Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
51
annars vegar og á þekkingu á and-
legum þroskaþörfum, þ. á m.
máltöku og málskilningi.
Maður hefur oft þekkt foreldra,
sem gera ógnarlegt flaðrafok út af
bami, sem er eilítið smámælt, en
maður þekkir einnig foreldra, sem
ekki hyggja að því þó að 5 ára
gamalt bam þeirra tali naumast
nema tveggja orða setningar og
geti ekki sagt frá einföldum hlutum
í rökréttu samhengi.
Mín trú er sú, að mikil þörf sé
að vinna að þessu verkefni, að þvi
þurfa að sjálfsögðu að vinna málvís-
indamenn og fólk með þekkingu á
þroskaþörfum bama og einnig hag-
leiksfólk á sviði dagskrárgerðar.
Hér er verðugt verkefni að takast
á við, verkefni sem ég hygg að
sameini fólk en sundri ekki og ef
vel tekst til tel ég, að það muni
vega þungt í þeim efnum, að ást-
kæra, ylhýra málið verði ekki í
framtíðinni einungis talað hreint og
ómengað af nokkmm menntamönn-
um^ heldur af allri alþýðu manna.
Eg færi þessar hugleiðingar
mínar í letur á þeim tíma árs þegar
sólargangur er stystur hér á norður-
hveli jarðar. Sá tími var íslending-
um löngum dijúgur til lesturs og
skrifta. Nú hygg ég, að í þeim efn-
um sé öldin önnur og að þessi tími
einkennist um of af margs konar
veraldarvafstri og óþarfa umstangi.
Foreldrar hafí of lítinn tíma til
að sinna frumþörfum bama sinna,
þörfum sem vikið hefur verið að
hér að framan. Mörgum fóstrum
finnst þessi tími, aðventan, ein-
kennast um of af spenningi og
óstöðugleika.
Þá er það að sjálfsögðu ein af
okkar höfuðskyldum að mæta þörf-
um bamanna og skapa ró og festu
í daglegu starfi.
Nú þegar aðventan gengur í garð
setjumst við með bömunum kring-
um kertaljós og leiðum þau inn í
heim þjóðsagna og ævintýra en
framar öllu öðm leiðum við þau að
lágum stalli alla leið austur í Betle-
hem og segjum þeim einu sinni enn
söguna um fæðingu Jesú Krists og
friðarhátíðina, sem í hönd fer.
Á jólaföstu 1986.
Höfundur er fóstra og forstöðu-
maður Dagheimilisins Fálkaborg-
ar. Hún hefur starfað á dagvistar-
heimilum Reykja víkurborgar sl.
36 ár.
Hlekkur nefnist þessi api, sem
myndin í Háskólabíói fjallar um.
Háskólabíó
sýnir Hlekkinn
HLEKKUR (Link) nefnist kvik-
mynd sem Háskólabíó hefur
tekið til sýninga.
Myndin fjallar um prófessor sem
hefur mikið rannsakað hinn svo-
nefnda óþekkta hlekk milli manna
og apa. Hann hefur þjálfað nokkra
apa vel, þó sérstkalega einn sem
hann kallar Hlekk og gegnir sá
einskonar þjónustuhlutverki á
heimili prófessorsins. Ungur stúd-
ent, Jane, kemur til að læra og
vinna hjá prófessomum í hinu af-
skekkta húsi hans út við ströndina.
Nokkru eftir komu hennar hverfur
prófessorinn og ýmsir dularfullir og
óhugnanlegir atburðir taka að ger-
ast. Með aðalhlutverk fer Terence
Stamp, sem meðal annars hefur
leikið undir leikstjóm Fellini og
Schlesinger og í hlutverki Jane er
Elisabeth Shue (Karate Kid). Leik-
stjóri er Richard Franklin, sem m.a.
leikstýrði Psycho 2.
(Úr fréttatilkynningu)
Sé SS merkið á jólasteikinni þinni getur þú verið viss um
gæðin, því allar jólasteikur Sláturfélagsins eru eingöngu
unnar úr nýju, fyrsta flokks hráefni.
<
(/)
■2
t
SLATURFELAG V*f*/ SUÐURLANDS