Morgunblaðið - 09.12.1986, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Fjórða bókin um Elías
KOMIN er út hjá Iðunni fjórða
bókin um Elías. Nefnist hún Elí-
as, Magga og ræningjarnir og
er eftir Auði Haralds.
í fréttatilkynningu frá Iðunni
segir:
„Nú ætlar fjölskyldan að freista
gæfunnar á Ítalíu og pabbi Elíasar
fær vinnu við að byggja brú á milli
Ítalíu og Sikileyjar. Magga móða
og Misja maðurinn hennar fylgja í
fótspor þeirra við misjafnan fögnuð!
Á Sikiley þarf fleira að gera en
byggja brýr. Það þarf að ala Sikiley-
inga betur upp, segir Magga. En
þeir vilja ekkert læra góða siði af
Möggu og hún sannfærir þá með
sínum aðferðum ... Pabbi, sem
vildi komast í Möggufrí, hafði reynt
að hræða hana með Mafíunni og
mannræningjum, en hann hefði
frekar átt að aðvara ræningjana.
En foreldrum Elíasar hundleiðist.
Þau taka upp á að gera ógurlega
vitleysu, sem Elías heldur að hann
neyðist til að leysa úr fyrir þau.
Og það getur tekið hann tuttugu
ár.“
Brian Pilkington teiknaði mynd-
imar og hannaði kápu.
Auður Haralds
Barnabók eftir
Herdísi Egilsdóttur
ÆSKAN hefur gefið út bókina
Eyrun á veggjunum eftir Herdisi
Egilsdóttur.
Á bókarkápu segir: „Hvað tekur
fimm ára telpa til bragðs ef bófam-
ir koma allt í einu út úr sjónvarpinu
og standa illilegir á stofugólfínu?
Forðar hún sér hljóðandi eða bjarg-
ar hún heimilisfólkinu? Söguhetjan
okkar hefur ráð undir rifi hverju.
Hún ræður auðveldlega fram úr
þessu! Hún er svo klók og kostuleg!
Þú veist að atvik í daglega lífinu
em oft þau allra spaugilegustu. Og
að Herdís Egilsdóttir kann afar vel
að segja sögur og gæða þær lífi
með smellnum teikningum. Þess
vegna kemur þér örugglega ekki á
óvart að Eyrun á veggjunum er
einkar skemmtileg bók — fjörleg
og fyndin — hugþekk og hlýleg —
og mjög fallega myndskreytt.
Eyran á veggjunum er við hæfí
allra bama — og ekki síður fullorð-
inna. Það er aðall góðra bama-
bóka.“
Herdís Egilsdóttir.
Halldór E. Sigurðsson
rekur minningar sínar
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hefur gefið út síðara bindi
endurminninga Halldórs E. Sig-
urðssonar fyrrum ráðherra sem
Andrés Kristjánsson bjó til prent-
unar.
í fréttatilkynningu útgefanda
segir m.a.: „Halldór E. Sigurðsson
var ráðherra í sjö ár og alþingis-
maður í aldarfjórðung.
Þegar Halldór heldur áfram að
rekja æviminningar sínar í þessari
bók, víkur hann sögu sinni að þessu
tímabili. Að sjálfsögðu greinir hann
öðra fremur frá þeim málefnum,
sem hann átti hlut að sjálfur á Al-
þingi og í ríkisstjóm, en segir h'ka
sitt álit á fjölmörgfum öðram stór-
málum, átakaviðburðum og fram-
vindunni í þjóðmálum.
Halldór segir einnig frá litríkum
stjómmálaferli í Vesturlandskjör-
dæmi og sveitarstjóm í Borgamesi.
Frásögnin kryddar hann oft með
hnyttnum gamansögum, sem hann
er svo ríkur af, og fylgir jafnan
nokkur alvara.
En síðast en ekki síst era þessar
minningar fáum líkar fyrir þann
geysilega mannfjölda, sem þar er
leiddur fram á sviðið og sagt frá.
Þar er bæði um að ræða fólkið í
kjördæmi hans, Vesturlandi, sam-
starfsfólk og stjómmálamenn, bæði
samheija og andstæðinga í pólitík-
ÍIIJ.\ \ VI* liKlA
IL\IJIK«E.
Sl(d KDSSON
rekur minningar sínar
OBN OG ORLYOUR
inni. Þama koma margir helstu
stjómmálamenn tímabilsins við
sögu.“
Bókin er sett og prentuð í Prent-
stofu G. Benediktssonar og bundin
hjá Arnarfelli hf. Kápu hannaði
Sigurþór Jakobsson.
#ekum
VDÐ
MENN
SKUGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF.
Helga Halldórsdóttir
írá Dagverdará
Öll erum vid menn
Helga Halldórsdóttir segir hér írd íólki,
sem hún kynntist sjdlí á Snœíellsnesi,
og einnig íólki, sem íoreldrar hennar
og aðrir sögðu henni frá. Þetta em írá
sagnir aí sérstœðum og eítirminni-
legum persónum, svo sem Magnúsi
putta, Leirulœkjar-Fúsa, Pórði sterka
o.íl. Kaíli er einnig um Jóhannes
Sveinsson Kjarval listmálara og sagt
er írá skáldunum Bólu-Hjálmari,
Sigurði Breiðfjörð, Jónasi Hallgríms-
syni og Símoni Dalaskáldi. Mikið er af
vísum í bókinni, sem margar haía
hvergi birst áður.
Pétur Eggerz
Ævisaga Davíðs
Davíð vinnur á skrilstoíu snjalls fjár-
málamanns í Washington. Hann er í
sífelldri spennu og í kringum hann er
sííelld spenna. Vinur hans segir við
hann „Davíð þú veist ol mikið. Pú
verður að íara frá Ameríku eins íljótt
og auðið er. Pú ert orðinn eins og
peningaskápur íullur aí upplýsing-
um. Peir vita að þú segir ekki frá. En
þeir óttast að einhverjum slóttugum
bragðareí takist að leika á þig, opna
peningaskápinn og hagnýta sér
upplýsingarnar."
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjarœtt III
Árni Óla
Reykjavík
fyrri tíma III
Hér em tvœr síðustu Reykjavíkur-
bœkur Áma Óla, Sagt írá Reykjavík
og Svipur Reykjavíkur, geínar
saman út í einu bindi. Petta er þriðja
og síðasta bindið aí ritinu Reykjavik
íyrri tíma. í þessum bókum er geysi-
mikill fróðleikur um persónur, sem
mótuðu Reykjavík og settu svip á
bœinn. Nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höfuðborg landsins
og forvemnum er hana byggðu. Frá-
sögn Árna er skemmtileg og liíandi,
og margar myndir prýða baekurnar.
Petta er þriðja bindi nýrrar útgáíu af
Víkingslœkjarœtt, niðjatali Guðríðar
Eyjólísdóttur og Bjama Halldórssonar
hreppstjóra á Víkingslœk. í þessu
bindi em niðjar Jóns yngra Bjarna-
sonar. Alls verða bindin fimm í
þessari útgáfu af hinu mikla œtt-
írœðiriti Péturs Zophoníassonar.
Myndir af þeim, sem í bókinni em
nefndir, em fjölmargar eins og í fyrri
bindum ritsins, og mun fleiri heldur
en vom í íyrstu útgáfunni.