Morgunblaðið - 12.12.1986, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
„ Vil bjarga mikilsverðri
þekkingu á árnii frá gleymsku“
Einstæð bók um Elliðaárnar:
- sagði Ásgeir Ingólfsson, sem
safnað hefur heimildum í bók-
ina undanfarin fimmtán ár
ÚT ER komin bókin „Elliðaárn-
ar“ eftir Ásgeir Ingólfsson, sem
um árbil var varaformaður og
framkvæmdastjóri Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Bókin
er í stóru broti og prýdd yfir
100 litmyndum. Þekkingu sina
á ánum sækir Ásgeir til eigin
reynslu, föður síns, móðurbróð-
ur, afa, afabræðra og langafa
sem allir sóttu feng í Elliðaárn-
ar. „Segja má að ég hafi fyrst
byrjað að leggja drögin að bók-
inni fyrir fimmtán árum,“ sagði
Ásgeir í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins. „Hugmynd
mín er að bjarga mikilsverðri
reynslu og þekkingu á ánni frá
gleymsku, og leggja sögulegan
grundvöll að nánari tengslum
veiðimanna við árnar.“
Bókinni má skipta í tvo hluta.
í þeim fyrri leitar Ásgeir víða
fanga og rekur sögu Elliðaánna
allt frá þvi að þeirra var fyrst
getið í Landnámu og fram á okk-
ar daga. Hann sagðist hafa sótt
mikin fróðleik til afa síns og
bræðra hans. Allir nutu þeir hand-
ieiðslu langafa Ásgeirs Gunnlaugs
Péturssonar, borgarfulltrúa, sem
var veiðivörður við árnar í upp-
hafi aldarinnar. Einnig hefði hann
lagst í „grúsk“ á söfnum, Þjóð-
skjalasafninu, Borgarskjalasafni,
Landsbókasafni og Borgarbóka-
safni. Ásamt þeim fróðleik og
myndum sem Ásgeir gróf upp
með þessum hætti, eru í bókinni
birt viðtöl við veiðmenn sem
kunna góðar sögur af baráttu
sinni og annarra við þann stóra.
„Þegar saga ánna er rakin
kemur glöggt fram hversu oft
hefur staðið tæpt með framtíð
þeirra. Segir meðal annars af
hugmyndum Mitchels nokkurs,
athafnamanns í upphafí 18. aldar,
sem vildi lejða Elliðáárriar í
áveituskurð. Ég held einnig að
það komi flestum á óvart að í
byijun aldarinnar voru ámar í
eigu útlendings. Það mun vera í
einasta skipti sem íslensk lax-
veiðiá hefur verið flutt út,“ sagði
Ásgeir. „Eitt mesta niðurlæging-
artímabil ánna var þó sennilega
þegar Thomsen kaupmaður og
síðar sonur hans þvergirtu ána
með laxakistum, en þá hrundi öll
veiði í ánni. Síðar vík ég að þætti
Steingríms Jonssonar, rafmagns-
stjóra, sem ég tel hafa stuðlað
öðrum fremur að uppbyggingu
ánna af óþreytandi áhuga_ og
markvissri stefnu í laxarækt. Ám-
ar væm ekki það sem þær em
hefði hans ekki notið við.“
Síðari hluti bókarinnar er lýs-
ing á ánni frá sjónarhóli veiði-
mannsins. Allir þekktir veiðistaðir
em nefndir og útskýrt hvemig
best sé að veiða á þeim. Ásgeir
sagðist sjálfur hafa skrifað kaflan
með hliðsjón af fluguveiði, en
Þórarinn Sigþórsson tannlæknir
lagði til þekkingu á veiði með
maðk þar sem við á. Kaflanum
fylgja litmyndir af öllum hyljum
árinnar, sem Gunnar Vigfússon,
Rafn Hafnfjörð og Bjöm Rúriks-
son tóku. Er sjónarhomið jafnan
valið með tilliti til þess hvar veið-
manni er hyggilegast að standa.
Fremst í bókinni er loftmynd af
ánum þar sem merkt em inn öll
þekkt ömefni við þær. Ásgeir
hefur einnig grafið upp veiðistaði
í vesturánni sem nú er aðeins
lækjarspræna.
Asgeir sagði að hann teldi ekki
vanþörf á slíkri handleiðslu fyrir
þá sem ekki hafa haft tíma til að
kanna Elliðaámar til hlýtar. „Það
er orðið dýrt að veiða og algengt
að menn hafí aðeins hálfan dag
á sumri til ráðstöfunar. Á svo
skömmum tíma getur nýliðum
reynst ómögulegt að læra á ám-
ar. Þessi hluti bókarinnar er því
einskonar handbók fyrir veiði-
menn," sagði hann. „Líklega er
lýsingin á veiðistöðum einstök. í
þeim bókum sem ég hef aflað mér
erlendis frá hef ég hvergi fundið
MorgunDlaöiO/Ami Sæberg
Ásgeir Ingólfsson, höfundur bókarinnar „Elliðaárnar“, heldur
hér á veiðistöng af Hardygerð sem afi hans Ásgeir G. Gunnlaugs-
son notaði við veiðar í ánum á fyrri hluta aldarinnar.
svo ítarlegar lýsingar á laxveiði-
ám.“
Undir lok bókarinnar leitast
Ásgeir við að svara þeirri spum-
ingu hvemig framtíð Elliðaánna
verði best tryggð. Hann sagði að
í aðalatriðum væru tillögur sínar
þær að sem minnst yrði þrengt
að lífríki árinnar, og leitast við
að draga ekki úr gæðum vatns-
ins. Varðandi ræktun laxins
ræður hann frá stofnblöndun og
inngripi í val náttúmnnar. Ásgeir
sagðist binda miklar vonir við að
halda mætti ræktunarstarfí Raf-
magnsveitunnar áfram og efla
gróður í Elliðaárdalnum öllum.
Það gæti orðið góð viðbót við
núverandi útivistarsvæði við Ell-
iðavatn og í Heiðmörk. „Flestir
geta verið sammála um að Elliðar-
ámar em skart Reykjavíkur. Ekki
er vitað um aðra laxveiðiá sem
rennur í gegnum höfuðborg. Mik-
ils er um vert að menn þekki ána
og umgangist af þeirri virðingu
sem henni ber. Ég vona að bókin
stuðli að því,“ sagði Ásgeir.
BS
CHALLENGER
IÞROTTA
GALLAR
Húg|mfTv^in^]onTslBl^raállDlaMShKWtol^^
ImargakorarlfroðieiÍtfsemlMi^^
og talað við Steingrím
Hermannsson,
Kristján Fjeldsted,
Sigurð Fjeldsted,
Viðar Pétursson og
Sturlu Guðbjarnar-
» son, sem segir frá
| Tunguá.
Fróðleg bók og
skemmtileg.
Litir:
Blátt/hvítt/rautt.
St: 162-192
Rautt/hvítt/blátt
L St: 150-192
Grátt/dökkblátt/ljósblátt
L St: 174-198
gk Hvítt/dökkblátt/ljósblátt
WL St: 174-198
BÓKHLAÐAN
TlMAB/
■ • .
LAUGAVEGI 27 SÍMI 15599