Morgunblaðið - 12.12.1986, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
Hryðjuverk
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hlébarðinn. Sýnd í Regnbogan-
um. Stjörnugjöf: '/2
Þýsk-ítölsk. Leikstjóri: Ant-
hony M. Dawson. Handrit: Roy
Nelson. Framleiðandi: Erwin D.
Dietrich. Kvikmyndataka: Peter
Baumgartner. Helstu hlutverk:
Lewis Collins, Klaus Kinski.
Gettu hvað einræðisherrann í
þessari hryðjuverka- D-mynd úr
Suður-Ameríku heitir. Hér eru tvö
hjálparorð: Hómer og sósa. Hann
heitir Homoza. Hann á sjálfsagt að
vera skyldur Somoza en er líkari
einhveijum sem aldrei hefur lært
neitt í leiklist og er aðeins í mynd-
inni í gegnum klíku. Um aðra
leikara er nóg að segja að þeir
stefna ekki að Óskarsverðlaunum í
bráð.
Homoza þessi á í vandræðum
með Hlébarðann en það er byltinga-
foringi úti í sveit sem Lewis Collins
leikur illa. Homoza til aðstoðar er
klaus Kinski, sem ætti að fara að
tala við umboðsmanninn sinn um
þessar bíómyndir sem hann er far-
inn að leika í.
Til hagræðingar tala allir ensku
í þessari þýsk/ítölsku framleiðslu
og eru Suður-Ameríkubúarnir sér-
lega góðir í henni, aðal byltingakon-
an nær alltaf að varalita sig og
snyrta áður en myndavélin beinist
að henni, líkönin, sem sprengd eru
í loft upp eru haganlega smíðuð,
spennan er eins mikil og í litabók
og leikaramir haga sér yfirleitt eins
og krakkar um allan heim láta þeg-
ar þeir eru í kábojleik. Þeir sem
sitja út fram að hléi ættu að fá
ókeypis poppkom.
Verðhjöðnunin hefur áhrif
á fasteignamarkaðinn:
__
Overðtryggð
lán eru nú
varasöm
- að mati Fasteigna-
mats ríkisins
FASTEIGNAMAT ríkisins hefur
varað kaupendur fasteigna við
óverðtryggðum lánum fyrir eft-
irstöðvum kaupverðs fasteigna,
en slik lán hafa verið algeng í
fasteignaviðskiptum. í stað
þeirra telur Fasteignamatið rök-
rétt að komi verðtryggð lán með
föstum vöxtum til 6-10 ára.
í frétt frá Fasteignamatinu segir
að þau lán sem seljendur veita
kaupendum fyrir eftirstöðvum fast-
eignaverðs hafi til skamms tíma
verið óverðtryggð með fasta vexti,
20% síðustu árin. Á meðan verð-
bólgan var hærri en vextimir vom
þessi lán hagstæð en eftir verð-
hjöðnunina varð þar mikil breyting
á og þótt lánunum hafi fljótlega
verið breytt þannig að þau bera
hæstu lögleyfðu vexti svo framar-
lega sem þeir fari ekki upp fyrir
20%, em lánin nú með þeim óhag-
stæðustu sem kaupendur geta
fengið.
I fréttinni segir að svo virðist sem
kaupendur séu í auknum mæli fam-
ir að sneiða hjá þessum lánum. í
upphafi þessa árs vom þau 16,2%
af söluverði íbúða í Reykjavík en
undanfarna mánuði hafa þau lækk-
að niður í 11.5%. Verðtryggð lán
hafa hinsvegar hækkað úr 12,2% í
ársbyijun í 15,5% nú í haust.
Eftir að vextimir vom gefnir
fijálsir hefur gætt nokkurrar óvissu
um útreikning vaxta af þessum lán-
um því hæstu lögleyfðu vextir era
ekki gefnir út lengur. Því telur
Fasteignamatið ástæðu til að vara
við óverðtryggðu lánunum þar sem
þau hafi reynst óhagstæð og skapi
auk þess greiðendum vemlega
óvissu.
6f
k sem
Slökkvitæki, reykskynjarar é
Arinsett
Utskurðarjárn
Olíulampar og luktir í miklu úrvali
Vasaljós, luktir
Rafmagnsverkfæri í öll verk
Lyklasett USAG
Björgunarvesti á böm og fullorðna.
ÚLPUR — JAKKAR —
FRAKKAR — SIGLINGA-
JAKKAR OG FATNAÐUR í
ÚRVALI.
Loftvogir, klukkur,
sjónaukar
og líka allt til að mála
Kapp-klæðnaður
Norsku ullarnærfötin
Loðfóðraðir samfestingar
Ananaustum, Grandagarði 2,
sími 28855.
I fatadeildinni