Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Island
Myndlist
Valtýr Pétursson
ísland er heiti á sýningu Ólafs
Sveins Gíslasonar í Nýlistasafni.
Hann er einn af þeim ungu mönn-
um, sem hafa stundað framhalds-
nám við myndlistarskóla í
Þýzkalandi að undanförnu, og er
nú á ferð með sína fyrstu sýningu.
Það eru myndir undir gleri, gerðar
með blandaðri tækni, og nokkrir
skúlptúrar, sem Ólafur hefur valið
til sýningar á þessari fyrstu sýningu
við Vatnsstíg.
eru að jafnaði artistisk, en þama
skortir mig orð á íslenzkri tungu.
Listfengi mætti ef til vill tala um,
en sá þáttur, sem hér um ræðir í
list Ólafs Sveins, kemur afar greini-
lega fram í teikningum hans og
smámjmdum, en þær munu í eðli
sínu snögg heilabrot um skúlptúr-
verk og forvitnileg fyrir þá, er
skyggnast vilja frekar í hug lista-
mannsins. Ég hafði ánægju af
þessum þætti listar Ólafs Sveins,
en sannleikurinn er sá, að hann
hefur verið heldur sjaldséður á þeim
sýningum, sem yfir dynja hér í okk-
ar ágætu borg um þessar mundir.
Fjörutíu og sex listaverk eru alls
á sýningu Ólafs Sveins. Megnið af
þessum verkum eru gerð með
blandaðri tækni, eins og áður segir.
Eggtempera, vatnslitir, gips,
marmari, akryllitur, pappír, blek og
blý eru þau efni, sem Ólafur Sveinn
notar við myndgerð sína, og sum
verkanna í sýningarsölum safnsins
skila sér ágætlega í höndum Ólafs
Sveins. Einkum eru það sumar af
teikningum hans, sem vöktu áhuga
minn, en einnig fannst mér skúlpt-
úrinn segja mér nokkuð. Það er
nýlegur tónn í þessum plastísku
verkum, sem unnin eru úr ýmsum
efnum og sýna vissar tilraunir, sem
virðast vera í mótun og gefa góð
fyrirheit. En eitt virðist einkenna
verk Ólafs Sveins fremur öðru: Þau
Hjá eldri myndlistarmönnum okkar
var þetta snar þáttur hjá mönnum
eins og Jóhannesi Sveinssyni Kjarv-
al. Hann átti það til að afgreiða
hlutina með fáum línum á meistara-
legan hátt og stundum sér maður
þetta koma fyrir í verkum Kristjáns
Davíðssonar.
í sambandi við sýningu Ólafs
Sveins er gefin út bók með teikning-
um hans. Er það mjög snoturt rit,
hið vandaðasta og eigulegt mjög.
Teikningamar eru vel valdar og
skila sér ágætlega. Þetta litla rit
er til sóma þeim, sem unnið hafa,
og ætti fólk að eignast það og
styðja þennan unga framsækna
listamann um leið. Þakka fyrir
skemmtilega stund með ferskum
verkum.
Sauðfjárbændur í Árnessýslu:
Efasemdir um aðgerð-
ir Framleiðnisjóðs
Á MEÐAL sauðfjárbænda í Ár-
nessýslu eru miklar efasemdir
um réttmæti þess að fækka sauð-
fé á þann hátt sem gert hefur
verið á vegum Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins að undanfömu.
Á almennum bændafundi sem
haldinn var um þessi mál á Borg
í Grímsnesi 2. desember síðastUð-
inn var ályktað í þessa vera.
Benti fundurinn á eftirfarandi
atriði í því sambandi:
„Byggð byggist víða að lang-
mestu eða öllu leyti á sauðfjárrækt.
Þar sem sauðfjárbúskapur byggist
meira á félagslegri samhjálp en
aðrar greinar landbúnaðar getur
óskipulegur niðurskurður valdið því
að heil svæði leggjist í eyði, þegar
þeir sem eftir verða gefast upp. Á
þetta meðal allars við um nokkra
staði í Ámessýslu.
Með sauðflárbúskap er hægt að
nýta mikið af landi sem ekki er
unnt að nota til annars landbúnaðar
og fullyrða má að hófleg beit skað-
ar ekki landi.
Ull og gærur eru mikilvæg hrá-
efni til iðnaðar og skortur á þeim
kippir grunni undir atvinnu fjölda
fólks.
Útflutningur á dilkakjöti er alltaf
mögulegur og ekki vonlaust að
markaðir finnist sem gefa fullt
framleiðslukostnaðarverð. Jafnvel
geta þær aðstæður myndast að kjöt
sem verður til í hreinni óspilltri
náttúru verði verulega eftirsótt.
Það er því mat fundarins að við-
halda beri sauðfjárræktinni í
landinu. Vinna verður að því að fá
viðurkenningu stjómvalda og al-
mennings á mikilvægi hennar og
leggja mikla áherslu á leit að mörk-
uðum fyrir kindakjöt erlendis.
Mælir fundurinn eindregið með
því að Landsamtök sauðfjárbænda
fái aðstöðu til að ráða markaðs-
fulltrúa."
i Vönduð dúkkurúm
til sö/u
Hvítmáluð með rósamynstri og einnig úr furu í þremur stærðum.
Auður Oddgeirsdóttir,
húsgagnasmiður, sími 99-4424
og einnig veittar uppl. í síma 91-84021.