Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 83

Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986 83 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 17-18 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . . Okur í alfaraleið Ferðalangur vill koma eftir- farandi á framfæri: Eg brá mér upp í Borgarfjörð og var orðinn svangur ])egar kom að Hreðavatnsskála. Eg hugðist fá mér brauðsneið með kjöti og einhveiju gumsi ofaná, plús svolít- ið af harðsoðnu eggi. Þetta smakkaðist bærilega þótt lítið færi fyrir kjötinu í maga. Þegar kom að því að borga brá mér í brún. Ég hafði nefnilega ekki spurt um verðið. Brauðsneiðin kostaði einar litlar eitthundrað níutíu og fimm krónur, segi og skrifa kr. 195. Mér er spum, er ekkert verð- lagseftirlit með okri af þessu tagi? Borgarabærinn Haraldur Þórðarson hringdi: Langafi minn keypti Borg- arabæinn, sem þá hét Marteins- bær, og skírði hann upp. Eftir það hét hann Borgarabær. Bærinn stóð á milli þess sem í dag er Vesturgata 5 og 7. Eftir að bær- inn var rifinn reis á sama stað Hótel Glasgow sem brann ekki löngu eftir síðustu aldamót. Talað var um Borgarbæjarabræður en það voru sex synir Guðmundar Bjamasonar en einn þeirra, Þórð- ur Guðmundsson, var síðasti ábúandi á jörðinni. Sjálfur var ég oftast kallaður Halli í Gtjóta en ég átti heima á Gijótabæ sem stóð töluvert fyrir neðan Landakotsspítala, við Öldu- götu sem er nú. Annars má lesa sér margt til fróðleiks um þessa og aðra gamla bæi, sem stóðu þar sem nú er höfuðborgin, í bók Jóns Helgasonar, „Reykjavík 14 vetra“. Anægð með Bylgjuna Ein af skaganum hafði sam- band og vildi lýsa yfir ánægju sinni með Bylgjuna. Áður fyrr heyrði hún sjaldan lög með David Bowie en núna, efir að Bylgjan byijaði, hefur orðið mikil breyting þar á. Nú heyrir hún mörg fín lög með honum, og einnig með Tinu Turner og Rolling Stones. Hún vonar að Bylgjan haldi áfram að standa sig. Fyrirspurn um sögu Flugbjörg- unarsveitarinnar Áhugamaður hringdi: í sjónvarpsþætti um daginn komu fram nokkrir meðlimir Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Minnst var á að í saln- um sæti einn stofnmeðlimur sveitarinnar en hann var ekki sýndur. Hver var hann? Og hvað líður útgáfu á sögu sveitarinnar sem ég veit að Andrés Kristjáns- son hefur lokið við að skrifa? Og að lokum, í hvaða húsnæði var sveitin stofnuð? Þeir stama Eldri kona hringdi: Ég varð ekki hrifm af þættinum „Geislum" í ríkissjónvarpinu þar sem kynvilltir kynntu sjálfa sig. Þá finnst mér það ljóður á mörgum fréttamönnum sjónvarps og útvarps, sérstaklega körlunum, að oft rekur þá í vörðumar, þeir stama og skjóta inn allskonar aukaorðum sem ekki eiga heima þar. Ef menn vilja endilega segja svolítið meira en þeir geta þá er ekki vist að þeir eigi heima í fyöl- miðli eða hvað? Oánægð með breyttan frétta- tíma Erla viil leggja orð í belg um breyttan fréttatíma sjónvarps: Ég; má til með að lýsa óánægju minni á breyttum útsending- artíma frétta í sjónvarpinu. Eg- skil ekki þessa furðulegu fljót- færni í útvarpsráði. Fólk hefði vanist þessum tíma, eins og þegar fréttatíma útvarpsins var breytt forðum. Því vil ég koma með þá tillögu að það verði sýndir ein- hvetjir spennandi þættir frá 19.30 til 20.00, fyrir okkur sem leiðist að bíða meðan hinir borða. Það eru ekki allir _sem geta valið um tvær stöðvar. Áfram Ingvi Hrafn. Sverrir Storm- sker - frábær hljómplata Jakob P. Jóhannsson hefur þetta að segja: Til hamingju með nýju plötuna þína Sverrir „Lífsleiðina", sem til- einkuð er vini þínum heitnum, eins og segir í texta á umslagi. Vona ég að þú sért nú sæll og glaður og „lífsleiðinn" horfinn út í veður og vind - enda ástæða til að vera ánægður eftir að hafa gert jafn góða plötu og „Lífsleið- in“ er. Sannarlega tel ég þetta eitt af því besta sem ég hef lengi heyrt og hvet landsmenn til þess að kaupa verk þitt og stuðla þannig að áframhaldandi vinnu þinni á tónlistarsviðinu. k * Stolt Islendinga sært holundarsári Lengi getur vont versnað en nú er hámarki hneisunnar náð. í Kanada hlæja Sea Shepherd-menn sig máttlausa yfír einfeldni okkar íslendinga og hrósa sér yfír því hvemig lævísir sendiboðar Shep- herd-manna hafi leikið grandalausa íslendinga grátt. Meira að segja sumir Kanada- manna hneyksluðust af því að glæpamaður á borð við Paul Watson verði ekki framseldur íslendingum. Paul Watson er hinn mesti glæpamaður og náttúruvemd ábyggilega jafn ofarlega í huga hans og geirfuglarækt í hugum okkar íslendinga. Er þar af mörgum dæmum að taka, en mér þó efst í huga ferð þeirra manna til að stöðva grindhvaladráp Færeyinga. Færey- ingar tóku á móti þeim af hörku, en er Shepherd-menn sáu það helltu umhverfisvemdarsamtökin olíu í sjóinn og hugðust skjóta með eld- byssu á pollinn. Má ég þá minna á, þó svo að allir viti það að meng- un í sjónum ógnar nú öliu lífi á jörðinni. Til að stöðva hvaladráp hella þeir olíu í sjóinn sem ekki aðeins drepur grindhvali heldur búrhvali, steypireyði, þorsk, loðnu, ýsu og allt lífríki í sjónum. En svo geta þeir í sjónvarpi nokkrum vikum síðar öskrað með grátstafinn í kverkunum „morðingjar, morðingj- ar“ er fátækir og svangir Græn- lendingar drepa seli sér til matar. Watson bætir síðan gráu ofan á svart með því að fullyrða að fram- burður Færeyinga sé lygi, og að hann hafí undir höndum myndband sem sannar að svo sé. Myndin er síðan var sýnd (talsvert seinna) reyndist svo vera léleg fölsun, auð- sjáanlega gerð löngu seinna. Jafnvel lygi og fölsun eru notaðar óspart til að bjarga hvölum, og auka fijáls framlög. Já, því Sea Shepherd-samtökunum er einungis framfleytt af fijálsum framlögum, þar sem syndugir auðkýfingar leita sér sáluhjálpar hjá ýmsum göfugum málefnum til að bæta samviskuna (syndaaflausn nútímans). Á fijálsu framlögunum hafa samtökin svo getað haldið færum skemmdar- verkamönnum gangandi í langan tíma. Og að sjálfsögðu hefur örlít- ill, bara örlítill hluti, af fénu runnið í að byggja lúxussvítu fyrir Paul Watson fyrrverandi auðnuleysingja. Og ef Watson & co. hafa á ein- hvern hátt tengst morðtilraun á skipshöfn Hofsjökuls þá leyfí ég mér að segja fyrir hönd allra Islend- inga: „Ráðamenn, gerið allt sem í ykkar valdi stendur til að fá Paul Watson framseldan sem hefur brugðist því trúnaðartrausti sem íslendingar hafa vanið sig að sýna samferðarmönnum sínurn." Sem sannur umhverfísvemdar- sinni, Börkur Gunnarsson „í mínu ungdæmi var alltaf sagt fríður og frelsi“ Hingað til lands bauð sér valda- mesti maður heims, sem vald hefur yfír 270 milljónum, og allir kom- múnistar hvar sem er í veröldinni fylgja honum að málum. Og vinstri pressan er honum innan handar. í ríki hans fyrirfinnast engin mann- réttindi, sem okkur finnast þó eins sjálfsögð og loftið sem við öndum að okkur. Hann þarf aldrei að hlusta á kvartanir fólks, því að fólkið er ofurselt honum og hann getur ráðskast með það eins og honum sýnist. Hann þarf ekki að standa neinum reikningsskil athafna sinna eða orða. Þessum völdum getur ekkert boðið byrginn nema almenn- ingsálitið, en almennigsálitið er ekki til, nema að fólkið sé fijálst. Á ríki Marxismans dugar ekki einn slöngusteinn. Hingað kom „friðar kyndill" frá Sameinuðu þjóðunum sem víða hafði farið um heimsbyggð. Ekki ií>4 ho njjpíiulaani íuils nnitujil veit ég hvort hann var borinn yfír Rússland. Göngumennirnir töluðu um frið en ekki var minnst á frelsi. í mínu ungdæmi var alltaf sagt friður og frelsi, því að slíkt átti að fara saman, en nú er öldin önnur. Karl Marx ráðlagði mönnum sínum, að nota orðið ekki eftir að þeir væru búnir að ná völdum. Ein rödd heyrðist þó i sambandi við friðargönguna, og talaði þá dómprófasturinn í Reykjavík, en hann hélt því fram, að væru allir fijálsir ferða sinna, og þjóðimar gætu kynnst högum hverrar ann- arrar, þá mundi heiminum vera best borgið. Finnst mér að kirkju- yfirvöld gætu vel gefið ræðuna út sérprentaða og helst þýtt hana á sem flest tungumál, svo að friðar- boðskapur dómprófastsins næði til sem flestra. Húsmóðir U Civ iiasií 19 'iuOu i v-4 iiioi ouvr Hestar og reiðmenn á íslandi Bók Schraders í endurútgáfu Bókaútgáfan Hildur gefur út í ár bók, sem lengi hefir veriö ófáan- leg. Þaö er bók sem segja má að væri biblia hestamannsins um langan tíma. Hún fjallar um allt, sem lýtur að hirðingu og meöferö hesta og var sérlega þörf áminn- ing, þegar hún kom út. Hún var eiginlega langt á undan sínum tíma þegar hún kom út, 1915, og ennþá er hún i fullu gildi. í henni er einnig margt merkilegra og bráðskemmtilegra mynda. Bók, sem allir hestamenn þurfa að eiga. - snúrulausa ryksugan frá AEG Ryksugan er hlaðin á smekklegri veggfestingu og þar er alltaf hægt að grípa til hennar. AEG Ryksugan fyrir heimilið,sumarbústaðinn og bílinn. AEG Ryksugan er ómissandi þeim er reynt hafa og freistandi þeim er séð hafa. AEG ALVEG EINSTÖK GÆOI BRÆÐURNIR ORMSSON HF Lágmúla 9, stmi 38820 SÖLUAÐILAR: Versl. Sveins Guðmundssonar, Egilsstöðum. Rafbær, Keflavlk. Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki. Kf. Þingeyinga, Húsavlk. Málningarþjónustan, Akranesi. Straumur, Isafirði. Versl. Einars Guöfinnssonar, Bolungarvlk Árvirkinn, Selfossi. Kf. Eyfirðinga, Akureyri. KEA. E.R innréttingar, Vestmannaeyjum. L J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.