Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
9
HUGVEKJA
Höf ðingsskapur
Jesú Krists
eftir EINAR J. GÍSLASON
„ Um helg jól er verÖur íhugunar höjð-
ingsskapur Jesú Krists. Svo er hann
einstœÖur, rismikill og tekur öllu fram.
HöfÖingsskapinn sýndi hann í lífi sinu
ogstarfi.“
„Þú Betlehem land Júda, frá
þér mun koma höfðingi, sem vera
skal hirðir lýðs míns ísrael."
(Matt. 2.6.) „A herðum skal höfð-
ingjadómurinn hvíla.“ (Jeseja
9.6.)
Að vera höfðingi er ekki öllum
gefið. Því fylgir verk örlætis og
reisn ef höfðingsskapurinn á að
skapa sér virðingu og sæmd.
Vatnsdæla saga segir um Ingi-
mund gamla að hann hafi verið
höfðingi. Örlátur, ríkur og gjaf-
mildur og gestrisinn.
Um helg jól er verður íhugunar
höfðingsskapur Jesú Krists. Svo
er hann einstæður, rismikill og
tekur öllu fram. Höfðingsskapinn
sýndi hann í lífi sínu og starfi.
Nægir að benda á þegar hann
mettaði fimm þúsund manns og
hafði til þess fimm brauð og tvo
fiska. Þegar allir höfðu etið og
voru mettir voru tólf körfur í af-
gang. Hér var veitt af rausn,
að höfðingja sið. Þegar Jesús
var í brúðkaupinu í Kana skeði
það ótrúlega mitt í veislunni að
borð og glös, allt varð tómt og
búið. Jesús bjargaði úr óefni.
Hann bauð vatni að verða að
ávaxtavíni. Jesús bruggaði ekki
né sauð, heldur urðu 600 lítrar
af vatni að hinu besta víni, sem
annars hefði tekið mánuði og ár
að verkast. Hér var höfðingi á
ferð, sem skar hlutina ekki við
nögl.
Arla dags gekk Jesús niður á
strönd. Hann vissi um lærisveina
sína vera á sjó að fiska. Þá ber
jafnt að, Jesúm á ströndina og
lærisveinana af sjónum. Mjög var
veiði treg þessa nótt. Ekkert í
soðið. Leggið netið stjórnborðs-
megin við bátinn. Nú var heldur
betur viðbragð. Allt kraumaði af
loftbólum og í netin innilokaðist
mikil mergð fiska. Annar bátur
var þarna nærri. Var nú lagst á
eitt af báðum bátunum. Urðu
báðir drekkhlaðnir og flaut á list-
um. Vertíðinni var borgið, afkoma
ársins var tryggð. Mikill höfðingi
var hér á ferð sem gaf af rausn.
Páll postuli segir um Jesúm:
„Þér þekkið náð Drottins Jesú
Krists, að hann þótt ríkur væri
(enginn var ríkari en hann) gjörð-
ist yðar vegna fátæktar, til þess
að þér auðguðust af fátækt hans.“
(II. Korintubréf 8.9.) Hvað var
hann ríkur? „Hann var jafn Guði.
Hann var í Guðs mynd. Hann
svipti sig öllu. Hann afklæddist
Guðs mynd og tók á sig þjóns
mynd og varð mönnum líkur."
(Filippíbréfið 2.7.)
Sem slíkur opinberaði Jesús
guðdóminn. Sú opinberun snertir
alla menn og nær til allra, sem
við vilja taka. „Af gnægð hans
höfum vér allir fengið og það náð
á náð ofan.“ (Jóhannes 1.16.)
Ómælt gefur hann andann, segir'
Jóhannes. Urðu þeir allir fullir af
heilögum anda, segir Lúkas lækn-
ir um hvítasunnuandann á hvíta-
sunnudag. Hann, sem er gjafari
allra góðra hluta, gefur örlátlega
og átölulaust.
Höfðinglegasta gjöf Jesú Krists
sem allir eiga kost á er: eilíft líf
„og þeir skulu aldrei að eilífu glat-
ast og enginn skal slíta þá úr
hendi minni." (Jóhannes 10.27.)
„Ég er kominn til þess að þeir
hafi líf og nægtir." (Jóhannes
10.11.)
„Hans guðdómlegi máttur hefir
veitt oss allt sem heyrir til lífi og
guðrækni, með þekkingu á hon-
um.“ (I. Pétursbréf 1.3.)
Hann átti að vera hirðir. Hirðir
er leiðtogi hjarðarinnar. Hann fer
fyrir og á undan. Hann heldur
hjörð sinni til haga, (við sitt Orð,
tekur unglömbin í faðm sér og
ber þau, en leiðir mæðurnar.
(Jesaja 40.11.) „Sjá, ég er með
yður alla daga allt til enda verald-
arinnar." (Mattheus 28.20) voru
kveðjuorð Jesú til lærisveina
sinna. Hvar er meira öryggi eða
tryggingu að fá í hverfiilum og
vondum heimi?
Höfðingsskapur Jesú nær inn í
eilífðina — þar sem ég er, þar
skal og þjónn minn vera. „Sjá
tjaldbúð Guðs er meðal mann-
anna. Hann mun búa hjá þeim.
Þeir munu vera fólk hans. Guð
sjálfur mun vera hjá þeim, Guð
þeirra. Lambið Jesús mun gæta
þeirra og leiða þá til lifandi vatns-
linda.“
„Höfðingi mikill er upprisinn
meðal vor. Lútum honum. Tignum
hann og tilbiðjum, föllum fram
fyrir honum öll þjóðin. Færum
réttar fómir. Hjörtu sem tilbiðja
hann í anda og sannleika.“ Þá
eignumst við gleðileg jól.
NYT
SÍMANÚMER
69-tl-OO
Auglýsingar22480
Afgreiðsla 83033
FJARFESTINGARFELAGIÐ
VERÐBREFAMARKAÐURINN
Genqiðídaq
21. DESEMBER 1986
Markaðsfréttir
| Veðskuldabréf - verðtryggð
Lánst. 2 afb. áári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu
12% 14% 16%
1 ár 4% 95 93 92
2 ár 4% 91 90 88
3 ár 5% 90 87 85
4 ár 5% 88 84 82
5ár 5% 85 82 78
6ár 5% 83 79 76
7 ár 5% 81 77 73
8ár 5% 79 75 71
9ár 5% 78 ! 73 i 68
10ár 5% 76 71 66
Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst. 1 afb. á ári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
20% HLV 15%
1 ár 89 84 85
2 ár 81 72 76
3ár 74 63 68
4 ár 67 56 61
5ár 62 50 56
KJARABRÉF
Gengi pr. 19/12 1986 = 1,813
Nafnverð
5.000
50.000
Söluverð
9.065
90.650
TEKJUBRÉF
Gengi pr. 19/12 1986 = 1,094
Nafnverð
100.000
500.000
Söluverð
109.400
547.000
FfARFESTJNGARFELAG ISLANDS
ÓSKAR LANDSMÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA OG EARSÆLDAR
Á KOMANDIÁRI;
fjármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
ósa/sIa