Morgunblaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1986
57
Elín G. Ólafsdóttir
„Það fyrsta sem blasir
við þegar skýrslu
Braga er flett er það
hversu litlar og lítið
leiðbeinandi upplýsing-
ar er þar að finna um
nám og starf í grunn-
skólum.“
komin viss skýring á þessum frétt-
um.
Það alvarlegasta við fréttaflutn-
ing eins og þennan um viðhorfa-
könnun Braga Jósepssonar er að
ekki er gerð minnsta tilraun til að
gera grein fyrir tilgangi eða hug-
myndum sem liggja að baki svona
könnun, ekki er reynt að skýra fyr-
ir fólki eðli og annmarka kannana
af þessu tagi eða gerð tilraun til
að vega og meta gildi þeirra. í kann-
anaflóði samtímans er fólk einfald-
lega hætt að geta greint á milli
vísinda og gervivísinda, trúir þar
af leiðandi oft of mikið á áreiðan-
leika niðurstaðna þeirra án tillits
til raunverulegs gildis þeirra.
Fréttaflutningurinn er lævís og vill-
andi.
Að ófrægja almenn-
ingsskólana
Víkjum örstutt að könnun Braga,
án þess að ég ætli mér í þessari
umferð að gera annað en rétt að
vara fólk við og benda því á að
taka henni með fyllstu varúð.
Til að fyrirbyggja misskilning
fullyrði ég að við kennarar fögnum
öllum heiðarlegum tilraunum til
úttektar á skólastarfí. Við fögnum
öllum athugunum sem gætu verið
leiðbeinandi um það hvar við erum
á vegi stödd við að ná settum mark-
miðum laga. Athugunum á því
hvort við erum á réttri leið, hvar
okkur hefur borið út af leið, athug-
unum sem hafa það að markmiði
að gera kennara og foreldra al-
mennt betur í stakk búna til að
bæta skólakerfíð. Hér er því miður
ekkert slíkt á ferð.
Að mínu viti eru hér á ferð afar
hæpin vísindi, villandi lýsing á heið-
arlegum svörum grandalausra
foreldra og kennara, til þess eins
fallin að blekkja fólk en jafnframt
í meðförum Morgunblaðs augljós
ófræging almenna skólans. Verið
er á hæpnum forsendum að selja
fólki hugmyndina um einkaskóla.
Hrekklaust fólk hefur tilhneig-
ingu til að trúa því sem víðlesnasta
blað landsins og lektorar í uppeldis-
fræðum láta frá sér fara á þrykk
út. Auðvitað á fólk að geta treyst
því að þannig sé staðið að málum
að ekkert fari þar milli mála.
Heimanám sjö
ára barna
Það fyrsta sem blasir við þegar
skýrslu Braga er flett er það hversu
litlar og lítið leiðbeinandi upplýsing-
ar er þar að finna um nám og starf
í grunnskólum. Þar er á ferð álit
kennara og foreldra 7 ára bama í
nokkrum skólum í Reykjavík, álit
sem fengið er með mismunandi
spumingum um sama efni, settum
fram með hálfs árs millibili og svör-
in síðan borin saman! Annars vegar
er spurt um atriði sem varða sam-
skipti og þjónustu skóla, s.s. aðstoð
þegar um námsörðugleika eða
námshæfíleika bama er að ræða,
líðan í skóla og hins vegar er spurt
um kennslu í lestri, skrift og reikn-
ingi og áherslu á heimanám
bamanna. í því efni er spurt hvort
foreldrar telji að 7 ára bamið hafi
fengið góða tilsögn í þessum náms-
greinum. Kennarar eru aftur á
móti spurðir hvort skólinn leggi
áherslu á kennslu í þessum grein-
um. Varðandi spumingu um
kennslugreinamar og heimanám
verður fólk að hafa í huga hvaða
aldur þama er á ferð. Heimanám í
7 ára bekk!
Engar skilgreiningar
á skólagerðum
Hvað varðar skólagerðimar sem
gengið er út frá þá er og afar at-
hugavert að könnuður gerir ekki
minnstu tilraun til að skilgreina
hvað hann á við þegar hann talar
um „opinn skóla", „hefðbundinn
skóla“ og „einkaskóla". Það hefði
nú verið lágmark.
Hvað er svo einkáskóli þama, jú,
þar er átt við landsfrægan smá-
bamaskóla sem starfað hefur við
góðan orðstír í áratugi. Foreldrar
Bændur í V-Húnavatnsýslu
Framkvæmd búvöru
laganna gagnrýnd
Staðarbakka, Miðfirði.
SÍÐASTLIÐINN föstudag var
haldinn fjölmennur bændafund-
ur í félagsheimilinu Ásbirgi í
Mlðfirði. Fundarboðandi var
stjórn Búnaðarsambands Vest-
ur-Húnavatnssýslu og fundar-
stjórar voru Olafur Óskarsson
og Eiríkur Tryggvason. Þing-
menn kjördæmisins höfðu verið
boðaðir á fundinn og mættu þeir
allir nema Eyjólfur Konráð Jóns-
son sem var erlendis.
Frummælendur vom þeir Aðal-
steinn Benediktsson ráðunautur og
Qunnar Sæmundsson __ formaður
Búnaðarsambandsins. Átöldu þeir
allharðlega ýmsa framkvæmd bú-
vörulaganna og þær reglugerðir
sem gefnar hafa verið út í því sam-
bandi. Sérstaklega þó því óréttlæti
sem frumbýlingar væm beittir með
kvótaúthlutun á sauðfjárafurðir og
létu nokkrir yngri bændur í ljós
álit sitt á þeim málum og skýrðu
frá slæmri reynslu sinni. Það kom
fram einnig í framsöguræðum að
samkvæmt könnun á búsetu á
Norðurlandi er fram fór á vegum
Ræktunarfélags Norðurlands, að
Vestur- Húnavatnssýsla væri hvað
best fallin til framleiðslu sauðfjára-
furða bæði ef litið er til bygginga
á jörðum og landgæða. Væri því
mjög þjóðhagslega óhagstætt ef
sauðQárbúskapur drægist hér mikið
saman. Skomðu þeir á þingmenn
kjördæmisins og alla sem hlut ættu
að máli að standa saman að þvi að
koma fram nauðsynlegum breyting-
um á gildandi reglugerð.
Virtist svo sem menn væra mjög
sammála í þessum aðalatriðum þó
skiptar skoðanir væm um áherslu-
atriði en allir töldu útlitið mjög
ískyggilegt að öllu óbreyttu. Fjöl-
margir tóku til máls enda munu
fundarmenn hafa verið á þriðja
hundrað og talað var án hvfldar í
sex tíma. Það vakti athygli að
ýmsir málsmetandi menn á
Hvammstanga tóku til máls og
töldu ískyggilegt með afkomu-
möguleika í kauptúninu ef framleið-
sal í sveitunum drægist stórlega
saman.
Að lokum var ýtarleg fundará-
lyktun borin upp og samþykkt
samhljóða.
Benedikt.
greiða skólagjald fyrir bömin sín
og ferðast janvel með þau langar
leiðir dag hvem til að koma þeim
í skólann. Gæti ekki hugsast að
þessir foreldrar hefðu jákvæðari
viðhorf til skólastarfs en aðrir? Þar
með er auðvitað ekkert sagt um
hvemig foreldrar þetta em yfír
höfuð. Þessi eini skóli er svo borinn
saman við alla venjulegu skólana.
Hvað segir þetta okkur? Ef til vill
að almennu skólanir þurfí meiri
peninga? Gæti það verið að langvar-
andi flársvelti til skólanna ætti að
leysa með því að selja allt dótið og
láta foreldrana halda skólana úti?
Eða hvað er þama á ferð annað
en lævís auglýsing um þessa stefnu?
Það er margt undarlegt við þessa
könnun og fréttaskýringu í kjölfarið
sem dregur svo ákveðið fram ágæti
einkaskóla umfram það sem þorra
bama hér á landi býðst að fyllsta
ástæða er til að velta fyrir sér hvað
sé hér á ferð. Fólk skyldi vara sig
á skruminu.
Einka- þetta
og einka- hitt
Það blása svo sannarlega ein-
kennilegir vindar í landi „velsældar"
sem ekki hefur efni á að borga
venjulegu launafólki kaup. í landi
þar sem allur þorri fjölskyldna býr
við slíka vinnuþrælkun að þær em
ekki samvistum nema lítið brot úr
degi hveijum. Ef aftur á móti er
um að ræða einka- þetta eða einka-
hitt, eitthvað sem ekki er ætlað
nema sumum, er því hampað svo
með ólíkindum er. Er furða þótt
spurt sé hvort raunvemlega sé ætl-
unin að markaðssetja skólakerfíð
og koma hér á enn meiri ójöfnuði
en þegar er. Vonandi bemm við
forráðamenn bama gæfu til að beij-
ast gegn slíkum hugmyndum og
vísum þeim til föðurhúsanna.
BLÓMAVASAR í ÖLLUM STÆRÐUM
OG GERÐUM
VASAR SKREYTTIR AF LEONARD
Eigum Iistmuni frá HUTSCHENREUTHER hannaða
af ýmsum heimsfrægum listamönnum.
Póstkröfuþjónusta.
CORUS
HAFNARSTRÆTI17-REYKJAVÍK
SÍMI22850
Höfundur er kennari og kynning-
arfulltrúi hjá Kennarasambandi
íslands