Morgunblaðið - 09.12.1986, Side 15
aser jiaaMagaa .e huoaoutæhh*! .aiaAjaviunHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
¥5
FRAKKASTÍG 6A, 121 RPrXJAVÍK, SÍMh 91-25188
Ogsvpkom
KO'1'
OS^ÓPP
Jónas Jónasson
Bók um baráttu við alkohólisma og það góða
fólk sem þorði að segja frá.
Bók sem á erindi til allra þeirra sem láta sig mann-
leg örlög einhverju varða.Einlægni og hispursleysi
þeirra,sem hér segja frá.snerta tilfinningar allra
þeirra sem finna þörf til að lifa betra lífi-í sátt við
sjálfa sig og aðra.
„Slíkar bækur stækka vonandi yfirráðasvæði vonar-
innar í blautum og köldum heimi“Árni Bergm. Þjóðv.
„Lífsreynsla sem er áhugaverð aflestrar“
Eysteinn Sigurðsson, Tíminn
„Jónas Jónasson hefur skrifað áhrifaríka bók“
Elías Snæland Jónsson, DV
Verð kr. 1.588.00
Ólafur
Gunnarsson
„Það er óhætt að mæla með þessari bók“
Eysteinn Sigurðsson, Tíminn
Dag nokkurn ákveður Össur-Mamma að bjarga
jörðinni en alls staðar liggur hið illa í leyni og ekki
heiglum hent að sjá við þvf.
„í sögunni er fjallað um hluti sem eru ekkert
hégómamál, tilvist Guðs, líf og dauða, endi
veraldar. Til þess að fjalla um þessi alvarlegu mál
notar höfunaur óspart fantasiu og húmor, enda
er sagan bæði fynain og full af hugarflugi."
Margrét Eggertsdóttir, Þjóðviljinn
„Þessi sérkennilega blanda látleysis og fantasíu
verkar sterkt á lesanda og hrífur hann með inn í
hugarheim þeirra Stóra Össurar og ólafs.“
,, Gunnlaugur Astgeirsson, HP
Verð kr. 1.375.00 5 ^
U>»>
Minningar Þuríðar Pálsdóttur
igai
Jónína Michaelsdóttir skráði
Ml
. ■
Lífssaga Bjarnfríðar Leósdóttur
Elísabet Þorgeirsdóttir skráði
Bísibet Þ»*jjLnrsdóttir skráði
Ævi Þuríðar Pálsdóttur er ævintýri líkust. Hún er komin af einni
merkustu tónlistarfjölskyldu á íslandi og hefur komið meira við sögu
tónlistar hér á landi en flestir aðrir síðastliðin fjörutíu ár. Hún er meðal
brautryðjenda á íslensku óperusviði og hefur átt ómældan þátt í að
kynna löndum sínum sönglist innlendra og erlendra meistara.
Saga Þuríðar er ekki aðeins tengd tónlist. Hún hefur starfað ötullega að
félagsmálum og er vinsæll fyrirlesari. Á síðustu árum hefur Þuríður
orðið fyrst manna til að ræða hispurslaust og af þekkingu um breytinga-
skeið kvenna. Ekki er ofmælt að hvar sem Þuríður kemur við sögu,
fylgir hugur máli.
Forlagið gefur einnig út plötu með söng Þuríðar Pálsdóttur.
Verð kr. 1.988.00
Bjarnfríður Leósdóttir er þjóðkunn baráttukona. í aldarfjórðung tók
hún þátt í verkalýðsbaráttu á Akranesi og var félagi í Alþýðubandalag-
inu frá stofnun þess. Bjarnfríður kvaddi flokkinn á þessu ári, er henni
þótti sýnt að honum var þrotið baráttuþrek gegn láglaunastefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Frásögn Bjarnfríðar er opinská og heiðarleg. Lýsing hennar á hlutskipti
drykkjumannskonunnar er ein eftirminnilegasta frásögn bókarinnar.
Hún segir tæpitungulaust frá baktjaldamakki í verkalýðshreyfingunni
og hlífir engum. Að baki alvörunni býr leiftrandi skopskyn, hvort heldur
hún segir frá óvæntum ævintýrum áhugaleikara á Akranesi, lýsir
hlutskipti þeirra sem tóku út þroska sinn á stríðsárunum eða rifjar upp
landleguslagsmál á síldarárunum. Verð kr. 1.888.00
Doris Lessing
l’""liiu'ii"»
Alice Walker
Ramón J. Sender
SALUMESSA
VHK <a®iSKtJM SVUTVWANNl
ihmónXScndcr
„Hér er sögð mögnuð saga af mikilli kúnst“
, Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðið
Mary, hvít kona í Rhódesíu, hafnar í gæfusnauðu
hjónabandi með bónda nokkrum. Hún hefur
andúð á lífinu í sveitinni og lítur niður á þá
innfæddu. Af ofstækisfullri hörku snýst hún gegn
svörtum þjóni sínum, uns valdið snýst að lokum
í höndum hennar...
Meistaraleg saga sem vitnar um djúpan mann-
skilning og tilfinningahita hins mikla rithöfundar.
Birgir Sigurðsson þýðir söguna.
Verð kr. 1.087.00
„Grípur lesanda sinn og heldur honum föst-
urn allt til loka.“ Eysteinn Sigurðsson, Tíminn
Þótt Celie sé varla læs eða skrifandi, sest hún
niður og skrifar Guði bréf. Hann er sá eini sem
Celie treystir. Hér á jörðu hefur hún engu að
treysta nema þeirri visku sem blundar innra með
henni. En smám saman lærir Celie að berjast fyrir
lífi sínu og öðlast kjark til að hlæja, ærslast og
loks - að elska.
Purpuraliturinn er saga um gleðina, sársaukann
og ástina - saga sem höfðar til dýpstu tilfinninga
lesandans.
Ólöf Eldjárn þýðir söguna.
Verð kr. 1.088.00 innb. - kr. 594.00 kilja
„Besta bók sem ég hef lesið í langan tíma“
Súsanna Svavarsdóttir, Morgunblaðið
„Með afbrigðum vönduð saga“Árni Bergmann, Þjóðv
Paco er sveitadrengur á Spáni. Barnungur hlýðir
hann á kærleiksboðskap prestsins síns um leið
og hann horfir á eymd og niðurlægingu sveitunga
sinna. Hvar er réttlætið sem guðsmaðurinn
boðar? Þegar Paco vex úr grasi ákveður hann að
taka réttlætið í sínar hendur. Það á eftir að kosta
grimmilegar blóðsúthellingar.
Álfrún Gunnlaugsdóttir og Þorgeir Þorgeirsson
þýða söguna.
Verð kr. 988.00