Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
21
Elsku
Allt
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Alice Walker:
Purpuraliturinn.
Ólöf Eldjárn þýddi.
Forlagið 1986.
í*urpuraliturinn er lífsreynslu-
saga frá Suðurrílq'um Banda-
ríkjanna, en kemur víða við í þeirri
viðleitni sinni að lýsa sárri fátækt
og niðurlægingu örbirgðarinnar.
Þetta eintal svertingjakonu við Guð
og systur sína í fjarska er um leið
tilraun til að lýsa raunum heils
kynstofns á jörðinni. Það merkilega
við söguna er aftur á móti að það
sem tekst, er ekki aðeins það að
skýra betur en áður fyrir lesandan-
um sérstöðu bandarískra svertingja,
heldur sýna í hugskot fólks.
Purpuraliturinn er settur saman
á bemskan hátt í formi bréfs. En
í einlægni bókarinnar er fólginn
sigur hennar. Ólöf Eldjám hefur
freistað þess að ná stíl frumtextans
sem ekki lýtur málfræðireglum.
Þetta hefur að mínu mati tekist
nokkuð vel, en óhugsandi er að slíkt
verk sé hægt að vinna á fullnægj-
andi hátt.
Bréf Nettie, systur Celie, frá
Afríku vega þyngra en flest annað
í sögunni. Það er Celie sem segir
söguna og það sem dýpkar frásögn-
ina em lýsingar á samskiptum
hennar og söngkonunnar Shug
Avery. Shug veitir henni dálitla
hlutdeild í ástinni, en áður hefur
Celie bara verið veitandi í þeim efn-
um.
Karlmennimir í sögunni em
flestir litlir karlar að leika skepnur,
en umkomulausir undir niðri. Kon-
umar em stærri og hlýrri. En það
er enginn dæmdur í Purpuralitnum.
Lífið er bara svona og erfítt að
ráða við það.
Purpuraliturinn er bók um von.
Þrátt fyrir svartnættið er alltaf ein-
hver glóra.
Lokakaflinn hefst á þessum orð-
um:
„Elsku Guð. Elsku stjörnur, elsku
tré, elsku himinn, elsku fólk. Elsku
Allt. Elsku Guð.“
Purpuraliturinn er opin bók,
þmngin lífí. Hún er í senn skrifuð
af vanmætti og styrk. Hún er á
köflum daufleg í framsetningu og
endurtekningar er of mikið um. En
þrátt fyrir allt hefur hún eitthvað
að segja okkur. Fyrst og fremst sem
lífsreynslusaga.
Piðþurfiðekkiað
lenguryfir þessu-
-HANGIKJÖTIÐ ER FRÁ OKKUR
Og hangikjötið frá Kjötiðnaðarstöð KB er gott. Allt frá fyrsta
munnbita mælir það með sér sjálft. Borgarneshangikjötið er
úrvalskjöt, vel taðreykt svo að bragð er að. Sem sagt: Ijúf-
fengt hangikjöt við hvers manns hæfi og hentar við öll tæki-
færi.
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ @) Borgarnesi sími 93-7200
„POTTÞÉTTA “
ELDAVÉLIN FRÁ PHILIPS
Verð kr.
Hafnarstræti 3, sími 20455
Auglýsingastofa SÖB