Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
55
Esús í Notre Dame.
ís — Esús
Til ritstjóra Morgunblaðsins
eftirKolbein
Þorleifsson
Sunnudaginn 7. desember birtist
athyglisvert viðtal Illuga Jökulsson-
ar við Agnar Þórðarson rithöfund,
þar sem í fyrsta skipti eru reifaðar
opinberlega hugmyndir um nafngift
íslands sem mjög hefur verið rætt
að morgni dags á Hressingarskál-
anum undanfarin ár. Frumkvæði
þeirrar umræðu kom upphaflega frá
Gunnari Dal skáldi, sem hefur það
fram yfir flesta íslendinga að hafa
farið til Indlands á ungum aldri.
Ég tók síðan við og kannaði rann-
sóknarefnið eftir þvi sem mér
reyndist unnt. Vegna þess að mér
hefur viljandi verið haldið frá kenn-
arastólum í íslenska skólakerfínu,
hefí ég ekki haft aðstöðu til að
kynna skoðanir mínar formlega í
fyrirlestrum í háskóla.
Nú hefiir Agnar Þórðarson riðið
á vaðið og kynnt hugmyndimar um
guðdóminn ís bæði í Ameríku og
hér á landi. Mér líkar það vel, því
að með því er boltinn sendur til
mín. Væntanlega mun ég því setj-
ast niður f náinni framtíð og gera
grein fyrir hinum vísindalegu rök-
semdum, sem liggja að baki við-
talsins við Agnar Þórðarson. En
áður en ég get gengið frá slíkri rit-
gerð, verður Morgunblaðið að birta
mynd af guðdóminum sem ísland
heitir í höfuðið á. Af honum era
með vissu til tvær myndir; ein und-
Kolbeinn Þorleifsson
an háaltarinu í Notre Dame-kirkj-
unni í París frá tímabilinu 14—49
e. Krists burð; önnur frá Trier í
Mósel-dal. Fyrri myndin hefur nafn
guðdómsins: Esús. Kirlqusögulega
séð verður það að teljast nokkuð
mikilvægt, að til skuli vera mynd
af guðdóminum, sem fyrsti kristni
biskupinn á íslandi var skírður í
höfuðið á: ísleifur Gissurarson.
Höfundur er kirkjusagnfræðingur.
Eskifjörður:
Nýjar endurvarpsstöðvar
Gskifirði.
NÝLEGA tók Póstur og sími í
notkun nýjar endurvarpsstöðvar
á Eskifirði fyrir ríkisútvarpið.
Rás I er núna send út á FM 99,8
og rás II á 97,2.
Útsendingar útvarpsins á FM
bylgju hafa lengi verið afleitar og
hafa Eskfírðingar t.d. ekki átt þess
kost að njóta útsendinga f steríó,
enda hafa þeir fram að þessu verið
háðir endurvarpi frá Gagnheiði. En
nú er sem sagt búið að bæta úr
því og geta menn hér nú notið
fyllstu hljómgæða við útvarpshlust-
un sína.
Hér ergripurinn
Nákvæmni
í þína þágu.
BRÆÐURNIR
DJ ORMSSON HF
LADMULA 9 SIMI 38820
Það er Helga Gunnarsdóttir tónlistarfræðingur
sem valdi lög og Ijóð í bókina. Ragnheiður
Gestsdóttir myndlistarmaður sá um útlit
bókarinnar og skreytti hana hinum fegurstu
litmyndum.
Fljúga hvítu fiðrildin verður kærkomin á öllum
heimilum þar sem böm em og nauðsynleg
fóstmm og kennumm.
r
Fljúga
hvltu
fiðrildin
Söngbók bamanna.
Fljúga hvítu fiðrildin, söngbók bamanna, geymir
á annað hundrað kvæði og vísur, ásamt nótum
og gítargripum. Hér em gamlir húsgangar sem
allir þekkja, stökur og vísur sem hafa verið
raulaðar við böm frá ómunatíð - Við skulum róa
sjóinn á... Stígur hún við stokkinn ... Hér em
gamalkunn kvæði eins og Nú er frost á Fróni,
Litlu bömin leika sér... Hér em vinsæl ný
bamalög, til dæmis um hjólin á strætó og
söngvar fyrir alla eins og Maístjaman,
Afmælisdiktur, Islénskt vögguljóð á hörpu og
mörg fleiri.
Nótur og gítargrip fylgja hveijum texta og auk
þess em hljóðfæraleiðbeiningar aftast í bókinni
og skrár, bæði yfir upphöf og heiti kvæðanna og
efnisflokka þeirra.
Verð: 1590.-.
Við bjóðum til
bókaveislu
um þessi jól
Mál og menning
- Ingólfur.