Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 15
aser jiaaMagaa .e huoaoutæhh*! .aiaAjaviunHOM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986 ¥5 FRAKKASTÍG 6A, 121 RPrXJAVÍK, SÍMh 91-25188 Ogsvpkom KO'1' OS^ÓPP Jónas Jónasson Bók um baráttu við alkohólisma og það góða fólk sem þorði að segja frá. Bók sem á erindi til allra þeirra sem láta sig mann- leg örlög einhverju varða.Einlægni og hispursleysi þeirra,sem hér segja frá.snerta tilfinningar allra þeirra sem finna þörf til að lifa betra lífi-í sátt við sjálfa sig og aðra. „Slíkar bækur stækka vonandi yfirráðasvæði vonar- innar í blautum og köldum heimi“Árni Bergm. Þjóðv. „Lífsreynsla sem er áhugaverð aflestrar“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn „Jónas Jónasson hefur skrifað áhrifaríka bók“ Elías Snæland Jónsson, DV Verð kr. 1.588.00 Ólafur Gunnarsson „Það er óhætt að mæla með þessari bók“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn Dag nokkurn ákveður Össur-Mamma að bjarga jörðinni en alls staðar liggur hið illa í leyni og ekki heiglum hent að sjá við þvf. „í sögunni er fjallað um hluti sem eru ekkert hégómamál, tilvist Guðs, líf og dauða, endi veraldar. Til þess að fjalla um þessi alvarlegu mál notar höfunaur óspart fantasiu og húmor, enda er sagan bæði fynain og full af hugarflugi." Margrét Eggertsdóttir, Þjóðviljinn „Þessi sérkennilega blanda látleysis og fantasíu verkar sterkt á lesanda og hrífur hann með inn í hugarheim þeirra Stóra Össurar og ólafs.“ ,, Gunnlaugur Astgeirsson, HP Verð kr. 1.375.00 5 ^ U>»> Minningar Þuríðar Pálsdóttur igai Jónína Michaelsdóttir skráði Ml . ■ Lífssaga Bjarnfríðar Leósdóttur Elísabet Þorgeirsdóttir skráði Bísibet Þ»*jjLnrsdóttir skráði Ævi Þuríðar Pálsdóttur er ævintýri líkust. Hún er komin af einni merkustu tónlistarfjölskyldu á íslandi og hefur komið meira við sögu tónlistar hér á landi en flestir aðrir síðastliðin fjörutíu ár. Hún er meðal brautryðjenda á íslensku óperusviði og hefur átt ómældan þátt í að kynna löndum sínum sönglist innlendra og erlendra meistara. Saga Þuríðar er ekki aðeins tengd tónlist. Hún hefur starfað ötullega að félagsmálum og er vinsæll fyrirlesari. Á síðustu árum hefur Þuríður orðið fyrst manna til að ræða hispurslaust og af þekkingu um breytinga- skeið kvenna. Ekki er ofmælt að hvar sem Þuríður kemur við sögu, fylgir hugur máli. Forlagið gefur einnig út plötu með söng Þuríðar Pálsdóttur. Verð kr. 1.988.00 Bjarnfríður Leósdóttir er þjóðkunn baráttukona. í aldarfjórðung tók hún þátt í verkalýðsbaráttu á Akranesi og var félagi í Alþýðubandalag- inu frá stofnun þess. Bjarnfríður kvaddi flokkinn á þessu ári, er henni þótti sýnt að honum var þrotið baráttuþrek gegn láglaunastefnu ríkis- stjórnarinnar. Frásögn Bjarnfríðar er opinská og heiðarleg. Lýsing hennar á hlutskipti drykkjumannskonunnar er ein eftirminnilegasta frásögn bókarinnar. Hún segir tæpitungulaust frá baktjaldamakki í verkalýðshreyfingunni og hlífir engum. Að baki alvörunni býr leiftrandi skopskyn, hvort heldur hún segir frá óvæntum ævintýrum áhugaleikara á Akranesi, lýsir hlutskipti þeirra sem tóku út þroska sinn á stríðsárunum eða rifjar upp landleguslagsmál á síldarárunum. Verð kr. 1.888.00 Doris Lessing l’""liiu'ii"» Alice Walker Ramón J. Sender SALUMESSA VHK <a®iSKtJM SVUTVWANNl ihmónXScndcr „Hér er sögð mögnuð saga af mikilli kúnst“ , Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðið Mary, hvít kona í Rhódesíu, hafnar í gæfusnauðu hjónabandi með bónda nokkrum. Hún hefur andúð á lífinu í sveitinni og lítur niður á þá innfæddu. Af ofstækisfullri hörku snýst hún gegn svörtum þjóni sínum, uns valdið snýst að lokum í höndum hennar... Meistaraleg saga sem vitnar um djúpan mann- skilning og tilfinningahita hins mikla rithöfundar. Birgir Sigurðsson þýðir söguna. Verð kr. 1.087.00 „Grípur lesanda sinn og heldur honum föst- urn allt til loka.“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn Þótt Celie sé varla læs eða skrifandi, sest hún niður og skrifar Guði bréf. Hann er sá eini sem Celie treystir. Hér á jörðu hefur hún engu að treysta nema þeirri visku sem blundar innra með henni. En smám saman lærir Celie að berjast fyrir lífi sínu og öðlast kjark til að hlæja, ærslast og loks - að elska. Purpuraliturinn er saga um gleðina, sársaukann og ástina - saga sem höfðar til dýpstu tilfinninga lesandans. Ólöf Eldjárn þýðir söguna. Verð kr. 1.088.00 innb. - kr. 594.00 kilja „Besta bók sem ég hef lesið í langan tíma“ Súsanna Svavarsdóttir, Morgunblaðið „Með afbrigðum vönduð saga“Árni Bergmann, Þjóðv Paco er sveitadrengur á Spáni. Barnungur hlýðir hann á kærleiksboðskap prestsins síns um leið og hann horfir á eymd og niðurlægingu sveitunga sinna. Hvar er réttlætið sem guðsmaðurinn boðar? Þegar Paco vex úr grasi ákveður hann að taka réttlætið í sínar hendur. Það á eftir að kosta grimmilegar blóðsúthellingar. Álfrún Gunnlaugsdóttir og Þorgeir Þorgeirsson þýða söguna. Verð kr. 988.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.