Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986 Kvosartillagan í borgarsljórn: Miðbænum forðað frá „kaldauða“ FYRRI umræða um deiliskipulag að Kvosinni fór fram í borgar- stjórn Reykjavíkur s.l. fimmtudag. Miklar umræður urðu um deili- skipulagið og fer útdráttur úr þeim hér á eftir. Akveðið var að vísa málinu til annarrar umræðu í borgarsljórn og mun hún fara fram 18. desember n.k. Borgarfulltrúar Alþýðubandalags, Kvennalista og Alþýðuflokks lögðu til að málinu yrði frestað en sú tillaga var felld. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (S), hluta miðbæjarins en þær hefðu Likan af Kvosinni samkvæmt tillögunum. Tjörnin i forgrunni, 1) Ráðhús, 2) Austurvöllur, 3) Morgun- blaðshúsið og 4) bílageymslur formaður skipulagsnefndar, mælti með deiliskipulaginu og sagði hann að umræður síðustu ára um stöðu og hlutverk miðbæjarins hefðu hægt og sígandi leitt til þess að áhugafólk um miðbæinn hefði skipst upp í tvo hópa. Annarsvegar þá sem vildu halda miðbænum nán- ast óbreyttum eins og hann blasir við í dag, en endurbæta, fegra og lagfæra ýmsa þætti og hins vegar þá sem vilja stuðla að ákveðinni uppbyggingu, fegrun og endurbót- um samtímis vemdun fjölmargra eldri bygginga. Vilhjálmur sagði togstreitu þessara tveggja hópa hafa leitt til nánast „algjörrar stöðnunar" í uppbyggingu mið- bæjarins. Engin heildarstefna hefði verið mörkuð og „ákvarðanaleysi og úrræðaleysi borgaryfirvalda lagt grunninn að því“. Nokkrar tilraunir hefðu verið gerðar til að skipuleggja ákveðna flestar mistekist þar sem heildar- yfirsýn yfir margvíslega skipulags- þætti Kvosarinnar hefði skort. Óllum væri ljóst í dag að miðbærinn væri óijúfanleg heild og skipulagsá- kvarðanir um ákveðinn hluta hans hafa mikil áhrif á framvindu hluta annars staðar í miðbænum. Þegar skipulagsvinnan hófst 1983, sagði Vilhjálmur, var einung- is ætlunin að athuga sérstaklega skipulag Aðalstrætis og nánasta umhverfis og var arkitektunum Dagnýju Helgadóttur og Guðna Pálssyni falið það verkefni og lögðu þau í desember 1983 fram tillöguna „Aðalstræti og umhverfi". Þessi til- laga, en í henni fólst m.a. að stór hluti miðbæjarins yrði gerður að göngusvæði ásamt töluverðri upp- byggingu, hafði í för með sér verulega breytingu á umferð í mið- bænum og var þá í framhaldi af því ákveðið að ráðast í að gera heildarskipulag yfir allan miðbæinn og taka afstöðu til nauðsynlegra skipulagsþátta og uppbyggingar svæðisins í heild, vemdunarsjónar- miða, byggingarmagns, umferðar- og bílastæðamála, almenningssam- gangna, göngugatna og möguleik- um á fjölbreyttari starfsemi í miðbænum sem einnig væri starf- rækt eftir að verslunum, skrifstof- um og stofnunum væri lokað. Þessi skipulagsvinna stóð í u.þ.b. þijú ár og sagði Vilhjálmur að aldr- ei hefði skipulag þessa svæðis verið tekið jafn föstum tökum og allir nauðsynlegir skipulagsþættir skoð- aðir jafn ítarlega. Einungis hluti af miðbænum hefði verið deiliskipulagður áður og staðfestur af ráðherra. Það var árið 1981 er gert var deiliskipulag að s.k. Pósthússtrætisreit, en sá reitur afmarkast af Lækjargötu, Austur- stræti, Pósthússtræti og Skólabrú. Þessi reitur hefði verið skipulagður án þess að nokkuð tillit hefði verið tekið til annarra svæða í miðbænum og auk þess nánast engin grein gerð fyrir umferðar- og bílastæða- málum, sem væri þó mikilvæg forsenda þess að skipulag væri raunhæft og framkvæmanlegt. í þessu staðfesta deiliskipulagi, sem í gildi er í dag, var gert ráð fyrir að kæmi til endurbyggingar á sjö lóðum, þ.e. Austurstræti 20, Austurstræti 22, Lækjargötu 2, Lækjargötu 4, Lækjargötu 6a og 6b og Lækjargötu 8. Þessi ákvörðun hefði verið tekin undir forystu Al- þýðubandalagsmanna og sagðist Vilhjálmur ekki muna eftir því að hafa heyrt yfirlýsingar frá þeim þá að samþykkt þessarar tillögu væri „menningarsögulegt áfall" fyrir Reykjavíkurborg né heldur að „Torfusamtökin hefðu haft eitthvað við það að athuga“. Hann gæti hins- vegar fallist á það með fulltrúum Alþýðubandalagsins að þetta skipu- lag væri „flausturslega unnið, skipulagsforsendur afar óljósar og víða mjög óljós rökstuðningur í greinargerð með skipulaginu". En þrátt fyrir samþykkt þessa skipulags og aðra skipulagsvinnu áður fyrr hefði lítið gerst í upp- byggingu og endurbyggingu miðbæjarins. Örfá hús hefðu risið án þess að nokkur heildarstefna lægi fyrir og á meðan hefðu nýjir verslunar- og þjónustukjamar byggst upp víða í bænum. Með nýju skipulagi sköpuðust forsendur fyrir því að borgaiyfirvöld og hags- munaaðilar gætu sameinast um að gera stórátak í því að „efla og glæða miðbæ Reykjavíkur lífi“. Staðfest deiliskipulag væri forsenda þess að hægt væri að styrkja stöðu mið- bæjarins og í raun forsenda þess að hann gæti áfram gegnt hiut- verki sínu sem miðstöð stjómsýslu, viðskipta og þjónustu og skapa betri skilyrði fyrir fjölbreytt mannlíf, menningarstarfsemi og skemmtan- ir. Til að ná þessum markmiðum sagði Vilhjálmur m.a. að í skipu- lagstillögunum væri byggt á þeim forsendum að bæta umhverfi og skapa betri aðstöðu fyrir gangandi vegfarendur, úrbótum í umferðar- og bílastæðamálum, þar sem lögð yrði áhersla á að draga úr um- ferðarþunga í kjama miðbæjarins, LITGREINING MEÐ CROSFIELD 64BIE LASER LYKILUNN AÐ VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF. vemlegri fjölgun íbúða, úr 15 í 60-80, möguleikar yrðu skapaðir fyrir fjölbreyttari starfsemi sem einnig væri starfrækt eftir að versl- anir, skrifstofur og stofnanir loka, lagt er til að Austurstræti allt verði gert að göngugötu og Aðalstræti verði göngugata með strætisvag- naumferð. Pósthússtræti yrði með göngugötuyfírbragði, tijágróðri yrði komið fyrir í göngugötum, við torg og meðfram gangstéttum o.fl. Einnig væri gert ráð fyrir nýrri enda- og skiptastöð almennings- vagna fyrir Kvosina. Samkvæmt skipulagstillögunum eykst byggingarmagn í miðbænum um u.þ.b. 36.000 fermetra en þar af em byggingar Alþingis 9000 fermetrar, ráðhús 6000 fermetrar, s. k. Borgarhús sem staðsett verður á Steindórsplani 2000 fermetrar, íbúðir 7000 fermetrar og skrifstofur 6000 fermetrar. Vilhjálmur sagði það „misskiln- ing eða vísvitandi rangfærslur" að „breikka eigi götur gífurlega, sneiða græn svæði af Hljómskálan- um og ráðast langt út í Tjöm“ eins og einhver borgarfulltrúi hafði full- yrt. T.d. myndi Lækjargata mjókka. Meginviðleitni skipulagsins væri að draga úr umferð í sjálfri Kvosinni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Kvl) sagði að sér fyndist sem búið væri að segja allt sem þyrfti að segja. Nú ættu borgarfulltrúar að setjast niður með þær greinar sem skrifaðar hefðu verið í blöðin og melta þetta. Síðan gætu þeir komið saman og rætt málin á ný. Ingibjörg taldi að verið væri að reyna að koma málinu í ákveðinn farveg, togstreitu milli Alþýðu- bandalags og Sjálfstæðisflokks með því að benda á tillögumar frá 1981 og segja sem svo „að ef ykkur finnst okkar tillaga vond þá hafið i huga að tillaga vinstri meirihlut- ans var engu betri. Hún taldi að nú þegar væri ,fyöl- skrúðugt mannlíf í miðbænum. Fólk sækti þangað af því að þar væri „fjölbreytileikinn og sjarminn". Það ætti að „gera út á fjölbreytileikann, styrkja sérkennin, auka sjarmann". Leyfa ætti miðbænum að keppa á sínum eigin forsendum. Menn þyrftu að spyija sig hvort væri markaður fyrir fleiri matsölustaði, kaffihús og vínveitingastaði. Hún taldi að þetta væri ekki spuming um aðstöðuleysi heldur um rekstr- argrundvöll. Skipulag væri aðeins ein af forsendum uppbyggingar, það þyrfti að vera „í samræmi við þörf því annars fjárfestir engin í því“. Ingibjörg Sólrún lýsti einnig yfír áhyggjum vegna „niðurrifs" gam- alla húsa og uppbyggingar bfla- stæðahúsa. Bflageymslumar myndu kosta um 500 milljónir króna og fengi borgin ekki nema brot af þessum kostnaði í bílastæða- gjöldum. Umferðaráþjánin væri mikil og sjálfsagt að leysa hana t. d. með einu bflageymsluhúsi en ekki ætti að auka hana með því „að laða að einkabfla". Fyrirhuguð skiptistöð væri „mjög gott mál“ en Ingibjörg taldi hana vera of aftar- lega á framkvæmdaáætlun. Að lokum sagði Ingibjörg að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.