Morgunblaðið - 09.12.1986, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
41
Sovétstjórnin skipar nýjan sendiherra á íslandi:
Fundurinn varð
Kosarev að falli
Moskvu, AP, Reuter.
SOVETSTJÓRNIN hefur skipað
Igor Krasavin sendiherra á ís-
landi og- tekur hann við af
Yevgeny Kosarev, sem skipað
hefur stöðuna frá þvi í júlí árið
1984. Tass-fréttastofan segir, að
Kosarev hafi verið settur á eftir-
laun en talið er, að honum hafi
verið vikið frá vegna frammi-
stöðu sinnar varðandi leiðtoga-
fundinn i Reykjavík.
utanríkisráðuneytinu í Moskvu.
Fréttir frá Islandi herma, að
Kosarev hafi verið kallaður heim
vegna klúðursins, sem varð með
komu Gorbachevs til landsins vegna
leiðtogafundarins. Kom hann til ís-
lands 9. október, sama dag og
Alþingi íslendinga var sett, og
vegna þess gátu hvorki forseti
landsins né forsætisráðherra tekið
á móti honum.
Embættismaður í sovéska sendi-
ráðinu í Reykjavík sagði, að ut-
anríkisráðuneytinu í Moskvu hefði
verið skýrt frá samkomudegi Al-
þingis en ekki fengið nein svör.
Einn af embættismönnum, sem
voru í fylgd með Gorbachev, var
spurður hvetjum væri um að kenna,
að svona hefði tekist til og svaraði
hann þá á þessa leið: „Ef sendiherr-
ann verður hér enn á morgun þá
Yevgeny Kosarev
veistu, að hann er saklaus af allri
sök.“ Kosarev fór frá íslandi rúmri
viku eftir að leiðtogafundinum lauk.
Iranar fá
vistáltalíu
Róm, Reuter.
ELLEFU írönskum flóttamönn-
um, sem urðu innlyksa á Fiumicio
flugvelli í Róm í nóvember, hefur
verið veitt dvalarleyfi á Ítalíu þar
tíl mál þeirra verður til lykta
leitt, að því er haft er eftir yfir-
völdum á flugvellinum.
Þessir ellefu íranar.eru andvígir
stjóm Ayatollahs Khomeini og voru
meðal þrettán flóttamanna frá íran,
sem millilentu í flugvél á leið frá
Ðubai. ítölsk yfívöld kyrsettu íran-
ana þegar í ljós kom að þeir höfðu
hvorki vegabréfsáritun til Svíþjóð-
ar, né Kanada, en þangað var för
þeirra heitið. Manni og konu úr
hópnum var þegar veitt tímabundið
dvalarleyfí þar sem konan var ólétt.
Krasavin hefur verið í sovésku
utanríkisþjónustunni frá 1953.
Hann var háttsettur í sovéska
sendiráðinu í Helsinki á ámnum
1975-80 en hefur síðan starfað í
Kína:
Frjáls-
hyggja í
fangelsum?
Peking, Reuter.
UMBÆTUR Kínverja á sviði
efnahagsmála hafa nú náð inn
fyrir veggi stærsta fangelsis í
Peking, en þar er feiknleg
plastskóverksmiðja.
Fangi einn hannaði nýja skógerð
og fékk fyrir vikið fímm daga leyfi
frá störfum, þótt ekki væri hann
látinn laus, og 100 yuan (um 1.000
krónur íslenskar).
Fangar, sem ekki em jafn upp-
finningasamir, fá ekki jafnmikla
aukagetu, milli 20 og 40 krónur á
mánuði.
Kínversk stjórnvöld hafa nú leyft
bilinu milli þeirra lægst og hæst
launuðu að breikka til að auka
fmmkvæði í framleiðslu og efna-
hagslífi landsins.
Gróðasjónarmiðinu hefur verið
gert hærra undir höfði í Kína en
áður og hefur það haft í för með
sér að föngum, sem dæmdir em
fyrir þjófnað og fjárdrátt, hefur
fjölgað.
Yfírfangavörður stærsta fangels-
is í Peking segir að nú sitji aðeins
30 andbyltingarsinnar í fangelsinu
en alls sitji þar 1.950 menn innan
veggja.
Bandaríkin:
Auglýsingar
á salernum
State College, Pennsylvaníu, Banda-
ríkjunum, AP.
TVEIR menn, Charles Wareham
og Larry Warner, stofnuðu fyrir
nokkru óvenjulegt auglýsinga-
fyrirtæki: þeir sjá um að setja
upp auglýsingar á salernum.
„Fyrstu viðbrögð allra sem við
töluðum við vom almennur hlátur,"
segir Wamer þegar hann lýsir því
þegar þeir félagar fyrst reyndu að
koma hugmynd sinni um auglýsing-
ar á almenningssalemum á fram-
færi. „En eftir örlitla umhugsun
bættu menn við: þetta er frábær
hugmynd."
Wamer telur að menn verði ein-
faldlega ánægðir með að hafa
eitthvað að lesa meðan þeir gera
þarfir sínar. „í raun lestu hvað sem
er meðan þú situr á klósettinu,
meira að segja framleiðslunúmerið
á hjömm hurðarinnar."
„Hugmyndin virðist vissulega
vera út í hött,“ segir einn sem aug-
lýsir hjá nýja fyrirtækinu. „En víst
er að maður nær athygli viðskipta-
vinarins."
Atlantis hefur einkaumboð á ís-
landi fyrir töflureikninn VP-Planner
og gagnasafnskerjöð
VP-Info.
Ótrúlega
hagstætt verð!
SKÚLAGATA 51
105 REYKJAVÍK - SÍMI 621163
VP-Planner er öflugur töflureiknir,
samhæfður við Lotus 1, 2, 3 . Án
erfiðleika er unnt að ganga beint í
gögn sem unnin hafa verið á Lotus.
Að auki býður VP-Planner upp á
nýja notkunarmöguleika, sem miða
að fljótari vinnslu.
VP-Planner getur einnig unnið
með gagnaskrár í dBASE II, dBASE
III, dBASE III+ og VP-Info.
VP-Info er öflugt og hraðvirkt
gagnasafnskerfi, samhæft við dBASE
II, dBASE III og dBASE III+
VP-Info býður upp á margar nýjar
skipanir, sem miða að því að einfalda
og stytta notendaforritin.
VP-Info getur unnið með allt að 13
skrár í einu, þar af 6 opnar. VP-Info
vinnur tvisvar til tíu sinnum hraðar
en flest önnur gagnasafnskerfi.
Nýjimgar við áætlanagerð
— og gagnavinnslu —
f öflureiknirinn VP-Planner
ignasafnskerfið VP-Info
essemm sía