Morgunblaðið - 09.12.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
33
Fræðslufund-
ur um atferl-
ismeðferð
FRÆÐSLUFUNDUR um atferl-
ismeðferð verður haldinn mið-
vikudaginn 10. desember á
Geðdeild Landspítalans.
Þar mun dr. Jack James, dósent
við Flinders-háskóla í Suður-
Ástralíu, fjalla um meðferð á stami,
misnotkun á koffein og einstakl-
ingsrannsóknir. Þá mun Drífa
Harðardóttir, sálfræðingur við há-
skólann í Adelaide í Suður-Ástralíu,
fjalla um rannsóknir sínar á með-
höndlun á sársauka.
Fyrirlestramir verða haldnir á
3. hæð Geðdeildar Landspítalans
kl. 9.00-17.00.
Þátttaka tilkynnist á göngudeild
Geðdeildar í síma 29000/271.
Eftir fyrirlestrana verður haldinn
stofnfundur Félags áhugamanna
um atferlisfræði.
Grímur Valdimarsson.
Grímur ráð-
inn forstjóri
Rannsókna-
stofnunar
fiskiðnaðar
Sjávarútvegsráðuneytið aug-
lýsti stöðu forstjóra Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins lausa til
umsóknar hinn 21. október sl.
Umsóknarfrestur rann út 20.
nóvember sl. og barst ein um-
sókn; frá dr. Grími Valdimars-
syni, settum forstjóra
Rannsóknastofnunarinnar. Að
fenginni umsögn stjómar stofn-
unarinnar hefur Sjávarútvegs-
ráðherra skipað dr. Grim til að
gegna stöðu forstjóra Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins
frá og með 1. desember 1986 að
telja.
Grímur Valdimarsson er fæddur
í Reylq'avík 20. mars 1949. Hann
lauk stúdentsprófí frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1969 og BS-prófí
í líffræði frá Háskóla íslands 1973.
Framhaldsnám stundaði hann við
University of Strathclyde í Glasgow
og varði þar doktorsritgerð í gerla-
fræði sjávarfíska 1977. Það sama
ár réðst Grímur til Rannsóknastofn-
unar fiskiðnaðarins og var skipaður
deildarstjóri gerladeildar 1978.
Grímur Valdimarsson er kvæntur
Kristínu Jónsdóttur, líffræðingi og
eiga þau þijú böm.
Nýjar gardúiur á 50 krónur!
Blátt Bio-tex í allan handþvott og
grænt Bio-tex í þvottavélina
(forþvottinn).
Undraefni í allra hendur. Fæst í næstu verslun.
Halldór Jónsson hf. Dugguvogi 8-10, sími 686066
Ef gardínurnar þínar þola vatn þá
þola þær líka Bio-tex - undraþvotta-
efni sem gerir gömlu gardínurnar
sem nýjar á 15 mínútum.
Þú setur ylvolgt vatn í bala eða
baðker og 1 dl af bláu Bio-tex í
hverja 10 1 af vatni. Þegar duftið
hefur blandast vatninu leggur þú
gardínurnar í. Eftir að hafa dregið
gardínurnar fram og til baka í
vatninu í u.þ.b. 10 mín. skolar þú
þær í hreinu vatni og hengir til
þerris. Árangurinn er augljós,
gardínurnar verða sem nýjar og
íbúðin fyllist ferskara lofti.
í þessari fallegu bók eru tvö merkustu
kvæöi okkar íslendinga; Völuspá og
Gestaþáttur Hávamála. í Völuspá er sögö
saga veraldar frá sköpun heimsins til
ragnaraka, norræn gerð peirrar
sköpunarsögu sem er einna þekktust úr
Biblíunni. Gestapáttur Hávamála geymír
sígilda siðfræöi úr heiöni, ráðleggingar
um almenna hegöun og mannleg
samskipti. Kvæðin eru með nútímastaf-
setningu og ítarlegum skýringum efdiL|
Gísla Sigurösson.