Morgunblaðið - 09.12.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
49
Listi Sjálfstæðis-
flokksins tilbúinn
LISTI Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra
fyrir næstu alþingiskosning'ar
var endanlega ákveðinn um helg-
ina. Fimm hlutu bindandi kosn-
ingu í prófkjöri flokksins í haust
en 13 manns skipa listann.
Halldór Blöndal alþingismaður
er í 1. sæti, Björn Dagbjartsson
alþingismaður er í 2. sæti, Tómas
Ingi Olrich menntaskólakennari
skipar 3. sætið, Vigfús Jónsson
bóndi það 4. og Margrét Kristins-
dóttir húsmæðrakennari 5. sætið.
í prófkjörinu varð Stefán Sig-
tryggsson, Akureyri, í 6. sæti en
kjörnefnd setti hann ekki á listann.
í 6. sæti listans er Svavar Magnús-
son Ólafsfirði, Helgi Þorsteinsson
Dalvík er í 7. sæti, Davíð Stefáns-
son Akureyri í 8., Bima Sigur-
bjömsdóttir Akureyri í 9., Kristín
Kjartansdóttir Þórshöfn í 10., Vald-
imar Kjartansson Hauganesi í 11.,
Helgi Ólafsson Raufarhöfn í 12. og
Gísli Jónsson menntaskólakennari á
Akureyri í 13. sæti.
Eftir að tillaga kjömefndar að
framboðslista hafði verið lesin upp
a fundinum á laugardag tók aðeins
einn maður til máls, Stefán Sig-
tryggsson. Hann sagði: „Að lesinni
tillögu kjömefndar vil ég að fram
komi að ég gaf kost á mér til setu
í 6. eða 7. sæti framboðslistans.
Nú er hins vegar ljóst að Akur-
eyringi dugar ekki fylgi 43% gildra
atkvæða í prófkjöri til setu í 6. eða
7. sæti á lista Sjálfstæðismanna í
kjördæminu." Eftir þessi orð Stef-
áns var listinn samþykktur með
öllum greiddum atkvæðum. Stefán
sagðist í samtali við Morgunblaðið
ekki hafa farið „í fylu" þegar ljóst
var að nafn hans var ekki á listan-
um, hann hefði aðeins viljað láta
fyrrgreindar staðrejmdir koma
firam.
Sólveig Hjaltadóttir hefur kastað freyðivínsflösku í stefni skipsins
og skýrt það Oddeyrin.
Oddeyrin skírð og- afhent
ODDEYRIN, fyrra raðsmíðaskipið sem Slippstöðin hf. smíðar, var
afhent eigendum sinum á sunnudag. Þá skýrði Sólveig Hjaltadóttir,
eiginkona Jóns ívars Halldórssonar skipstjóra, skipið en eigandi er
Samherji, hlutafélag sem að stærstum hluta er í eignu Akureyrarbæj-
ar, Samheija og K. Jónssonar og Co.
Oddeyrin er 300 tonn að stærð og um borð er fullkominn útbúnaður
til vinnslu rækjunnar. Skipið fór í sína fyrstu veiðiferð seint á sunnudags-
kvöld - og stefndi á miðin við Grímsey. Slæmt veður hefur verið á miðunum
undanfarna daga og þegar Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Samheija sem gerir skipið út, ræddi við skipstjórann um miðjan dag
í gær hafði hann enn ekki getað hafið veiðar. 13 manns verða í áhöfn
Oddeyrinnar.
Oddeyrin EA 210 er annað skipið sem Slippstöðin hf. smíðar fyrir út-
gerðaraðila á Akureyri - og fyrsta stálskipið sem þar er smíðað og gert er
út frá bænum. Skömmu fyrir 1960 smíðaði fyrirtækið trébátinn Björgvin
EA, sem var fyrsti frambyggði þilfarstrébáturinn sem smíðaður var í
Slippstöðinni en Björgvin var smíðaður fyrir Pál A. Pálsson hrefnuskyttu.
Alþýðubandalagið:
Steingrímur
í fyrsta sæti
STEINGRÍMUR Sigfússon, al-
þingismaður, varð efstur í
forvali Alþýðubandalagsmanna i
Norðurlandskjördæmi eystra
vegna væntanlegra alþingiskosn-
inga. Forvalið fór fram um
helgina og hlaut Steingrímur
79,6% atkvæða í fyrsta sætið.
Félagsbundnir Alþýðubandalags-
menn á svæðinu eru 320 en forvalið
var bundið við þá. 217 tóku þátt.
í öðru sæti varð Svanfríður Jon-
asdóttir með 57,3% atkvæða í 1.
og 2. sæti. Sigríður Stefánsdóttir
varð í þriðja sæti með 62,1% at-
kvæða í 1.-3. sæti og í fjórða sæti
varð Björn Valur Gislason með 46%
atkvæða í 1.-4. sæti. Sjö tóku þátt
í prófkjörinu - auk framangreindra
voru það Benedikt Sigurðarson,
Örlygur Hnefill Jónsson og Auður
Ásgrímsdóttir.
Forvalið er ekki bindandi. Upp-
stillingamefnd setur nú saman lista
sem lagður verður fyrir kjördæmis-
ráð.
Mágkonur Ólafar, frá vinstri Sigrún Finnsdóttir og Emelía Gústafsdóttir, vinningshafinn Ólöf
Ananisdóttir og bróðir hennar Sigurður Ananisson.
Ólöf Ananíasdóttir, 29 ára ekkja, hlaut 3,2 milljónir króna í lottóvinning;
“Trúði alltaf að maður gæfi ekki
bara - heldur gæti líka þegið“
Dætur Ólafar heima í stofu i Norðurgötunni • á sunnudagskvöld-
ið er móðir þeirra var á skjá sjónvarpsins i þættinum Geisli.
Vinstra megin er Brynhildur Margrét 11 ára. Hún heldur á
Bryndísi, sem er aðeins þriggja mánaða og hægra megin er
Hafdís, 7 ára.
„ÞAÐ ERU um þijár vikur
síðan góð kona hér í bæ bað
mig að fylgjast vel með sjötta
degi einhvers mánaðar. Hún er
skyggn og sagði að ég fengi
eitthváð mikið upp í hendurn-
ar. Mér datt ekkert sérstakt i
hug en efaðist þó aldrei um að
eitthvað myndi gerast. Ég trúði
alltaf að maður gæfi ekki bara
- heldur gæti líka þegið.“ Ólöf
Ananíasdóttir, 29 ára ekkja og
þriggja bama móðir á Akur-
eyri, sagði þetta i samtali við
Morgunblaðið i gær en á laug-
ardaginn (6. desember) var hún
ein með allar fimm tölumar
réttar i lottó-leiknum og hlaut
rúmlega 3,2 milljónir króna í
vinning.
Ólöf missti eiginmann sinn,
Sölva Sölvason sjómann, fyrir
tæpum tveimur mánuðum. Hún
sagðist í gær vera viss um að
lottóvinningurinn væri ekki tilviij-
un heldur hefðu forlögin átt þátt
í honum. Ólöf á þijár dætur, 11
ára, 7 ára og þriggja mánaða.
Hún var spurð hvemig dætur
hennar hefðu tekið tíðindunum
um vinninginn og svaraði þá:
„Þær tóku þessu mjög vel, sáu
að lífíð er ekki eintóm leiðindi -
heldur er líka til gleði í því.“
Vinningstölumar á laugardag-
inn voru 2, 3, 10, 29 og 13. Fjórar
fyrstu tölumar era afmælisdagar
fjölskyldumeðlimanna og sú
síðasta happatala mágs Olafar.
Hafdís, sem er sjö ára, er fædd
2. dag mánaðar, Ólöf sjálf og
yngsta dóttirin Bryndís 3. daga
mánaðar, Sölvi heitinn var fæddur
10. dag mánaðar og Brynhildur
29. dag mánaðar. Auk þess að
vera með eina röð með fímm rétt-
um vora mæðgumar með eina röð
þar sem fjórar tölur vora réttar.
„Við voram með íjóra miða í
síðustu viku - eina á mann. Elsta
dóttir mín fékk svo að kaupa einn
til viðbótar að þessu sinni og hann
var sameign. Það var vinning-
smiðinn," sagði Ólöf í gær.
En hvernig varð henni við er
hún áttaði sig á að fimm réttir
væra á miða hennar? „Ég varð
hryllilega hrædd. Ef þetta yrði
nú eitthvað stórt! Ég var nefnilega
ekki farin að fylgjast svo vel með
þessu að ég hafði ekki hugmynd
um hve potturinn var stór. Ég
komst þó fljótt að því vegna þess
að ég var í veislu hjá vinafólki
mínu og þar var verið að ræða
um þetta. Það var svo um nóttina
að ég komst að því að ég var ein
með fímm rétta." Ólöf sagðist í
gær varla vera búin að átta sig
enn á að hún hefði fengið vinning-
inn. „Þetta er þægileg en íjarlæg
tilfínning." Hún fær vinninginn
greiddan út næsta laugardag.
„Mér skilst að það verði í beinni
útsendingu þegar dregið verður
næst. Ég á að fara suður aftur,
og hetet við allar mæðgumar,"
sagði Ólöf.
Þrátt fyrir þennan stóra vinn-
ing sagðist Ólöf verða að halda
áfram að lifa sínu eðlilega lífí.
„Það er eitt og hálft ár síðan við
keyptum íbúðina okkar og hér
ætla ég að vera. Bömin era það
ung að ég geri allt til að raska
ró þeirra sem minnst. Þau vilja
ekki fara annað."
Alþýðuflokkurinn:
Tveir vilja 1. sætið
TVEIR gefa kost á sér i 1. sæti
á lista Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra fyrir
næstu alþingiskosningar og þrír
í annað sætið. Frestur til að til-
kynna þátttöku i prófkjöri sem
verður síðari hluta janúarmánuð
rann út á laugardagskvöldið.
Vitað var um fjóra þátttakend-
anna en sá fimmti kom mönnum
á óvart - það er Arnór Benónýs-
son, leikari. Arnór er frá að
Hömrum í Reykjadal en starfar
sem leikari í Reykjavík.
Þá kom í ljós að Freyr Ófeigsson
bæjarfulltrúi á Akureyri ákvað að
taka ekki þátt í prófkjörinu eins og
reiknað hafði verið með.
Ámi Gunnarsson fyrram alþing-
ismaður og Kolbrún Jónsdóttir
alþingismaður stefna bæði á 1.
sæti listans. Ámi var í fyrsta sæti
A-listans í kjördæminu í síðustu
kosningunum en náði ekki kjöri.
Kolbrún var kjörin á yfirstandandi
þing fyrir Bandalag Jafnaðarmanna
en er nú genginn í Alþýðuflokkinn.
Eins og áður sagði gefa þrír kost
á sér í 2. sætið, auk Arnórs Benón-
ýssonar era það Sigbjöm Gunnars-
son og Hreinn Pálsson.