Morgunblaðið - 12.12.1986, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986
77
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
áMHtíÉUff É-lí
Þessir hringdu .. .
Fundið úr
Vegfarandi hringdi og kvaðst
hafa fundið úr í Hafnarstræti.
Upplýsingar í s.19190 á vinnu-
tíma.
Jólavísa
12+8 hringdi og vildi gauka
jólavísu að þjóðinni. Hún er svona:
Fagurt veður úti að sjá
pllin skarta fagurblá.
Sðlin lágt á lofti er
þvi desember skamma birtu ber.
Jólastjaman skín svo skært
að í hveiju skoti verður bjart.
Fékk ranga
filmu til baka
Kona hafði samband:
í ágúst sl. fór ég með „slides"
filmu í framköllun í Myndiðn. Ein-
hver ruglingur varð svo að ég
fékk ekki mínar litskyggnur til
baka heldur einhverjar sem höfðu
verið teknar erlendis, líklega í
Afríku. Á minni fílmu voru mynd-
ir úr hestaferðalagi og langar mig
skiljanlega mjög til að fá þær
aftur. Filmunúmerið mitt var
1194 og er ekki ólíklegt að filman
sem ég fékk hafi haft númer ná-
lægt þvi. Þú, sem fékkst ranga
filmu, vinsamlega hafðu samband
við Leif hjá Myndiðn.
Afsakaðu Þórir
Húsmóðir hringdi:
í grein sem ég skrifaði í Morg-
unblaðið þriðjudaginn 9.des. og
hét „í mínu ungdæmi var alltaf
sagt friður og frelsi", varð mér
það á í messunni að kenna dóm-
prófastinum í Reykjavík ræðu sem
Þórir Stephensen dómprófastur
hélt. Ég bið þá báða velvirðingar,
sérstaklega þó Þórir því ræðan
var góð og það er svekkjandi að
láta ræna sig góðum hlutum.
„Ég vil að Borg-
arspítalinn fái að
vera 1 friði
Ein sem hefur dvalið á Borg-
arspítalanum og þurft að bera
ábyrgð hringdi:
Ég get ekki orða bundist yfír
þessum svokölluðu ráðamönnum
þjóðarinnar. Þeir þykjast sumir
standa í ströngu við niðurskurð á
ríkisreknum fyrirtækjum. En
hvað með Borgarspítalann og allt
það fómfúsa og hæfa fólk sem
þar hefur fómað bestu árum ævi
sinnar og skapað sérstakt og
manneskjulegt andrúmsloft sem
þar ríkir?
Ég er ekki neinn rithöfundur
en samt langar mig til að leggja
starfsfólki Borgarspítalans lið. Eg
vil að spítalinn fái að vera í friði.
Svo vil ég í leiðinni spyija
hvemig á því standi að opinberir
starfsmenn og aðrir virðast aldrei
bera neina ábyrgð, hversu illa sem
fyrirtækin fara sem þeir stjóma?
Fann gleraugu
Kristrún hringdi:
Ég fann gleraugu, tvískipt, á
gangstéttinni fyrir framan Laug-
amesveg 96-100. Þetta var fyrir
u.þ.b. viku. Síminn hjá mér er
35746.
Til kvennalista-
kvenna
S.I. hringdi:
Af gefnu tilefni langar mig til
að spyija kvennalistakonur að því
hvort þeim finnist sínum heil-
brigðu bömum mismunað með
niðurgreiðslum sumardvalar fyrir
fötluð böm? Svar óskast í Velvak-
anda.
„Þetta er til há-
borinnar
skammar“
Kona hringdi:
Mér finnst það til háborinnar
skammar að stofnanir og fyrir-
tæki skuli vera farin að hafa það
fyrir fastan sið að setja starfsfólk
sitt á „fyllirí" á hveiju ári í þess-
ari jólaglögg, sem svo kallast.
Margir em veikir fyrir víni og
rennur bæði seint og illa af þeim
aftur. Ef ég stjómaði fyrirtæki
myndi ég heldur gefa starfsfólki
mínu gvendarbmnnarvatn eða
mysu, væri það þyrst.
Svo má bæta því við að aldrei
hefur verið meiri þörf á því en
nú að vera með fullu viti þann
tíma sem vakað er, en það er
enginn sem búinn er að drekka
áfengi, hvað litið sem það er.
Bergið klifið. Minn-
ingar veiðimannsins
Hlöðvers Johnsens.
Úteyjalíf náttúrubarns
og náttúruskoðara, sjó-
mennska með Binna í
Gröf, Vestmannaeyja-
gos. Einnig fróðleiks-
brunnur um horfna
þjóðhætti Eyjamanna.
• V : ' Æ f •
’ 1 .Jy ■v *
má -ÍSÍ
PjMT
„ ég hélt o& |?að hetói toarzx. \jer\t5
dnn hundur í gxLudýnxbú&inni
ást er... < í
7 /\
( n /r P ■
JZL IO-I
,.. að leika og
syngja fyrir hana.
TM Req. U.S. Pat. Ott — all rigtits reserved «1984 Los Angeles Times Syndicate
I.
- - - *» •# DUO
Ég hefði ekki átt að
panta kínverska súpu!
HÖGNI HREKKVlSI