Morgunblaðið - 12.12.1986, Síða 58
58
MORGUNBLAÐE), FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Klapparstíg 40.
Á HORNIKIAPPARSTIGS
OG GRETTISGÓTU S.117S3
IÞROTTAFATNAÐUR
Aldrei verið meira úrval
★ Leikfimi
★ Jassballett
★ Aerobik
★ Líkamsrækt
★ Fimleikaskór
★ Jassballettskór
Einnig mikiÖ úrval af Arena-sundbolum.
Heildsala - Sími 10330
SPORTVÖRUVERSLUN
JNGOLFS
Ó5KARSSONAR
Hraðinn í
myndlistinni
Vegna greinar Valtýs Péturssonar 6. des.
eftir ÓlafSvein
Gíslason
„Þessi verk eru öll meira og
minna sprottin úr þeim áhugamál-
um, sem einna helst hafa þvælst
fyrir myndlistarmönnum á alþjóða-
vettvangi að undanfömu, ekki síst
hjá þeim þýðversku, en mér sýnist
þó( )mar léttari í lund en þeir þar
í landi og leiti sér frekari fanga hjá
amerískum expressjónistum, en sá
hópur er ef til vill orðinn gamal-
dags, mörgum gleymdur og geng-
inn fyrir bí.“
„Draga mætti þá ályktun af því,
sem ungur listamaður lét eftir sér
hafa á prenti nýlega, en hann sagði,
að hraðinn í myndlistinni væri orð-
inn það mikill að vart væru mál-
verkin þomuð, áður en þeirra tími
væri mnninn, það má einnig tengja
þessi verk Ómars Stefánssonar
Cobra-tímabilinu, sem sennilega
heyrir fomöldinni til í hugum þeirra
ungu manna sem fylgjast vilja með.
En hvað um það.“ Þetta vom tilvitn-
anir í grein Valtýs Péturssonar, sem
birtist í Morgunblaðinu 6. des. sl.
Mig langar til að taka þær klaus-
ur fyrir, sem snúa að mér, en láta
Ómar Stefánsson í friði með allri
virðingu fyrir honum og hans verk-
um. Amerískur expressionismi
kemur aldrei til með að verða gam-
aldags og þaðan af síður gleymast,
þar sem hann hefur sína ákveðnu
staðsetningu og tilgang fyrir sinn
tíma. Það má einnig segja um
Cobra-tímabilið 1948-1951. Þetta
tel ég vera mjög nauðsynlegt að
skilja fyrir það fólk, sem vill fylgj-
ast með eins og Valtýr kallar það.
Ég orða þetta svona í þessari grein
í Morgunblaðinu þann 28. nóv. sl.,
DUNDURSAGA FYRIR
UNGLINGA
EFTIR
RÚNAR ÁRMANN ARTHÚRSSON
SAGAN ALGJORIR BYRJENDUR gerlst
í Reykjavík nútímans. Þar segir frá
ungllngsstráknum Grímsa og fyrstu ástlnni
hans, kunningjunum og fleira fólki
veturinn sem sprengjan sprakk. Ekkl alveg
tíðindalaus vetur það! Þessi fyrsta skáldsaga
Rúnars Ármanns er bæði skemmtileg og
spennandi aflestrar. Dúndursaga fyrir
ungllnga.
^Svort á íivítu
sem Valtýr vitnar í: „Það er geysi-
lega mikill hraði í myndlistinni sem
stendur. Blómaskeið manna standa
stutt yfir, þróunin er svo ör. Til
dæmis má segja að menn eins og
Jiri Georg Dokupil, Peter Bömmels
og Helmut Middendorf, sem voru
áberandi meðal þeirra sem kenndu
sig við nýja málverkið á árunum
milli 1978—1982, heyri nú þegar
sögunni til.“
Það hefur alia tíð eftir iðnbylting-
una verið mikil og hröð þróun í
myndlistinni og blómaskeið manna
staðið stutt þó svo forsprakkamir
hafí haldið áfram.
Það sem ég á við með því að
vera að nefna forsprakka þessa
svokallaða nýja málverks og þessa
fjóra myndlistarmenn, sem vinna
með skúlptúr, sem Valtýr sleppir
að nefna, er tilraun til að aðgreina
þá aðila, sem hafa verið eins og
uppspretta fyrir listheiminn á þess-
um ákveðna tíma og á þessum
ákveðna stað, á sama hátt og ab-
strakt expressionisminn og Cobra
voru fyrir sinn tíma. Þessi hraða
þróun hefur að sjálfsögðu heilmikið
með snarpa umfjöllun og eftirsókn
eftir nýjum hlutum á sjálfum list-
markaðinum að gera. Þjóðveijar,
svo ég haldi mig við það sem ég
þekki, gera sér augljóslega grein
fyrir mikilvægi myndlistarinnar fyr-
ir sitt þjóðfélag og fyrir sig sem
þjóð í samskiptum við aðrar þjóðir.
Þeir búa til listasöfn mikil að gæð-
um. Til þess að búa þessi gæði til
og fínna þau þurfa þeir að byggja
fólkið sitt upp, bæði leikmenn og
fagmenn. Listasöfnin leggja uppúr
því að gera grein fyrir samtímalist
hvers tíma, þannig má sjá listasöfn
víða um lönd, sem gera grein fyrir
Cobra og abstrakt expressionism-
anum vegna þess að þau skilja að
fortíð listaverksins er hluti af nútíð-
inni en nútíðin nær ekki að vera
og getur ekki verið hluti af fortíð-
inni eða tekið þátt í að móta þessa
fortíð. En einn daginn verður nútíð-
in fortíð. Ef eldri listhugmyndir
koma fram í verkum listafólks, þá
hlýtur það að vera einhverskonar
tilvitnun, sem getur verið áhuga-
verð.
Höfundur er myndlistarmaður
búsettur í Hamborg ogermeð
sýningu & verkum sínum íNýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b, um þessar
mundir.
Guðmundur Kristinsson ásamt
tveimur verka sinna.
Sýning
í Listveri
GUÐMUNDUR Kristinsson er
með sýningu í Listveri, Austur-
strönd 6, Seltjarnarncsi.
Guðmundur sýnir þar olíumál-
verk, vatnslitamyndir og pastel-
myndir. Sýningin er opin frá kl.
15.00-20.00.