Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986 75 minnilegum svörum við árásum andstæðinga sinna. Heill og traustur hugsjónamaður jafnaðarstefnu og réttlætis, maður sem alltaf stóð traustum fótum á staðreyndum raunveruleikans, glöggskyggn og óbifanlegur sem bjarg, þannig lifir Emil Jónsson í huga mínum. Hann skilur eftir sig fagra mynd og minningu. Eg flyt Emil Jónssyni virðingu, kveðju og þökk nú þegar vegimir skilja. Fjölskyldu hans, vinum og vandamönnum sendi ég samúðar- kveðjur. Maðurinn deyr en jafnað- arstefnan og verkin lifa. Þökk sé góðum dreng, farsælum foringja og ötulum umbótamanni í íslensku þjóðfélagi. Minningin um hann hvetur okkur sem eftir lifum til vandaðra verka og hiklausrar sóknar til réttlátara þjóðfélags, þar sem samfélag jafn- aðarmanna verður að veruleika, þar sem auðgildið víkur ásamt einka- hagsmunum og forréttindum, en manngildið situr í öndvegi og ræður ríkjum. Heill, heiður og þökk fylgir Emil Jónssyni yfir móðuna miklu. Hörður Zóphaníasson Emil Jónsson er dáinn. Hann lést á fyrsta sunnudag í aðventu, rétt eftir að kveikt var á fyrsta aðventu- ljósinu. Við hjónin höfðum þekkt Emil lengi, annað okkar frá bamæsku, í hartnær 40 ár, hitt síðan við gift- umst fyrir rúmum 20 árum. Þessi fátæklegu kveðjuorð eru skrifuð í þakklætisskyni. Við viljum þakka þá velvild sem Emil Jónsson og fjölskylda hans á Kirkjuvegi 7 í Hafnarfirði sýndu okkur alltaf og börnum okkar, fyrir stuðning og hlýju sem látin var í té af fullkomnu látleysi. Því að þrátt fyrir allar sínar miklu og verðskuld- uðu mannvirðingar og ábyrgðar- störf sem litið var upp til var Emil jafnan blátt áfram og alþýðlegur. Það var hans góða kona, Guðfínna heitin Sigurðardóttir, líka. En Emil vissi samt vel hver hann var. Hann var vissulega stoltur maður. Og þéttur var hann fyrir, sterkur og þolgóður — traustleikinn í persónu- gervingu. Ometanlegt er að hafa átt slíkan mann að. Og þegar sorgin knýr á hjörtun nú á aðventunni, þá hrannast upp gamlar minningar. Sú var tíðin að farið var til Hafnarfjarðar til þess að halda upp á jólin hjá Emil og Guðfínnu á Kirkjuvegi 7. Jólahaldið fór fram eftir föstum siðum og regl- um. Allir hlutir voru á sínum stað og allt hafði sinn tilgang. Þama var sama gamla jólatréð, klætt á þá vísu sem minnti meira á upp- vaxtarár Emils í Hafnarfírði en hraðneysluþjóðfélag nútímans. Það var gott að halda jól á þessum stað. Hugur Emils Jónssonar stefndi að því að koma á réttlátu þjóðfé- lagi, að bæta kjör lands og lýðs. í þetta verk lagði hann orku sína og hæfíleika. Sérstaklega var honum hugleikinn hagur fólks í Hafnarfírði en þar bjó hann alla ævi ef frá eru talin háskólanámsárin og stuttur starfstími sem verkfræðingur í Danmörku. A jólaföstu 1986 liggur leiðin enn til Hafnarfjarðar. Nú er það til að kveðja Emil með þakklæti fyrir þá birtu sem hann og heimili hans færðu okkur og okkar nánustu. Ljós manns af tagi Emils Jóns- sonar slokknar ekki þótt maðurinn deyi. Það lifír og skín, syrgjandi ættingjum og vinum til hlýju, halds og trausts, og uppvaxandi táp- miklum landslýð til uppörvunar og eftirdæmis. Svava Sigurjónsdóttir, Andri ísaksson Við andlát og útför Emils Jóns- sonar leita á hugann margar minningar frá kynnum okkar og samstarfí um áratuga skeið. Grunn- tónn þeirra er virðing og væntum- þykja vegna þess, sem ég reyndi af honum og sá til hans innan Al- þýðuflokksins, í samstarfí við hann og á opinberum vettvangi. Það er ungum mönnum mikið happ ef þeir fá tækifæri til þess að starfa með og njóta leiðsagnar mikilhæfra manna, sem gegna forystustörfum á ýmsum sviðum. Ég var um margra ára skeið svo lánsamur meðan hann var formaður Alþýðu- flokksins. Það var mér mikill skóli, sem ég hef síðan búið að og notið. Þau árin gegndi hann ýmsum mikil- vægum embættum og öllum á einn og sama veginn. Nú er löngu ljóst, að hann er einhver mesti og mikil- hæfasti forystumaður, sem Al- þýðuflokkurinn hefur nokkru sinni átt og störf hans fyrir alþýðu manna °g þjóðina alla hafa í mörgum efn- um haft úrslitaáhrif á líf hennar og hamingju. Við alþýðuflokks- menn minnumst hans því með þakklátum huga og hljótum ætíð að virða minningu hans. Haustið 1952 var flokksþing Al- þýðuflokksins haldið í Alþýðuhús- inu í Reykjavík. Þungir straumar óánægju fóru um þingið og mikil átök áttu sér stað. Emil Jónsson hafði einróma verið kjörinn forseti þess og hélt öllu í föstum skorðum, þótt mikil ágjöf væri á báða bóga. Málalyktir urðu þær, að Hannibal Valdimarsson var kosinn formaður Alþýðuflokksins í stað Stefáns Jó- hanns Stefánssonar. Vitað er, að þingið gat sætzt og sameinast um Emil sem formann flokksins, en því miður bar það ekki gæfu til þess. í kjölfar þess sigldi löng þrautatíð fyrir Alþýðuflokkinn. Að tveim árum liðnum var Haraldur Guð- mundsson kosinn formaður flokks- ins og síðan tók Emil við flokks- formennskunni árið 1956. Báðir risu þeir sem klettar úr hafinu og voru það bjarg, sem úthafsöldumar brotnuðu á. Til þeirra báru ekki aðeins alþýðuflokksmenn fyllsta traust, heldur nutu þeir trausts og virðingar langt út fyrir raðir flokks- ins. Það var Alþýðuflokknum mikið happ á þessum erfíðu árum að eiga þá að og fá notið hæfíleika þeirra. Haraldur dró sig síðan út úr stjóm- málum eftir langt og farsælt starf. En Emil tók við stýrisveli skútunn- ar og fáum árum síðar hafði honum tekist að leiða Alþýðuflokkinn til öndvegis í stjómmálum þjóðarinnar. Þegar Emil myndaði minnihluta- stjóm sína í desember 1958 urðu straumhvörf í efnahagsmálum og stjómmálum þjóðarinnar. Áður hafði hann þó víða komið við sögu og markað djúp spor; engin leið er að fjalla um það allt í stuttu máli. Á það skal þó minnst að hann var á miðjum fjórða áratugnum formað- ur „Rauðku", þ.e. skipulagsnefndar atvinnumála, sem á margan hátt lagði grundvöll að nýju þjóðfélagi á Islandi, fyrst og fremst í atvinnu- málum. Hann var í forystusveit jafnaðarmanna í Hafnarfirði og átti þar sinn þátt í hverju stórvirkinu á fætur öðm, sem reist var. Og um margra ára skeið sat hann í sátta- nefndum til lausnar á vinnudeilum; í einni þeirra lagði hann fram til- lögu um stofnun atvinnuleysis- fryggingasjóðs, sem átti sinn stóra þátt í lausn þeirra deilú. Það kemur glögglega fram í æviminningum hans, að lagasetningin um atvinnu- leysistryggingamar hefur verið honum hjartfólgið mál, enda mun hún ætíð halda nafni hans á lofti. Allt frá því hún kom til sögunnar hefur hún verið verkafólki feyki mikils virði og reyndar atvinnulífínu líka, þótt atvinnuleysi hafi góðu heilli yfirleitt verið víðs §arri. Og alla tíð verður þessi mikilvægi bak- hjarl vinnandi fólks óijúfanlega tengdur nafni hans. Einhver áhrifamesti kaflinn í bók Emils, „Á milli Washington og Moskvu“, er frásögnin af því er hann hitti Hans heitinn Hedtoft, forsætisráðherra Dana, á göngu svalan haustdag í Kaupmannahöfn síðla árs 1948. Það voru fáir á ferli þennan laugardag og því undar- legra þótti Emil að hitta þennan gamla vin sinn og flokksbróður af algjörri tilviljun. Vissulega urðu fagnaðarfundir, en Emil þótt miður að sjá hve dapur og niðurdreginn vinur hans var. Þeir ræddu síðan lengi saman á flokksskrifstofum jafnaðarmanna um það mál, sem olli Hans Hedtoft svo mikilli hryggð. Honum höfðu borizt fréttir frá Prag um að Tékkóslóvakía myndi hverfa úr hópi lýðræðisríkja eftir fáa daga og verða innlimuð í einræðiskerfí Sovétríkjanna, án þess að vestræn lýðræðisríki fengju hönd við reist. Augljóst er, að þessi fundur hefur haft djúptæk áhrif á Emil. Hann hafði lengi staðið í höggorrustu við íslenzka kommúnista og duldist ekki hvaða fyrirætlanir þeir höfðu. Og honum var stórlega brugðið vegna þess valdaráns, sem kom- múnistar, með tilstyrk Rauða hersins, frömdu í hveiju Austur- Evrópu-ríkinu á fætur öðru. Honum var því jafnvel ljóst og öðrum for- ystumönnumm vestrænna lýðræð- isríkja að þau yrðu að taka höndum saman, ættu þau ekki að verða sovézku ógninni að bráð. Það var því með heilum huga sem hann fór, ásamt þeim Bjama heitnum Benediktssyni og Eysteini Jónssyni, til Washington í marz 1948 til við- ræðna við bandaríska ráðamenn um fyrirhugaða stöfnun Atlantshafs- bandalagsins og aðild íslands að því. Hún var síðan samþykkt á Al- þingi, þrátt fyrir hatramma and- stöðu kommúnista. Þegar litið er til baka er ljóst, að með aðild sinni að bandalaginu steig lýðveldið eitt- hvert mesta gæfuspor í sögu sinni til þessa; þjóðin á því mikið að þakka þeim þrem mikilhæfu for- ystumönnum, sem undirbjuggu aðildina með viðræðum sínum vestra. Við lát Emils er eðlilegt að rifja upp hans hlut í því máli, enda var hann alla tíð traustur og örugg- ur stuðningsmaður vestræns vamarsamstarfs. Þegar Ásgeir heitinn Asgeirsson, forseti íslands, fól Emil myndun ríkisstjórnar í desember 1958 stóð flokkur hans mjög höllum fæti. Sveitarstjómarkosningar vom þá nýlega að baki, þar sem flokkurinn hafði fengið slæma útreið, og vinst- ristjóm Hermanns Jónassonar, sem hann átti aðild að, hafði gefízt upp. Menn vom því furðu lostnir þegar formaður minnsta þingflokksins til- kynnti myndun fámennrar minni- hlutastjómar hinn 23. desember 1958. En henni var strax vel tekið og þjóðin sætti sig við úrræði henn- ar. Og það er ekki ofsagt að hún hafi reynzt tímamótastjóm. Lagður var gmndvöllur að nútímaskipan í efnahagsmálum og gmndvallar- breyting gerð á kjördæmaskipan ríkisins. Hvorttveggja er í fullu gildi enn í dag. Því er ekki að neita, að alþýðuflokksmönnum var um og ó, þótt þeir bæm mjög mikið traust til Emils og samráðherra hans, skiljanlega fannst þeim lítill flokkur færast mikið í fang og taka á sig mikla ábyrgð. En mér er minnis- stætt að Emil var glaður og reifur og greinilega ókvíðinn. Fór það enda eftir, að stjóminni famaðist í hvítvetna vel. Það byggðist ekki síst á því mikla trausti og áliti, sem Emil naut hvarvetna, bæði meðal almennings og annarra stjómmála- manna. Hann var óumdeildur forystumaður í Alþýðuflokknum og hafði verið í mörg ár, en frá og með Þorláksmessu 1953 voru orð hans lög, allir vildu gera vilja hans. Og hann kunni vel á því að halda. Aldrei varð ég annars var en hann væri eftir sem áður reiðubúinn til viðræðna og samstarfs í smáu og stóm. Það var ekki fyrr en síðla sum- ars 1959 að umtalsverð kynni tókust með okkur Emil Jónssyni. Var ég þá ráðinn framkvæmda-' stjóri Alþýðuflokksins og gerðist um leið hægri hönd hans við stjóm- un flokksskrifstofu og rekstur ýmissa flokksmála. Hann efldi mjög starfsemi skrifstofunnar frá því, sem áður hafði verið og lagði mjög mikla áherzlu á náið samband og samráð við flokksmenn, en á því hafði verið umtalsverður misbrestur á ámm áður og valdið miklum vand- ræðum. í þessu^ samstarfí stofnuð- ust náin kynni. í fyrstu virtist hann máske ekki mjög árennilegur, en það var fljótt að hverfa. Fyrir hon- um var gagnkvæmt traust gmnd- vallaratriði. Hann vildi hafa hlutina í góðu lagi og ætlaðist til skýrrar og hnitmiðaðrar framsetningar á þeim málum, sem lögð vom fyrir hann. I hans huga vom markmiðin skýr, jafnt í hinu flokkslega starfí sem í stjómmálunum. Hann var ekki maður skrúðmælgi og leikara- skapar, heldur kom til dyranna eins og hann var klæddur og sagði það, sem í hug hans bjó. Þar af leiddi, að menn vissu hvar þeir höfðu hann, eins og sagt er, og bám órofa traust til hans, þótt þeir væm ekki endi- lega sammála honum. í öllu hans fari féllu þétt saman, hvert að öðm, persónugerðin, embættismaðurinn og verkfræðingurinn. Stundum hef- ur mér fundizt, sem í raun og vem hafí það verið embættismaðurinn með verkfræðimenntunina, sem mestu réði í stjómmálamanninum. Samt sem áður var hann afar glöggskyggn stjómmálamaður eins og bezt sést á því, að þegar hann tók við forystunni og fékk virkilega notið sín, stóðst enginn honum snúning. Hann hafði náið samband við það fólk, sem hann var að vinna fyrir. Sjálfur var hann af alþýðu- fólki kominn og ól nánast allan sinn aldur í Hafnarfírði, í nánum tengsl- um við bæjarbúa. Þar til viðbótar hafði hann náið samband við sjó- menn og verkamenn um land allt vegna starfa sinna sem hafna- vita- málastjóri. Hann bar hag þeirra og kjör fyrir bijósti þótt hann yrði stundum, sem ráðherra, að standa að ákvörðunum, sem komu þeim ekki vel í augnablikinu. En þeir mátu hann, virtu og teystu engu að síður og skildu forsendumar fyrir slíkum niðurstöðum. Embætti félagsmálaráðherra og utanríkisráðherra voru síðustu ráð- herraembættin, sem Emil gegndi á A iangri ævi. Áður hafði hann gegnt öðram embættum í ýmsum ríkis- stjómum, m.a. verið sjávarútvegs- ráðherra, en sennilega hefur fallið honum einna bezt að gegna ofan- greindum embættum. Eg hefí áður greint frá því hvflíkan þátt hann átti í mótun þeirrar utanríkis- og öryggismálastefnu, sem síðan hefur verið fylgt og er nánast óumdeild, núorðið. En félags- og húsnæðis- málin vora honum líka afar hugleik- in. Og svo vel vildi til, að ný húsnæðislöggjöf var einmitt síðasta lagaframvarpið er hann bar fram til samþykktar á Alþingi. Alþýðu- flokksmenn höfðu lengi verið afar óánægðir með það hve verka-* mannabústaðalögin höfðu dregizt mjög aftur úr. Þegar Emil tók við embætti félagsmálaráðherra hinn 1. janúar 1971 hafði hann því eng- ar vöflur á, heldur setti þrjA úrvals- menn í nefnd til að endurskoða einkum þann þátt löggjafarinnar og skyldu þeir hafa 4 vikur til verks- ins. Stóð það heima og Emil mælti fyrir nýja frumvarpinu í febrúar 1971. Var það síðan samþykkt í maí, þá um vorið. Þannig var hann oftsinnis snar í snúningum, enda vissi hann alltaf hvað hann vildi og _ var laginn við að fá mál samþykkt. Ég hefí alltaf verið ánægður með að hann skyldi ljúka þingferli sínum og ráðherradómi með nýskipan á þeim þætti húsnæðismálanna, sem vinnandi fólk og Alþýðuflokkurinn hafa lengst af borið svo mjög fyrir bijósti. Verkamannabústaðimir Emil Jónsson ræðir við Cappelen utanríkisráðherra Noregs og Sir Alec Douglas Home, þáverandi ut- annkisráðherra Breta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.