Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 55 Flestir hermennirnir fóru i land i frekar litlum prömmum. Er þeir voru komnir inn var tjaldið dregið yfir og siglt að Noregs- ströndum. Fylgst með heræfingum a vegum Atlandshafs- bandalagsins Síðastliðinn september var bíla- og farþegafeij- an ms. Norröna í sigl- ingum sem voru gjörólíkar þeim er hún var í í sumar. Var hún leigð til Atlantshafsbandalagsins til her- mannaflutninga. Um borð vorum við 12 íslendingar við vinnu auk Færeyinganna sem eru í áhöfn- inni. Eftir að Norröna skilaði sein- ustu ferðamönnunum í Hanstholm þann 30. águst sigldum við beint til Plymouth í Suður-Englandi. Um borð var einungis skipshöfnin svo og 10 enskir liðsforingjar sem voru að skipuleggja hvernig ætti að vera um borð næstu 3 vikum- ar, t.d. skipta herbergjum á herdeildirnar. Við komum til Plymouth þann 1. september og þá komu 700 hermenn um borð, allir búsettir í Plymouth. Þar af voru 200 liðsforingjar og 500 óbreyttir. Þeir voru allir einkenn- isklæddir er þeir komu um borð og vom það allan tímann að und- anskildum 3 dögum í Árhus þar sem þeir vom í fríi. Svo Norröna fylltist af grænklæddum her- mönnum og sá hópur var ólíkur þeim lífsglöðu túristum sem sprönguðu um borð í allt sumar. Einnig var bíladekkið fyllt af herbílum og fallbyssum. Svo sigldum við af stað til Larvíkur í Oslófirði, þar sem hluti hausthæfinga Atlantshafsbanda- lagsins fór fram. Siglingin gekk hægt, við vomm í samfloti með mörgum öðmm skipum og alltaf bættust skip í hópinn. Með í för- innr var Intrepid sem er eitt stærsta herskip breskt. Einnig sást óvelkomið rússneskt skip þarna, en auðvitað vildu állir fá að sjá hvað við vomm að gera! Svo sigldum við norður, upp milli Englands og írlands og til Larvík- ur. Við sigldum í eintómum U-beygjum alla leiðina því undir okkur vom kafbátar að æfa. Skip- in sigldu öll í halarófu hvert á eftir öðru. Þessi sigling tók viku. Slæmt ástand var um borð því við vomm orðin næstum vatnslaus og spara varð hvem dropa. Við fengum ekkert heitt vatn og stundum var allt vatn tekið af. Vaska varð allt upp í höndunum því uppþvottavélin eyðir víst miklu vatni. Daglega hjálpuðu 3 her- menn til við uppvaskið. Var þetta skemmtileg tilbreyting fyrir þá eða svo sögðu þeir a.m.k. Þessa vikuna vom þeir lítið að æfa nema helst með byssurnar þótt aldrei væri hleypt af skoti. Það var furðulegt að sjá þá alltaf með þennan óhugnað hangandi um axlimar, líka þegar þeir komu í mat. Stéttaskiptingin í hernum var áberandi, t.d. borðuðu liðsforingj- amir í restaurantinu en þeir óbreyttu í kaffiteríunni. Cocktail- barinn var einungis fyrir liðsfor- ingjana og gátu þeir keypt allar tegundir áfengis, en þeir óbreyttu vom með næturklúbbinn og fengu einungis bjór afgreiddan. Herinn hafði yfirráð yfir radíó- stöðinni, við í áhöfninni fengum aldrei að hringja heim og vomm alveg sambandslaus í rétt tæpar 2 vikur. Skipið var alveg myrkvað á hverri nóttu. Svartir ruslapokar vom fyrir hverjum glugga, engin útiljós og slökkt í brúnni. Skipin Hér siglir einn prammanna frá Norrönu. Utar má sjá tvö af skipunum sem voru 5 samfloti með okkur til Noregs. Herbíll dregur fallbyssu út á pramma. Einn af minni prömmunum tengdur við bíladekk- ið. Hermennimir hafa keyrt nokkra bíla út á hann sem flytja átti til Noregs. Hér er einn af stæstu prömmunum í'rá herskip- inu Intrepid tengdur við bíladekkið og hermenn- imir keyra bíl og fallbyssur út á hann. Til hægri má sjá hermenn með eina fallbyssuna. máttu ekki sjást í myrkri og var mjög drungalegt að fara út á dekk í myrkrinu. Við komum loks til Larvíkur. Þá æfðu hermennimir innrás, grænmálaðir í framan. Við lágum rétt fyrir utan Larvík og komu prammar frá Intrepid og sigldu að bíladekkinu. Bíladekkið var opnað og síðan tengt við pramm- ana. Síðan var herbílunum og fallbyssunum ekið yfir á pramm- ana. Tók langan tíma að koma öllum herbílunum og hermönnun- um í land. Það var mjög áhugavert að fylgjast með þessum flutning- um. Alls staðar voru prammar og þyrlur að flytja hermenn. Tæpri viku síðar komu her- mennimir aftur um borð og vorum við þá búin að taka nóg vatn. Hermennirnir voru mjög þreyttir enda flestir búnir að sofa lítið og þá undir beru lofti. Við í áhöfn- inni vorum fegin að heyra að enginn af Norrönu hafði látið lífið í æfingunum en minningarathöfn var haldin um þá hermenn sem fórust af öðrum skipum. Sigldum við nú til Árhus þar sem hermennimir fengu 3 daga frí en þeir borðuðu samt alltaf um borð. í Árhus lágu mjög mörg önnur skip sem einnig höfðu verið við æfingamar. Frá Árhus sigld- um við til Þýskalands þar sem hermennimir æfðu aðra innrás með sama hætti, en þeir komu ekki aftur um borð. Enn em margir á æfingum í Þýskalandi en aðrir flugu heim. Við sigldum til Kaupmannahafnar og undir- bjuggum komu flóttamanna sem dveljast þar um borð næstu mán- uði. Hermönnunum líkaði vel um borð, þótti allur aðbúnaður góður. Tekur Atlantshafsbandalagið Norrönu aftur á leigu í mars og fara þá nokkrir af íslendingunum aftur að vinna þar. En við sem unnum núna í september emm öll sammála um að þessi tími var óvenjuleg reynsla sem okkur fannst merkilegt að upplifa. Steinvör V. Þorleifsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.