig er þar kynning á bókum
um sögu og ættfræði Reykjavíkur
sem væntanlegar eru á næstunni.
Sýningin er opin frá kl. 14 til 18
virka daga.
Gallerí Borg:
Harpa Björns-
dóttir sýnir
Harpa Björnsdóttir heldur nú
sýna fyrstu einkasýningu á málverk-
um í Gallerí Borg við Austurvöll.
Þetta er fyrsta einkasýningin sem
haldin er í galleríinu á þessu hausti.
Harpa Björnsdóttirfæddistárið
1955 og lauk námi frá nýlistadeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árið 1981. Hún málar og vinnur i
grafík.
Sýning Hörpu samanstendur af
myndum unnum með blandaðri
tækni. Harpa hefur sýnt hér heima
og erlendis undanfarin ár, síöast i
vor í Gallery Gerly í Kaupmanna-
höfn.
Sýningin stendur til mánaða-
móta.
Gallerí íslensk list:
Sumarsýning List-
málarafélagsins
Nú stendur yfir sumarsýning List-
málarafélagsins í Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17. Það eru 15 félagar
Listmálarafélagsins sem sýna þar
30 málverk. Eftirtaldirmálarareiga
verk á sýningunni: Björn Birnir, Bragi
Ásgeirsson, EinarG. Baldvinsson,
Einar Hákonarson, Einar Þorláks-
son, Guðmunda Andrésdóttir,
GunnlaugurSt. Gislason, Hafsteinn
Austmann, HrólfurSigurðsson, Jó-
hannes Geir, Jóhannes Jóhannes-
son, Sigurður Sigurðsson, Steinþór
Sigurðsson, Valtýr Pétursson og
Pétur Már. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 9 til 17 en lokuö um
helgar.
Hveragerði:
Myndlistarsýning
íEden
Guðmundur Ómar Svavarsson
sýnir 28 verk í Eden, meöal annars
mörg vatnslitaverk. Sýningin er opin
alla daga á opnunartíma Eden fram
til mánudagsins 22. september.
Norræna húsið:
UlfTrotzigsýnir
Sænski myndlistarmaðurinn Ulf
Trotzig sýnir nú málverk og grafík-
verk í sýningarsölum og anddyri
Norræna hússins. Sýningin er opin
daglega kl. 14 til 19 í sýningarsölum
og 9 til 19 í anddyri, nema sunnu-
daga frá 12 til 19. Sýningunni lýkur
21. september.
ísafjörður:
Daði Guðbjörnsson
sýnir
Nú stendur yfir í Slunkariki á
ísafirði sýning á verkum Daða Guð-
björnssonar. Á sýningunni eru bæði
málverk og grafíkmyndir, allar unnar
á síðustu tveimur árum.
Daði sýndi áður á ísafiröi árið
1983 og hefur auk þess tekið þátt
í ýmsum samsýningum og haldið
einkasýningar í Reykjavík og víðar.
DANS
Dansstúdíó Sóleyjar:
Danshópur valinn
Laugardaginn 20. september
klukkann 14 mun Dansstúdió Sól-
eyjar, Sigtúni 9, velja sér tólf manna
danshóp sem síðan mun æfa sam-
an og koma fram fyrir hönd
Dansstúdíósins í vetur.
Allir sem eru eldri en 17 ára og
hafa áhuga á þátttoku eru hvattir
til að mæta og sýna hvað í þeim
býr. Mikil reynsla er ekki skilyrði.
Dómnefndina munu skipa þau Shir-
lene Blake, SóleyJóhannsdóttirog
Cornelíus Carter.
Þjálfari hópsins verður Cornelius
Carter.
Þýskri samsýningu
frestað
Af ófyrirsjáanlegum orsökum hef-
ur opnun sýningar þýsku málaranna
Volkers Nikel og Wolfgangs Prel-
owski í Nýlistasafninu verið frestað
um eina viku og veröur nánar skýrt
frá því um næstu helgi.