Morgunblaðið - 12.12.1986, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
í undraheimi Hamsuns
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Knut Hamsun: Rósa
Andrés Björnsson þýddi
Útg. Almenna bókafélagið 1986.
BENÓNÍ Hartvigsen er ein
þekktasta persónan í skáldverkum
Knut Hamsuns. Benoní svipar til
annarra persóna höfundarins frá
þessum árum upp úr aldamótunum.
En um margt er Benoní marg-
þættari í einfaldleikanum. Og í
báðum bókunum eru mannlýsingar
snjallar og alveg óborganlegar. Það
er mikið gleðiefni að fá nú seinni
Benoní bókina í íslenzkri þýðingu.
Sagan um Rósu er sögð af stúd-
entinum Parelíusi, sem kemur til
stuttrar dvalar og hyggur á veiði-
ferð með vini sínum. Hann flendist
á staðnum, því að hann fellir ástar-
hug til Rósu. Áður en Parelíus kom
til sögunnar hafði Rósa verið gift
Nikulási Arentssyni úr Hringj-
arabæ, miklum ólánsmanni. Sú
sambúð blessaðist ekki og þau eru
nú skilin að skiptum. Rósa útskýrir
þó fyrir Parelíusi, að eiginlega sé
aldrei hægt að skilja til fulls. Ung-
um og ástföngnum stúdentinum
gengur örðuglega að skilja þær fló-
knu tilfinningar.Parelíu verður þess
líka áskynja, að Rósa hafði svikið
Benoní vegna Nikulásar, en nú er
farið á örla á löngun hjá Rósu til
að koma aftur til Benonís. Það er
nokkur fyrirstaða í báðum, hvemig
þau eiga að bera sig að við að ná
saman, eftir það sem á undan er
gengið. Baronessan, dóttir Macks á
Sælundi, sem við könnumst við úr
Pan.lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna, fremur en fyrri daginn. Hún
er slóttug og slungin og vekur af-
brýðissemi Rósu og það ræður
úrslitum.
Það er í sjálfu sér ekki megin-
málið að rekja söguþráðinn í Rósu.
Hann er í Hamsunskum stfl, ein-
faldur, innilegur, orðfár og segir
þó allt. Persónusköpun Hamsun á
sér ekki sinn líka, að mínum dómi,
bragðarefurinn Mack sem á nú orð-
ið allt undir Benoní, en hefur samt
virðinguna og öll tök þar sem hann
vill. Hvort heldur er í hinum fjöl-
skrúðugu og forkostulegu kvenna-
málum eða í rekstri stórfyrirtækis-
í AUSTURSTRÆTI
Mt í bátíða
matmn...
Gimílegt kfötborð
og glæsílegt úrval
af ávöxtum
markaðurinn
er ævintýraheimur
Ótrúlega fjölbreytt úrval
af sælgæti og lúxuskonfekti
í glæsilegum gjafaöskjum.
Blombergs jólaglöggíð!
er komið - þetta eina sanna.
Danskar smjörbakaðar
smákökur í boxum.
• ODENSE ekta marzipan
Bökunarmarzipan
Konfektmarzipan
Opíð tíl kl. 19 í dag,
en til kl. 18 á morgun
laugardag.
Knut Hamsun
ins þeirra Benonís. Gilbert lappi
verður enn skýrari og nánari per-
sóna en í Benoní. Rósa, sjálf
aðalpersónan, ljúf og þó ólgandi af
ástríðu, hljóðlát og manneskjuleg.
Mannlýsingin á Edvördu er kannski
eftirminnilegust. Ásamt Benoní,
sem hefur nú reyndar stytt nafnið
sitt úr Hartvigsen í Hartwich. Enda
langtum virðulegra, þegar það er
komið upp á skiltið og kannski það
afli honum þessarar eftirsóttu virð-
ingar. Benoní er jafn undursam-
legur og fyrr, vænn og grobbinn
og drýldinn. Og hann er sjálfum sér
samkvæmur í allri ósamkvæmninni.
Þessar bækur komu út skömmu
upp úr síðustu aldamótum, eins og
áður sagði. Þær hafa því í sér allan
skyldleika við rómantíska tímnabi-
lið hjá Hamsun. En bera í sér
frjóagnir samfélagssagnanna, sem
brátt tóku við.
Þýðing Andrésar Bjömssonar á
Rósu er ákafiega góð. Hann nær
stfl og stílbrigðum Hamsuns, svo
að unun er að lesa bókina. Hamsun
er hvergi tyrfínn- síður en svo.
Hann er einfaldur og agaður og
blátt áfram og einfaldleikinn virðist
honum svo áreynslulaus, að aðeins
snillingar hafa slíkt á valdi sínu.
Því er ekki heiglum hent að skila
honum heilum og ómenguðum til
okkar. Það fínnst mér Andrési
Bjömssyni hafa tekizt. Og mikið
væri gaman ef hann héldi nú áfram
að færa Hamsun til okkar.
Syndir feðranna
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Syndir feðranna I. Sagnir af
gömlum myrkaverkum. Safnað
hefur Gunnar S. Þorleifsson. 2.
útgáfa endurbætt. Bókaútgáfan
Hildur, Reykjavík 1986.175 bls.
Eins og fram kemur hér að ofan
er þetta rit 2. útgáfa bókar með
sama nafni, sem kom út árið 1970.
í þessa útgáfu vantar tvo þætti sem
vom í þeirri fyrri, þ.e. Tyrkjaráns-
sögu Bjöms á Skarðsá og stuttan
þátt, sem nefnist „Hin blinda rétt-
vísi“. Síðamefndi þátturinn fjallar
um dómsmál og aftöku á Þingvöll-
um árið 1742 eða 1743. í stað
þessara tveggja þátta koma nú aðr-
ir tveir nýir: „Austur-Eyjafjallamál-
in“. Þar segir frá atvikum úr
embættisfærslu Páls Briems, sem
var sýslumaður í Rangárvallasýslu
1890—1894 og „Hrollvekja frá lið-
inni öld“. Það er frásögn af
húnvetnsku sakamáli, svonefndu
„Skárastaðamáli".
Þetta hefti er merkt I og bendir
það til að framhalds sé að vænta,
þó að fyrri útgáfan væri í einu
bindi. Birtast hér 15 frásöguþættir,
13 auk þeirra tveggja sem nefndir
hafa verið. Sumir þeirra em raunar
gamlir kunningjar, sem nú koma
til dyranna í nýjum eða nýlegum
klæðum. Hér er stutt frásaga af
Axlar-Bimi, þáttur um Schwartz-
kopf-málið fræga, sem nefnist
„Eiturbyrlarar á Álftanesi",
„Sunnuefumálin", .JCftirmáli að af-
töku, en þar segir frá úppgreftri
beina þeirra Agnesar og Friðriks
(eftir tilvísan miðils), sem höggvin
vom í Vatnsdalshólum árið 1830,
mál Þórdísar Halldórsdóttur frá
Sólheimum í Sæmundarhlíð, en
henni var drekkt á Þingvöllum árið
1618. Flestir þeir sem eitthvað em
kunnugir frásögnum frá liðnum öld- -
um munu kannast við að hafa lesið
um þessa hluti. Þættimir em að
vísu skrifaðir upp eða umsamdir sér
og skilningur skrásetjarans stund-
um frábmgðinn því sem maður
hefur átt að venjast.
Þá em þrír þættir sem stinga
nokkuð í stúf við venjulega sagna-
þætti og þá um leið annað efni í
þessari bók (enda teljast þeir naum-
ast til frásagna af „myrkaverk-
um“). Það em þeir sem nefnast
„Baráttan um jarlstign á íslandi",
„Hinzta förin" og „Vogun tapar".
Þessir þættir flokkast líklega helst
undir stuttar smásögur.
„Endurbæturnar“ frá fyrri út-
gáfu em eingöngu fólgnar í því að
skipt hefur verið um tvo þætti.
Þeir sem sameiginlegir em báðum
útgáfum em birtir óbreyttir.,
Ekki er ýkja mikið um sjálfstæð-
ar athuganir í þáttum þessum
annað en lestur prentaðra gagna
og túlkun þeirra. Sums staðar virð-
ist mér þó að betur hefði mátt gera
og hefði það ekki alltaf þurft að
kosta mikla vinnu, ef gert hefði
verið af þeim sem til þess em fær-
ir. En þar sem þetta kver er líklega
einkum hugsað sem dægrastytting
hefur varla þótt ástæða til þess. I
einu tilviki hefði ég þó talið við
hæfí að skoða dómabækur og kanna
önnur tiltæk gögn. Það er í þættin-
um um meinta valdníðslu Páls
sýslumanns Briems. Hér er látið
sitja við eina heimild samtíma-
manns, sem tekur mjög ákveðna
afstöðu. Þar em bomar fram ásak-
anir sem em svo alvarlegs eðlis að
rétt hefði verið að kanna sanngildi
þeirra nánar, þar sem um virtan
embættismann ræðir, sem enn á
náin skyldmenni á lífí.
Yfirleitt em þættir þessir lipur-
lega skrifaðir og því aðgengileg og
þægileg lesning.
Fremur er þó lítið borið í þessa
útgáfu. T.a.m. em nokkrar myndir
sem vom í fyrri útgáfu felldar nið-
ur. Engin heimildaskrá er og ekki
heldur nafnaskrá. Hvort tveggja
ætti þó að vera í riti sem þessu,
þó að það teljist naumast fræðirit.
Jólaævintýri eftir Stein-
unni Þ. Guðmundsdóttir
ÚT ER komin bókin Rauðu
stígvélin hans Gjafars litla eftir
Steinunni Þ. Guðmundsdóttur.
í fréttatilkynningu segir að
Steinunn Þ. Guðmundsdóttir skáld-
kona sem lést fyrir einu ári hafí
skilið eftir sig ljóð, sögur og mynd-
verk. í sumar kom út heildarsafn
ljóða hennar, og nefnist það Ljóð
og nú kemur myndasagan Rauðu
stígvélin hans_ Gjafars litla, sem er
jólaævintýri. I bókinni er jólasaga
ætluð börnum með fjórtán teikning-
um eftir Steinunni. Sagan kemur
út á vegum aðstandenda höfundar-
ins. Bókin er 33 bls., prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Odda hf.
Steinunn Þ. Guðmundsdóttir.