Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
Axel Einars-
son hrl. látinn
AXEL Einarsson hrl. lést á heim-
iU sínu aðfaranótt laugardagsins
20. desember sl. á 55. aldursári.
Axel Einarsson fæddist í
Reykjavík 15. ágúst 1931, sonur
hjónanna Einars Baldvins Guð-
mundssonar hrl. og Kristínar
Ingvarsdóttur. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1951 og kandídats-
prófi í lögfræði frá Háskóla íslands
árið 1956. Axel stundaði nám í sjó-
rétti við Lundúnaháskóla um eins
árs skeið árið 1956 til 1957 og réðst
að námi loknu sem fulltrúi á mál-
flutningsskrifstofu Einars Baldvins
Guðmundssonar, Guðlaugs Þor-
lákssonar og Guðmundar Péturs-
sonar og varð peðeigandi sömu
stofu árið 1968. A síðustu árum rak
hann málflutningsskrifstofuna í fé-
lagi við Guðmund Pétursson hrl.
og Pétur Guðmundarson hrl.
Axel gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum og átti meðal annars sæti
í stjórn Knattspyrnusambands Is-
lands á árunum 1958 til 1967 og
í stjóm Handknattleikssambands
Axel Einarsson hrl. *
íslands árin 1958 til 1970 og var
formaður þess 1967 til 1970. Hann
var eftirlitsmaður íslenskra get-
rauna frá 1969 og í íþróttaráði
Reykjavíkur árin 1970 til 1974.
Axel Einarsson sat í stjóm fjöl-
margra fyrirtækja, svo sem Eim-
skipafélags_íslands hf., Ferðaskrif-
stofunnar Úrvals hf. og Flugleiða
hf.
Eftirlifandi eiginkona Axels er
Unnur Óskarsdóttir og áttu þau
íjögur böm.
„Vil ganga frá hand-
ritasafmnu mínu“
„ÉG ER afskaplega glaður yfir
því að vera kominn í hóp heiðurs-
manna listalauna og er þetta
mikill sjóður fyrir mig. Þó veit
ég að til eru margir, sem eiga
launin skilið, en hafa ekki fengið
þau. Samt sem áður eru flestir
svo eigingjarnir að þeir hugsa
mest um sjálfa sig og geri ég ráð
fyrir að ég sé einn af þeim,“
sagði Jón úr Vör í samtali við
Morgunblaðið.
Jón sagðist ætla að lifa af heið-
urslaununum þar sem hann hefði
ekki verið í þeirri stöðu áður að
eftirlaun fylgdu. „Ég á mikið safn
handrita, sem ég þarf að ganga frá
áður en ég er allur og hefði ég
ekki getað það án þessa stuðnings.
Þó hef ég ekki mikinn áhuga á að
gefa mikið meira út en þegar er
komið á markaðinn, heldur vil ég
snúa mér að því að ganga frá safni
mínu og í það fer mikill tími.
Ég er búinn að ánafna Bókasafni
Kópavogs handritasafn mitt, sem
er geysimikið, enda hef ég verið
að skrifa í öllum tómstundum frá
12 ára aldri. Og aðeins lítill hluti
af því sem ég hef skrifað hefur
verið prentaður," sagði Jón úr Vör
að lokum.
Alls voru 16 tilnefndir til heiðurs-
launa listamanna og eru þeir Jón
úr Vör og Árni Kristjánsson, píanó-
leikari, nýir í þeim hópi. Morgun-
blaðinu tókst ekki að ná tali af
Ama í gær þar sem hann var stadd-
ur erlendis.
Brú yfir Ölfusárósa:
60 miiljónir til framkvæmdanna
:- Á þessu ári er veitt 60 miljjón-
I. um til framkvæmdanna og
hefur þegar verið unnið fyrir
15 milljónir.
Að sögn Péturs Ingólfssonar
yfirverkfræðings á brúardeild er
búið að gera veg að ósnum frá
Eyrarbakka og næsta skref er brú
yfír ósinn. Þegar því verki er lok-
ið þarf að leggja rúmlega sjö
kílómetra veg út tangann að Þor-
lákshöfn.
í útboðslýsingu er gert ráð fyr-
ir að byggð verði 360 metra löng
brú með 6,5 metra akbraut ásamt
vegfyllingu og leiðigörðum beggja
vegna brúarinnar. Verkinu er
skipt niður í nokkra áfanga og
eiga framkvæmdir að hefjast vor-
ið 1987. Tilboðum skal skila til
Vegagerðar ríkisins fyrir 26. jan-
úar 1987.
VEGAGERÐ rikisins hefur brú yfir Ölfusárósa og á
auglýst eftir tilboðum í veg og inu að vera lokið 1. ágúst
Þinghald á lokaspretti
Bréf ráðherranna ekki
kynnt þingflokkunum
ÓLAFUR G. Einarsson, formað-
þingflokks sjálfstæðismanna,
sagði í umræðum um fjárlög á
Alþingi aðfaranótt laugardags,
að bréf það sem forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra og
heilbrigðisráðherra sendu borg-
arstjóra varðandi hugsanlega
yfirtöku ríkisins á Borgarspítal-
anum hefði ekki verið kynnt
þingflokki sjálfstæðismanna áð-
ur en það var sent.
Ólafur sagði að Þorsteini Páls-
syni fjármálaráðherra og Ragnhildi
Helgadóttur heilbrigðisráðherra
hefði verið gefið umboð þingflokks-
ins til að finna lausn á þessu máli
en þá skyldi jafnframt iiggja fyrir
yfirlýsing um það hvemig sjálf-
stæði spítalans yrði tiyggt. Engin
slík yfirlýsing lægi fyrir ennþá.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks framsóknarmanna, lýsti því
einnig yfír að þetta bréf hefði ekki
verið kynnt í þeirra þingflokki og
mátti skilja á orðum hans að ekki
væri fullvíst hvort þar næðist sam-
staða um yfirtöku ríkisins á eignar-
hluta borgarinnar.
FUNDIR voru í sameinuðu
þingi og báðum deildum þings-
ins aðfaranótt laugardags. Til
umræðu var frumvarp að fjár-
lögum en einnig voru tvö
frumvörp afgreidd sem lög og
samþykktar tvær þingsályktun-
artillögur.
Þau frumvörp sem urðu að lög-
um voru annarsvegar frumvarp
til laga um stofnfjársjóð fískiskipa
og hinsvegar frumvarp um fram-
hald álagningar ýmissa tímabund-
inna skatta og gjalda á árinu
1987.
Fundur hófst síðan í efri deild
þingsins klukkan hálfellefu um
laugardagsmorguninn. Þar voru
samþykkt lög um breytingu á
tekju- og eignaskatti, lánsfjárlög,
Áhrif dóms Hæstaréttar í okurmálinu:
Ákæruvaldið þarf að endurskoða
mál yfir hundrað einstaklinga
DÓMUR Hæstaréttar í máli lög-
fræðings, sem ákærður var
fyrir að okra á Hermanni
Gunnari Björgvinssyni, mun
væntanlega hafa þau áhrif að
ákæruvaldið verður að endur-
skoða málatilbúnað sinn í
málum yfir eitt hundrað ein-
staklinga, sem ákærðir hafa
verið i tengslum við okurmálið
svokallaða.
Hæstiréttur sýknaði lögfræð-
inginn af ákæru um að hafa tekið
okurvexti af lánum til Hermanns
Björgvinssonar frá 2. ágúst 1984,
á þeirri forsendu að Seðlabankinn
hefði ekki gefíð nein gild fyrir-
mæli um hámarksvexti af lánum
frá þeim tíma, eins og honum var
skylt samkvæmt lögum. Lögfræð-
ingurinn var aðeins dæmdur fyrir
að hafa tekið of háa vexti af láni
sem veitt var fyrir þennan tíma.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Hallvarður Einvarðsson
ríkissaksóknari að þessi dómur
kæmi tvímælalaust til með að
hafa veruleg áhrif á framgang
þessara mála, en yfír eitthundrað
einstaklingar hafa veríð ákærðir
á svipuðum forsendum og Iög-
fræðingurinn.
Hallvarður vildi ekki tjá sig um
forsendur dómsins að öðru leyti
en því að ákæruvaldið hefði talið
að ákvæði um hámark vaxta væru
í gildi samkvæmt auglýsingum
Seðlabankans. Hæstiréttur hefði
hinsvegar talið að þar væri ekki
nægilega vel frá gengið. Nú lægi
gildi þessara ákvæða ljóst og
skýrt fyrir og ákæruvaldið og
héraðsdómarar yrðu að taka
framhald þessara mála til athug-
unar með tilliti til þess.
Morgunblaðið hafði samband
við Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóra en hann vildi ekkert segja
um hæstaréttardóminn á þessu
stigi málsins þar sem hann hefði
ekki séð dóminn og enginn við-
brögð yrðu af hálfu Seðlabankans
fyrr en bankinn hefði kynnt sér
forsendur dómsins rækilega.
lög um ríkismat sjávarafurða, lög
um fangelsi og vistheimili og
breyting á lögum um listamanna-
laun.
Fundur í neðri deild hófst
klukkan tólf og þar voru afgreidd
lög um frádrátt vegna fjárfestinga
í atvinnurekstri. Oskað var eftir
nafnakalli og greiddu 22 atkvæði
með, 11 á móti, einn sat hjá og
sex voru fjarverandi. Með tillög-
unni greiddu atkvæði allir við-
staddir stjórnarþingmenn að
undanskildum þeim Ólafi Þ. Þórð-
arsyni, sem greiddi mótatkvæði,
og Stefáni Valgeirssyni, sem sat
hjá.
Fundur í Sameinuðu þingi hófst
klukkan tvö og var þar frumvarp
að íjárlögum afgreitt sem lög.
Stefnt var að því að ljúka þeim
málum sem fyrir lágu áður en
jólaleyfi þingmanna hæfíst en
þingfundi var ekki lokið er Morg-
unblaðið fór í prentun.
Talsverð ölvun
TALSVERÐ ölvun var í borginni
á föstudagskvöld og aðfaranótt
laugardagsins og fylltust fanga-
geymslur lögreglunnar af þeim
sökum. Allt gekk þó stórslysa-
laust fyrir sig og án ófriðar.
Nokkuð var um innbrot í fyrri-
nótt, en litlu stolið. Brotist var inn
í verslunina Toppkjöt í Garðabæ og
verslunina Vog við Bröttubrekku í
Kópavogi. Þá var brotin rúða í versl-
un Jens Guðjónssonar, gullsmiðs,
við Pósthússtræti á áttunda tíman-
um í gærmorgun og tekið þaðan
skart. Ijón er ekki talið mikið.
Samkvæmt upplýsingum Rann-
sóknarlögreglu ríkisins hafa innbrot
í geymslur í fjölbýlishúsum mjög
færst í vöxt að undanfömu og telur
hún ástæðu til þess að benda fólki
sérstaklega á að huga að geymslum
sínum. Fólk veitir þessum innbrot-
um iðulega ekki athygli fyrr en
mörgum dögum eftir að þau eiga
sér stað.
Akranes:
Þrír kærðir fyrir
ölvun við akstur
LÖGREGLAN á Akranesi hafði
í nógu að snúast á föstudag-
kvöld og aðfaranótt laugardags
vegna mikillar ölvunar bæj-
arbúa. Þrír voru ákærðir fyrir
ölvun við akstur og einn fyrir
að stela bil. Einhveijar
skemmdir urðu á kyrrstœðum
bUum þegar ölvaðir ökumenn
annarra bíla óku utan í þá, en
að öðru leyti gekk nóttin þó
stórslysalaust fyrir sig.
í samtali við Morgunblaðið sagði
lögreglumaður á Akranesi að
svona nokkuð væri óvenjulegt í
kaupstaðnum og vissi hann ekki
aðrar skýringar á þessu en fólk
væri margt komið í jólafrí.