Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Opinber starfsmaður með sjálfstæða
starfsemi settur á vatn og brauð
Athugasemd vegna skrifa Ágústs H. Bjarnasonar
eftir Gest
Steinþórsson
Samkvæmt 1. mgr. 115. gr. laga
nr. 75/1981 er skattstjóra bannað
að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum
almennra hegningarlaga um brot í
opinberu starfi að skýra óviðkom-
andi mönnum frá því er þeir komast
að í sýslan sinni um tekjur og efna-
hag skattaðila.
Að ofansögðu má Ijóst vera, að
hvorki er unnt að birta almenningi
þau skattgögn er til grundvallar
meðferð þessa máls liggja, né aðrar
þær staðreyndir sem felast í ein-
stökum skattgögnum, enda þótt í
þeim felist skýring aðgerða þeirra
starfsmanna Skattstjórans í
Reykjavík, sem vegið er að í tilvitn-
aðri grein.
í ljósi þeirrar einhliða frásagnar
af viðskiptum greinarhöfundar við
starfsmenn embættisins verður —
innan þeirra takmarkana, sem
þagnarskyldan setur — tæpt á
nokkrum grundvallaratriðum, sem
snerta umrætt málefni:
1. Samkvæmt 91. gr. laga um
tekju- og eignarskatt hvflir fram-
talsskylda á hveijum manni og
skulu allir þeir sem skattskyldir eru
afhenda skattstjóra skýrslu í því
formi, sem ríkisskattstjóri ákveður,
þar sem greindar eru að viðlögð-
um drengskap tekjur á síðast-
liðnu ári og eignir í árslok, svo
og önnur atriði, er máli skipta við
skattálagningu.
Þá skal fylgja skýrslu þeirra, sem
hafa með höndum atvinnurekstur
eða sjálfstæða starfsemi rekstrar-
og efnahagsreikningur.
2. í 1. mgr. 96. gr. segir:
„Komi í ljós fyrir eða eftir
álagningu að framtal eða ein-
stakir liðir þess eða fylgigögn
séu ófullnægjandi, óglögg eða
tortryggileg, eigi skráð á lög-
mætan hátt eða ófullnægjandi
undirrituð eða skattstjóri telur
frekari skýringa þörf á ein-
hveiju atriði, skal hann skriflega
skora á framteljanda að bæta úr
því innan ákveðins tíma og láta
í té skriflegar skýringar og þau
gögn, þar með talið bókhald og
bókhaldsgögn, sem skattstjóri tel-
ur þörf á að fá.“
3. Þann 9. júní sl. var skorað
á viðkomandi greinarhöfund
með vísan tíl ofanritaðs ákvæðis,
að gera nánari grein fyrir sjö
atriðum, sem vörðuðu sjálfstæða
starfsemi hans, en eitt fyrrgreindra
atriða snerti hinar „óvissu tekjur"
sem gerðar eru að umtalsefni í
blaðagreininni, en að öðrum kosti
var ókleift að ákvarða skattstofna
hans. Svarfrestur var hefðbundinn,
þ.e. 10 dagar.
4. í 96. grein skattalaga segir
einnig að sé eigi bætt úr ann-
mörkum á framtali, svar frá
framteljanda berist ekki innan til-
skilins tíma, send gögn séu ófull-
nægjandi eða tortiyggileg, þá skuli
skattstjóri áætla tekjur og eign
skattaðila svo ríflega að eigi sé
hætt við að fjárhæðir séu áætlaðar
lægri en þær eru í raun og veru.
5. Þann 25. júní var lokafrestur
á skilum skattstjóra á skattgögnum
manna til Skýrsluvéla ríkisins, en
frá og með þeim degi hófst vélræn
álagningarvinna. Fyrir þann dag
var m.a. gengið frá áætlun skatt-
stofna þeirra manna, sem hvorki
höfðu skilað skattframtölum eða
svarað þeim fyrirspumum sem
vörðuðu ákvörðun skattstofna
þeirra.
6. Samkvæmt því sem upplýst
er í tilvitnaðri blaðagrein kemst
bréf skattstjóra fyrst til vitundar
greinarhöfundar þann 27. júní og
þann 30 s.m. mætir hann með „öll
gögn á skattstofu" (auðkennt hér)
að eigin sögn. Þann dag eða eins
og áður greinir var álagning manna
frágengin og næsti verkþáttur haf-
inn þ.e. álagning lögaðila með öllum
tiltækum mannafla því skiladagur
til Skýrsluvéla ríkisins var 11. júlí.
7. Greinarhöfundi var síðan til-
kynnt um höfnun framtals og
áætlun gjaldstofna fyrir álagningu,
þ.e. með bréfi dags. 23. júlí sl.
Kærufrestur var þannig óskertur
30 dagar.
8. Auglýst var að álagningu
væri lokið þ. 30. júlí og að kæru-
frestur væri til 28. ágúst. Eftir að
álagningu var lokið gátu starfs-
menn skattstjóra tekið sumarfrí
sem að meðaítali er 5 vikur. Það
má vera augljóst að þeir starfsmenn
sem skiptu með sér verkum í kæru-
fresti, yfírmenn sem aðrir, önnuðu
eigi öðru en viðtölum og móttöku
á þeim rúmlega 4.400 skattkærum,
sem bárust í kærufresti.
9. Þann 21. ágúst var móttekin
kæra dags. 11. ágúst og síðar þann
26. sama mánaðar var móttekinn
efnahagsreikningur frá umræddum
greinarhöfundi.
10. Þann 1. sept. var send bráða-
HverfeJsanriieikúrinriTatbal^iðlsogusagnirnariumigvðiúiWástarlíflhennarJ
^g?Tf?g«rfntteTirí1 [íamspg®
eiginmenniná?JHversiv.egna^varðihún|kvntákn?iHv
íter?(íknfi^iiTSíiTiRT?
huhlenhþaTá^orum
ara rannsoknar-
starfi, koma
fram ymsar
nýjar og áður
óbirtar upp-
lýsingar sem
veita svör við
mörgum brennandi
spurningum af þessu
tegi.
,
TIMABÆR
Gestur Steinþórsson
„Því má ljóst vera að
aðgerðir starfsmanna
skattstjóra eru í rök-
réttu framhaldi af
framtalsskilum grein-
arhöfundar og að-
finnslur vegna
málsmeðferðar skatt-
stjóra verða því einung-
is raktar til framtals-
skila greinarhöfundar
sjálfs.“
birgðaleiðrétting til Gjaldheimtunn-
ar, til lækkunar áður áætluðum
skattstofnum, þar eð misræmis
júlí 1986 og álagningarseðils.
11. Þann 30. sept. sl. barst
skattstjóra enn bréf dags. 23. sept.,
þar sem m.a. voru raktar bréfa-
skriftir án þess að nokkuð frekar
væri upplýst um efnisatriði.
í septembermánuði að loknum
sumarleyfum hófst vinna við að
úrskurða í kærumálum og þann 6.
okt. var kærumái þessa framtelj-
anda afgreitt með úrskurði.
12. í umræddum skrifum segir
meðal annars:
„Að sl. haust leitaði ég ráða á
Skattstofu Reykjavíkur vegna þess,
að ég átti útistandandi óvissa pen-
inga, sem voru í innheimtu hjá
lögfræðingi. Fannst mér óþarft
(auðk. hér) að telja þá fram fyrr
en þeir fengjust greiddir eða fella
þá að öðrum kosti undir lið sem
nefnist óvissar tekjur. Viðmælandi
minn féllst að því ég fékk bezt skil-
ið á þetta sjónarmið en bað mig
um að gæta þess í athugasemdum
í væntanlegu framtali. Varð ég við
þeirri bón hans af einskærum
bamaskap, illu heilli, því að síðar
varð ljóst að ógæfa mín fólst ein-
mitt í því.“
Af tilvitnuðum texta greinarinn-
ar verður eigi annað ráðið en að
gætti milli tilkynningar dags. 23.
starfsmanni skattstjóra hafi þrátt
fyrir ákveðnar skoðanir greinar-
höfundar, tekist að koma honum í
skilning um framtalsskyldu hans
„sl. haust“. Framtali er síðan skilað
l. mars sl.
í 2. mgr. 60. gr. tilvitnaðra laga
segir:
„Tekjur skal að jafnaði telja til
tekna á því ári sem þær verða til,
þ.e. þegar myndast hefur krafa
þeirra vegna á hendur einhveijum,
nema um óvissar tekjur sé að
ræða.“
Samkvæmt áður tilvitnuðu
ákvæði 91. gr. er framtalsskyldan
ótvíræð, en skattskyldan ræðst af
þeim atriðum, sem lesin verða út
úr gögnum málsins. Hér skiptir t.d.
máli, hvers eðlis krafa er, á hendur
hveijum og trygging hennar, þ.e.
hvort um er að ræða t.d. launakröf-
ur sem ríkisábyrgð er fyrir eða
almenna kröfu á hendur þrotabúi.
Af athugasemd greinarhöfundar
á skattframtali hans varð ekki ráð-
ið hvort umræddar tekjur hans
gætu talist óvissar eða hvort tekjur
þessar skyldu koma til skattlagn-
ingar. Og í því sambandi hvort
hugsanlega væri hér um að ræða
tekjur, sem heimilt væri að draga
frá kostnað skv. 1. tl. 31. gr., það
er kostnað vegna öflunar tekna í
atvinnurekstri.
Þá segir í greininni:
„Sagði hann mér, að eftir-,
grennslun skattstofunnar væri til
komin vegna athugasemdar minnar
á framtalinu, og kom síðar í ljós,
að hún var að undirlagi sama manns
og ráðlagði mér að geta hennar
þar.“
I þessu sambandi er rétt að fram
komi að einu máli gilti hvaða starfs-
maður skattstjóra tók afstöðu
varðandi höfnum framtalsins, þar
eð framtalsgögnin veittu almennt
það ófullnægjandi upplýsingar að
hlutlægt mat hlaut alltaf að leiða
til þess að framtalinu yrði hafnað.
Lokaorð
Hér að framan hafa verið rakin
almenn málsatvik, lagaákvæði og
þau úrræði, sem skattstjórar verða
að viðhafa, þegar framteljendur
m. a. „opinber starfsmaður" og í
þessu tilviki jafnframt með sjálf-
stæða starfsemi, skila ófullnægj-
andi framtalsgögnum, þannig að
ókleift er að ákvarða með nokkurri
vissu — án fyrirspumar — þá skatt-
stofna sem lögum samkvæmt skulu
vera gmndvöllur skattálagningar.
Því má ljóst vera að aðgerðir
starfsmanna skattstjóra eru í rök-
réttu framhaldi af framtalsskilum
greinarhöfundar og aðfínnslur
vegna málsmeðferðar skattstjóra
verða því einungis raktar til fram-
talsskila greinarhöfundar sjálfs.
Hvað viðvíkur þeim atriðum, sem
varða innheimtu opinberra gjalda
þ.m.t. vaxtaútreikning skal tekið
fram, að sá þáttur málsins er skatt-
stjóra óviðkomandi.
Höfundur er skattstjórí í
Reykjavík.
Reynslusaga alkóhólista
SKJALDBORG hf. á Akureyri
hefur gefið út bókina Ég drekk
ekki í dag eftir Auðun Blöndal.
í fréttatilkynningu Skjald-
borgar segir: „Þetta er reynslusa-
ga alkóhólista, skáldsaga, sem
að grunni til byggist á sönnum
atburðum úr lífí höfundar. Jafn-
framt er bókin fögur ástarsaga
og í gegnum hana lýsir jákvætt
hugarfar og vilji til að láta gott
af sér leiða, bæta og fegra mann-
legt samfélag. Bókin segir frá
baráttu Svenna, rúmlega tvítugs
Reykvíkings, sem Bakkus hefur
fest klær sínar í, kynnum hans
af AA, dvöl á Tíunni frægu, á
Vífílsstöðum og í Þingeyjarsýslu.
En öðru fremur segir þó af sam-
skiptum hans við „veikara kynið"
og stúlkunum, sem verða bjarg-
vættir hans. Þetta er holl lesning
þeim, sem Bakkus sækir hart að,
og góð lesning öllum þeim sem
Auðunn Blöndal
lesa vilja um ósviknar ástir.“
Káputeikningu gerði Auglýs-
ingastofan Delfí, Bemharð
Steingrímsson.