Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
11
Guðrún Helgadóttir
nú himnaföðurinn að taka ekki um
of mark á orðum karls.
Pabbinn er á sjó og við kynn-
umst bæði skorti og bjargálnum.
Því miður þá eru svona fjölskyldur
ekki til lengur, ættliðir hafa hrein-
lega ekki efni á að búa saman, svo
hafa staurblind stjómmál ginnt fólk
í hlekki þrælsins. Við kynnumst
þjóðfélagi sem metur bátskrifli
meir en mannslíf, útgerðarblesi
fitnar en sjómannsekkja flosnar upp
er bátur hverfur í hafíð.
Sagan er bráðvel skrifuð, stund-
um hélt ég um magann af hlátri,
t.d. þegar strákormamir em sendir
í sveit og fólk tekur að fella
krókódílstár, nú eða þegar ein-
kunnabókin lendir í læknum og
týnist. Svona myndir dregur aðeins
upp sá sem bömum ann. Nú, ekki
má gleyma sumum samtölum afa
og ömmu: „Hann hefur kveikt í
bátnum, karlskrattinn, sagði afí og
tók í nefíð. Svo fær hann bátskrifl-
ið margborgað hjá vátryggingunni.
Megi almáttugur góður guð fyrir-
gefa þér, Magnús minn, að láta
þetta heyrast, sagði amma og
stmnsaði niður stigann."
Það væri illa gert að greina meir
frá efni bókarinnar, ræna lesandann
ánægjunni að kynnast efninu sjálf-
ur. En hér er á söluborði afbragðs
bók, fyndin og sönn.
Myndir Sigrúnar falla ágætavel
að efni.
Hafí höfundar og útgáfa þökk
fyrir gott verk, meira að segja próf-
örk nálgast að vera villulaus.
Þeir sem unna bömum ættu að
skoða þessa bók.
Þráinn Karlsson i „Er þetta einleikið.“
sögumaður raunar að vera svo kom-
inn til ára sinna, að það er hreint
furðulegt, að hann skuli vera jafn
brattur og raun bar vitni um.
Þráinn Karlsson gerði sögumanni
ágæt skil, hann hefur afar fallega
og skýra framsögn, góða rödd og
ágætar hreyfíngar. Mætavel leikið
og umgerðin prýðileg. Fyrri hluti
sýningarinnar Vamarræða mann-
kynslausnara fannst mér satt að
segja áhrifameiri, þótt hann sé
kannski ekki jafn leikrænn. Öllu
heldur var hér á ferð ágætur upp-
lestur, með nokkmm tilbrigðum, á
smásögu. Þar greinir frá hugsjóna-
manni - eða geðsjúklingi. Eða
hvomtveggja. Skilin em hvort eð
er ekki alltaf klár og kvitt. Hann
er læknir út á landi og kemst að
því með vísindalegum athugunum,
að sjálfs síns dómi, þegar hann
snýr heim frá framhaldsnámi, að
flestir þorpsbúar hafí selt skrattan-
um sál sína. Hann vill bjarga einni
sál og með þeim afleiðingum, að
hann er ákærður fyrir manndráp.
Þráni tókst að draga upp átakan-
lega mynd af þessum hugsjónageð-
veikismanni og lýsti hroðaatburð-
unum og það sem varð aflvaki
þeirra eftirminnilega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þuríður Pálsdóttir og Jónína Michaelsdóttir árita nýju bókina „Líf
mitt og gleði“ í bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
lífsleiðinni."
„Líf mitt og gleði“ er 272 bls.,
prýdd fjölda mynda. Prentsmiðjan
Oddi hf. prentaði. Auglýsingastof-
an Krass/Guðrún Ragnarsdóttir
hannaði kápu.
GAMLI MIÐBÆRINN
Uppákomur
og dagskrá
í Gamla miðbænum
Helgina 14.—15. desember
Laugardagur 14. desember:
HLEMMTORG KL. 14.00:
lólasveifla. Lúðrakvintéttinn Tónhirðarnir leika nokkur jólalög með léttri sveiflu.
KL. 14.20:
Ijóðalestur. Kjartan Árnason skáld les úr bók sinni Dagbók Lasarusar. Skáldið áritar
og selur bókina á staðnum.
LAUGAVEGUR 7 KL. 15.00: (við Landsbankann)
Unglingatónlelkar. Sverrir Stormsker kynnir plötu sína Lífsleiðin(n). Herbert Guðmunds-
son kynnir plötu sína Time Flies.
KL. 15.30:
Jólasveinamlr koma í heimsókn og gefa börnunum góðgæti.
▼ GAUKUR Á STÖNG KL. 15.00:
Bókmenntakynning. Lesið verður úr eftirfarandi verkum: Refska: Kristján J. Gunnars-
son, höfundur les. Eins og hafiö: Fríða Á. Sigurðardóttir, Guömundur Ólason les.
Konungur af Aragon: Matthías Johannessen, Sigurður Valgeirsson les. Flýgur yfir bjarg
Gunnar Gunnlaugsson, höfundur les. Sjöstjarnan í Meyjarmerkinu: Jónas Svafár. Níu
lyklar: Ólafur Jóhann Ólafsson. Á matarslóðum: Sigmar B. Hauksson, höfundur les.
LÆKJARTORG KL. 15.30:
Jólasveifla. Lúðrakvintettinn Tónhirðarnir leika nokkur jólalög með léttri sveiflu.
KL. 15.45:
LJóóalestur. Kjartan Árnason skáld les úr bók sinni Dagbók Lasarusar. Skáldið áritar
og selur bókina á staðnum.
<#>
HLAÐVARPINN KL. 10.00:
©
Listmunasala. Nemendur Myndlista- og handiðaskóla íslands sýna og selja verk sín.
Sýningin stendur daglangt.
KL. 15.00:
Tónleikar. Kvennabandið blæs m.a. nokkur jólalög.
KL. 15.30:
Söngkvartett. Söngkvartettinn Ömmusystur syngja nokkur lög.
KL. 16.00:
Bamaskemmtun. Sigrún Eldjárn les úr bók sinni Bétveir — Bétveir. Iðunn Steins-
dóttir les úr bók sinni Jólasveinarnir.
Jólasveinarnlr koma í heimsókn og gefa börnunum góðgæti, leika og syngja.
Sunnudagur 15. desembenf
AUSTURVÖLLUR KL. 15.30:
Lúörablástur. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur jólalög.
KL. 16.00:
Afhendingarathöfn. Sendiherra Noregs á íslandi afhendir Reykjavíkurborg jólatré að
gjöf frá Oslóborg.
KL. 16.30:
Jólasvelnaskemmtun.
LÆKJARTORG KL. 17.00: ~
Unglingatónleikar. Hljómsveitin Rauðir fletir leikur lög af plötu sinni Ljónaskógar.
©