Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
Samkomulag um tafar-
laust vopnahlé í Líbanon
Beirút, AP, Reuter.
SVEITIR amal-shíta og Frelsis-
samtaka Palestínu komust
síðdegis í gær að samkomulagi
um tafarlaust vopnahlé. Harðir
bardagar höfðu geisað í gær
þrátt fyrir vopnahlé, sem taka
átti gildi klukkan 18 á sunnu-
dag.
Paul Watson:
Aðgerðir gegn jap-
önskum veiðimönniim
Frá Guðlaugi Bjarnaayni, fréttaritara Morgunblaðsins i Vancouver, Kanada.
PAUL Watson lætur nú í sér
heyra eftir nokkurt hlé. Hann
ætlar að láta til skarar skríða
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
GENGI dollarsins hækkaði í
gær gagnvart öllum helstu
gjaldmiðlum nema kanadíska
dollarnum. Lítil breyting var
á gullverðinu.
Gjaldeyrissalar sögðu, að
miklar neysluvörupantanir í
Bandaríkjunum hefðu átt þátt í
að styrkja dollarann og einnig
það, að búist er við, að vextir
kunni að hækka nokkuð vestra.
Flestir spáðu því þó, að gengis-
hækkun __ dollarsins yrði
skammæ. í gærkvöld fengust
fyrir dollarann 162,38 jen en
162,80 á föstudag og fyrir pund-
ið 1,4165 dollarar á móti 1,4285
fyrir heigi. Gagnvart öðrum
gjaldmiðlum var staðan þessi í
gærkvöld miðað við gengis-
skráningu á föstudag:
2,0125 v-þýsk mörk (1,9945).
1,6800 sv. frankar (1,6627).
6,5850 fr. frankar (6,5325).
2,2725 holl. gyll. (2,2520).
1.391,50 ít. lírur (1.380,50).
1,3780 kan. dollarar
(1,3803).
I London lækkaði verð á gulli
í 386,70 dollarar únsan en var
í 389 dollurum á föstudag.
gegn japönskum fiskimönnum að
vori. Telur hann að japanskir
fiskimenn stundi ólöglegar veið-
ar í Kyrrahafi. Hver þeirra drepi
ótölulegan fjölda af höfrungum
og hnísum á ári hverju.
Watson ætlar að sigla Sea Shep-
herd á japönsk fískimið, slæða upp
net þeirra og eyðileggja. Ekki lætur
hann þess getið hvort hann verði
um borð eða sitji í Vancouver og
stjómi skæruverkamönnum sínum
héðan. Ekkert orð hefur borist frá
kanadískum stjómvöldum vegna
þessa eða vegna skemmdarverk-
anna á íslandi.
Mæla geislun
á Grænlandi
Kaupmannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
DÖNSK og bandarísk yfirvöld
hafa komizt að samkomulagi um
geislamælingar á Grænlandi í
framhaldi af slysinu í sovézka
kjamorkuverinu í Chemobyl.
Samkvæmt samningnum leggja
Bandaríkjamenn til mælitæki, sem
komið verður fyrir á næsta ári í Thule
og Constable Point á Jamesons-landi
á austurströndinni. Danskir menn
fylgjast með tækjunum en frekari
úrvinnsla gagna og rannsóknir á sýn-
um fer fram í Bandaríkjunum.
Niðurstöðumar verða afhentar
dönsku kjamorkuvísindastofnunni í
Risö í Danmörku.
Fulltrúar amal-shíta og hinna
ýmsu fylkinga Palestínumanna
áttu fundi í gær í Damascus, höf-
uðborg Sýrlands, og þar náðist
samkomulag um vopnahlésskil-
málana. Samkvæmt þeim munu
sveitir Palestínumanna hverfa frá
bænum Maghdousheh í Suður-
Líbanon og shítar hliðhollir
Irönum halda uppi friðargæslu.
Jafnframt verða matarbrigðir og
hjálpargögn flutt til Rashidiyeh
flóttamannabúðanna nærri Tyre
en amal-shítar hafa setið um þær
undanfama tvo mánuði.
íranir höfðu reynt að fá hinar
stríðandi fylkingar til að lýsa yfir
vopnahléi í bardögum um fimm
flóttamannabúðir Palestínumanna
í Beirút og Suður-Líbanon og átti
það að taka gildi klukkan 18 á
sunnudaginn. Nabih Berri, leið-
togi amal-shíta og Frelsisfylking
Palestínu, sem nýtur stuðnings
Sýrlendinga, höfðu samþykkt að
koma á vopnahléi á sunnudag en
Yasser Arfat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínu, var því mótfallinn.
Þegar þetta varð ljóst snerist
Nabih Berri hugur og bardagar
hófust á ný.
Stúdentaólætin:
AP/Símamynd
Einn námsmaður lést í ólátum í París um síðustu helgi. Myndin sýn-
ir Iækni reyna að endurvekja hinn 22 ára gamla Malik Ouessekin
aftur til lifsins. Yfirvöld hafa afráðið að rannsaka hvort lögreglu-
menn beri á einhvern hátt ábyrgð á dauða hans.
Ekkí sambærileg við
óeirðimar árið 1968
- segir Daniel Cohn-Bendit, „Rauði Danni“.
Frankfurt, Reuter.
ÓLÆTIN í París eru að flestu
leyti ólík stúdentaóeirðunum þar
árið 1968, að sögn Daniel Cohn-
Bendit, „Rauða Danna, sem var
einn helsti leiðtogi stúdenta árið
1968.
„Rauði Danni" sagði í viðtali við
Reuters fréttastofuna í gær að und-
irrót ólætanna í París að undanf-
ömu væri áhyggjut stúdenta af
afkomu sinni í framtíðinni. í óeirð-
unum 1968 hefði markmið stúdenta
hins vegar verið að umbylta þjóð-
félaginu.
Daniel Cohn-Bendit stundaði
nám við Naterre-háskóla árið 1968
þegar óeirðimar bmtust út.
Franska stjómin lýsti hann óæski-
legan vegna afskipta hans af
baráttu stúdenta og var hann gerð-
ur útlægur til tíu ára. Hann tilheyrir
nú hinum „raunsæja armi“ flokks
Græningja í Vestur-Þýskalandi og
hefur verið í framboði fyrir flokkinn
í Frankfurt.
Lögreglumenn sprauta vatni á stjóraarandstæðinga, sem söfnuðust sl. sunnudag við flugvöllinn í Taipei
sl. Ætluðu þeir að fagna komu eins leiðtoga stjórnarandstöðunnar frá Bandaríkjunum.
Kosningarnar á Formósu:
Lýðræðisflokkurinn
hlaut 21,6% atkvæðanna
Taipei, Formósu. AP.
í kosningunum, sem fram fóra á
Formósu um helgina, gerðist það
i fyrsta sinn 1 yfir 35 ár, að
stjórnarandstöðuflokkur hlaut
umtalsvert fylgi, þótt ekki tækist
honum að ógna rótgrónu veldi
Þjóðeraissinnaflokksins.
Niðurstöður kosninganna urðu
þær, samkvæmt tilkynningu yfír-
kjörstjómarinnar, að Þjóðemis-
sinnaflokkurinn, eða Kuomintang,
hlaut 67,5% atkvæðanna í kosning-
unum, sem fram fóm á laugardag,
en Lýðræðisflokkurinn hlaut 21,6%.
Afgangurinn skiptist á milli óháðra
og tveggja smáflokka, sem hlið-
hollir em ríkisstjóminni.
í kosningunum 1983 naut Kuo-
mintang fylgis 70% kjósenda.
England:
Mannfórnir Engilsaxa
London, AP.
FUNDIST hafa grafir Engilsaxa
frá 6. og 7. öld, i austur Eng-
landi, sem þykja beri merki þess
að fólkinu hafi verið fóraað.
Að sögn breska dagblaðsins The
Independent, hafa verið opnaðar
níu grafír í þorpinu Sutton Hoo í
Suffolk og hefur hinum látnu verið
komið fyrir í ýmsum stellingum og
einhveijir jafnvel verið grafnir lif-
andi. Árið 1939 fannst konungsgröf
frá sjöttu öld í þessu sama þorpi
og hefur dýrgripum þeim er í gröf-
inni vom verið komið fyrir í „The
British Museum". Enn er eftir að
rannsaka um 500 grafír sem þama
em. Áður hafa fúndist merki um
mannfómir frá svipuðum tíma, um
250 kílómetmm fyrir norðan Sutton
Hoo, við bæinn Sewerby.
Astralía:
Þrír grænfrið-
ungar handteknir
Hobart, Ástraiíu, AP.
ÞRÍR liðsmenn Greenpeace
samtakanna voru handteknir í
borginni Hobart í gær eftir að
þeir höfðu reynt að stöðva lest-
un fransks flutningaskips sem
flytur byggingarefni til Suður-
skautslandsins. Greenpeace
samtökin fullyrða að flugvall-
arbygging þar ógni lífi
mörgæsa.
Tveir mannanna vom klæddir
mörgæsabúningum og hlekkjuðu
þeir sig fasta við gröfu eina sem
stóð á hafnarbakkanum. Mennimir
vom kærðir fyrir skemmdarverk
og yfirgang. Talsmaður samtak-
anna sagði mennina hafa ætlað
að koma í veg fyrir flutninga á
byggingarefni til Suðurskauts-
landsins en þar hyggjast Frakkar
leggja 1.100 metra langa flugbraut
nærri Dumont D’urville rannsókn-
arstöðinni. Greenpeace-menn segja
að flugbrautin muni ógna lífi mör-
gæsa sem lifa á þessum slóðum.