Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986 35 Bók um ótrúlega atburði FRJÁLST framtak hefur sent frá sér bókina Otrúlegt en satt eftir Tim Healy í íslenskri þýð- ingu Björns Jónssonar og Karls Birgissonar. Bókin fjallar um ýmsa ótrúlega atburði, en sanna, sem fjölmiðlar hafa greint frá á ýmsum tímum og kemur þar fram að sannleikurinn er oft öllum skáldskap og skreytni ótrúlegri. Skiptist bókin í níu kafla og segja kaflaheitin nokkra sögu um efni bókarinnar. Kaflarnir heita: Dýralíf; Undarleg hegðun; Einfar- ar; Bellibrögð; Trú og sannindi; Undur vísindanna; Fyrirbæri; Dauði og greftrun og Hið blábera bann. Svo sem fram kemur fjallar bókin ekki aðeins um fólk og atvik sem hendir það heldur einnig ýmsar furður náttúrunnar. Bókin Otrúlegt en satt er prýdd fjölmörgum ljósmyndum af ýmsu því sem við sögu kemur. Bókin er prentunnin í Prentstofu G. Bene- diktssonar en bundin hjá Bókfelli hf. Kápuhönnun annaðist Auglýs- ingastofa Ernst Bachmanns. Bók um fjölskyldu í Kópavogi jöG j m m Unnur Stefánsdóttur hefur gefið út bókina Asi og Bína, sem er barnasaga eftir hana með teikningum Þuríðar Einarsdóttur. Sagan segir frá fjölskyldu í Kópa- vogi, krökkunum Ása og Bínu og foreldrum þeirra, en raamman er skólastjóri og pabbinn hárgreiðslu- maður. Bókin er 26 blaðsíður, sem skiptast jafnt milli texta og mynda. Kápan var prentuð í Eddunni Off- setfjölritunarstofa Sigurðar Frið- finssonar prentaði texta og teikningar. Skáldsaga eftir Sidney Sheldon BÓKAFORLAG Odds Björns- sonar, Akureyri, hefur gefið út bókina Saklaus svipur eftir Sidney Sheldon. Sólveig Sigurð- ardóttir íslenskaði. í kynningu forlagsins segir: „Dr. Judd Stevens er nafntogaður sál- fræðingur í New York, sem hefur notið mikils álits. En allt í einu verða örlagaríkar breytingar í lífí hans. Lögreglan fer að gruna hann um morð á einkaritara sínum og einum af hinum vel metnu sjúkling- um sem hann hefur haft til með- ferðar. Mafían kemst í spilið og upphefst mikill eltingaleikur." Bókin er 208 bis. að stærð, prent- uð og bundin í Prentverki Odds Bjömssonar á Akureyri. Skáldsaga eftir Steinar Sigurjónsson BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs hefur gefið út skáldsöguna Síngan Rí eftir Sjóna Sands, en það er höfundarnafn Steinars Sigurjónssonar. I fréttatilkynningu frá útgefanda segfir: „Steinar Siguijónsson er einn af sérstæðustu og frumlegustu höf- undum okkar sem nú eru miðaldra og löngu kunnur af ljóðum sínum, smásögum og skáldsögum en einnig snjöllum ferðaþáttum utan úr heimi. Mun Síngan Rí enn auka á orðstír hans sem skálds." Síngan Rí er 131 bls. að stærð og bókin gefín út sem kilja. Hún er sett, fílmuunnin og prentuð í Eddu. Steinar Siguijónsson Könnun á kolvetnainni- haldi drykkja og grauta í KÖNNUN á kolvetnainnihaldi matvæla sem Neytendasam- tökin og Samtök sykursjúkra í Reykjavík létu gera kom í ljós að orðin sykurskertur, sykursnauður og sykurminna eru not- uð jöfnum höndum af framleiðendum án þess að opinber skilgreining sé til á þýðingu þeirra. í skýrslunni segir að til dæmis sé merkingin „sykurminna“ á maltöli frá Sanitas hf. neytendum í raun lítils virði þar sem engar uppiýsingar um innihald eru á umbúðunum. Við mælingu reyndist sykur- minna maltið innihalda 12% sykur, en Egils maltöl inniheldur 15,6% sykur. Gosdrykkir og „djúsar“ sem merktir eru „sykurlausir" standa undir nafni, samkvæmt niðurstöð- um af mælingu á úrtaki könnun- arinnar. Ávaxtadrykkir í litlum fernum sem sagðir eru „svkur- skertir" innihalda hinsvegar allir einhvern sykur, Hi-C minnst eða 1,4% en Gosi mest eða 5%. Venju- legir ávaxtadrykkir innihalda allir um 10% kolvetni, eða sykur. Við mælingu á „sykursnauðum" grautum frá Sól hf. kom í ljós að jarðarbeijagrautur inniheldur 8,2% kolvetni, en apríkósugrautur 18%. Á umbúðum þeirra segir hinsvegar að kolvetnisinnihaldið sé 4-5%. Að sögn Georgs Gunnarssonar, efnaverkfræðings hjá Sól, veldur hér mismunandi skilgreining á hugtakinu kolvetnisinnihald. „Við höfum, í fullu samráði við Holl- ustuvernd ríkisins, ákveðið að telja kartöflumjöl sem notað er til bindingar ekki með í kolvetnisinni- haldi grautanna. Nú hefur verið ákveðið að næst þegar prentaðar verða umbúðir utan um grautána munum við gefa upp innihaldið með þessum sterkjuhluta inniföld- um.“ Hann sagði að einnig hefði sykurinnihald apríkósugrautarins hækkað síðan upplýsingamar á umþúðunum lágu fyrir. Notuð væri uppskera frá Tyrklandi og Spáni sem væri sætari en apríkós- ur frá löndunum við Rauða-hafið. Mælingar á matvælunum gerði Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins. Athuguð voru sýni af ávaxta- drykkjum, „djúsum", gosdrykkj- um og grautum. Kolvetni eru samkvæmt skilgreiningu samtak- anna sykur (strásykur, ávaxta- sykur og þrúgusykur), sterkja og treijaefni. / Ó L A G J Ö F / H H AN S LLOYII hattifrnÍAh) H ERRADEI LD P&O’ Austurstræti 14, s: 12345.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.