Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 29 Eyfirskur fróð- leikur og gamanmál Bókmenntir Sigurjón Björnsson Eyfirskur fróðleikur og gaman- mál. I. bindi. Kvæði og stökur I. Ingólfur Gunnarsson safnaði og bjó til prentunar. Bókaútgáfan Skjald- borg. Akureyri 1986. 172 bls. Af titilsíðu að dæma lítur út fyr- ir að hér sé í uppsiglingu nýr bókaflokkur, að öllum líkindum í fleiri en einni deild, ef svo má orða það. Sú deild sem hér upphefst nefnist Kvæði og stökur. Fimmtán höfundar eru hér kynntir. Á undan ljóðmælum þeirra er sagt stuttlega frá höfundinum og birt er af honum mynd. Þá er nokkurt úrval af kveð- skap hvers höfundar. Höfundar eru fimm konur og tíu karlar. Mikill meirihlutinn er sveitafólk og allir eru alþýðufólk að undanteknum einum presti. Allmargir höfundanna eru fæddir fyrir aldamót og því látn- ir, en meirihlutinn er þó fæddur á fyrsta hluta þessarar aldar, enginn eftir 1920. Og eins og titillinn bend- ir til er athafnasvæðið Eyjafjörður (nema í einu tilviki). Af framanskráðu leiðir því að hér birtist dálítið sýnishorn af eyfirsk- um alþýðukveðskap frá ofanverðri síðustu öld og sjálfsagt fram yfir miðbik þessarar aldar. Skiptist efn- ið í lausavísur og kvæði ort af ýmsu tilefni, allt í hefðbundnum stíl að sjálfsögðu. Ástæðulaust er að leitast við að leggja eitthvert gæðamat á þann skáldskap sem hér birtist. Allir höf- undar kunna vel með stuðla og höfuðstafí að fara og fyrir bregður snjöllum lausavísum. Hjá sumum höfundum glitrar á neista skáld- gáfu, aðrir teljast naumast meira en liprir hagyrðingar. Þetta er að sjálfsögðu eins og gengur um kveð- skap af þessu tagi. Það sem máli skiptir hins vegar, er að þessa and- legu iðju liðins tíma ber að halda til haga og varðveita og það þarf að gera hana seinni tíma mönnum aðgengilega með útgáfu. Alþýðu- kveðskapur er merkilegt skilríki um mannlíf, hugarheim, hugðarefni, málfarslega fími og frjóleika and- ans. Þetta þurfum við að þekkja til þess að vera í eðlilegum tengslum. við rætur okkar og uppruna. Víst gefur alþýðukveðskapur sem þessi tilefni til margs konar hugleiðinga, en þær hugleiðingar hlýtur hver lesandi að gera fyrir sig og óþarft að halda þeim að öðr- um. í formálsorðum útgefanda segir að „hugmyndin með útgáfu þessari (sé) sú að bjarga frá glötun ýmsu því sem til er í handritum af kvæð- um, vísum, sögum og sögnum í Eyjafirði og á Akureyri". Það mark- mið er svo sannarlega góðra gjalda vert, enda virðist enginn hörgull vera á efni, því að þegar hefur safn- ast skáldskapur í a.m.k. þijú bindi, eins og segir í sömu formálsorðum. Þetta er að minni hyggju skemmtilegt og viðeigandi framtak þessarar eyfirsku bókaútgáfu. Safnandinn, Ingólfur Gunnarsson, hefur skilað sínum hlut vel. Að lok- um get ég svo skotið því að safnandanum, að vísan efst á bls. 150 er eftir Pétur Pálmason bónda lengst í Valadal á Skörðum. //777 Y-IS/ Skartgripir Einstök fegurð og enginn gripur eins Sjaldan hefur dönsk listhönnun risiö hærra en meö Flora Danica skargripunum. Þú færö meistara- verk náttúrunnar steypt 24 karata gullhúöun og þriggja ára ábyrgö á ótrúlega lágu veröi. Og þaö sem er mest um vert. Það eru engir tveir gripir eins. Einkasöluumboö í Reykjavík. FRANCH MICHELSEN ÚRSMÍÐAMEISTARI LAUGAVEGI 39, SÍMI 28355 REYKJAVÍK Lengri frítími BETRA BRAGÐ OG MEIRI NÆRING. Matseld dagsins þarf ekki alltaf aö taka hálftíma, klukkutima eöa jafnvel lengur. Moulinex örbylgjuofninn styttir þann tima i örfáar mínútur. Moulinex fer einnig vel meö gott hráefni. Raunverulegt bragö matarins heldur sér óskert, næringarefnin hverfa ekki i soö eöa feiti og vökvatap er hverfandi litiö. Notkun Moulinex örbylgjuofnanna er auðveld og einföld - allt að því barnaleikur. Njóttu góðrar máltíðar með Moulinex. upphaf góðrar máltíðar 7»------------------------9K Fæst í næstu raftækjaverslun. • v« P&Ó/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.