Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
25
Eg er og verð
alltaf rokkari
- Rætt við Björgvin Halldórsson, sem
sent hefur frá sér sína fjórðu sólóplötu
„ÞAÐ eru þijú eða fjögur ár
siðan ég sendi síðast frá mér
sólóplötu og mér fannst tími til
kominn að gera eitthvað í mál-
inu,“ sagði Björgvin Halldórsson,
söngvari, sem nú hefur sent frá
sér sína fjórðu sólóplötu. Björg-
vin kemur reyndar við sögu á
tveimur öðrum plötum, sem út
hafa komið hér á landi að und-
anförnu. A þeim annast hann
upptökustjórn og umsjón, en
þessar plötur eru „Með kveðju
heim“ með Kristjáni Jóhannssyni
og „I takt við timann", þar sem
Sinfóniuhljómsveit íslands leikur
vinsæl islensk dægurlög. Nýja
sólóplata björgvins heitir ein-
faldíega „Björgvin" og á henni
syngur hann 10 ný íslensk lög
með aðstoð nokkurra valin-
kunnra hljómlistarmanna.
„Ég er ekki einn þeirra sem get
rutt frá mér svona plötu með vissu
millibili, bara til að vera með. Ég
verð að finna sterka þörf hjá mér
til að fara út í plötugerð og sú þörf
var orðin ansi sterk að þessu sinni
svo að ég ákvað að hella mér út í
þetta," sagði Björgvin.
Hann kvaðst hafa viðað að sér
efni úr ýmsum áttum og valið svo
úr því. „Þama eru þijú lög eftir
Jóhann G. Jóhannsson, tvö lög eftir
Jóhann Helgason, tvö lög eftir vin
minn og hjálparhellu Ed Welch, eitt
eftir Sigurð Bjólu, fyrrum Spil-
verks- og Stuðmann og eitt stórgott
lag eftir Stuðmanninn Valgeir Guð-
jónsson, sem hann samdi fyrir
sjónvarpsleikrit Ágústs Guðmunds-
sonar, „Ást í kjörbúð“. Og ekki má
gleyma lagi Eyjólfs Kristjánssonar,
„Ég lifi í draumi", sem samið var
fyrir söngvakeppni sjónvarpsins í
fyrra. Þetta er sem sagt blandað
efni úr ýmsum áttum, rólegar bal-
löður og hröð rokklög. Það hafa
margir sagt að nú í seinni tíð láti
mér betur að syngja róleg lög, en
sjálfum finnst mér ekki síður gaman
að syngja hressileg rokklög. Ég er
og yerð alltaf rokkari.
Ég er nokkuð ánægður með út-
komuna á þessari plötu. Ég hafði
góða menn með mér sem eru Ás-
geir Óskarsson á trommur, Tómas
Tómasson bassa, Þórður Ámason
gítar, Jon Kjell hljómborð, Ed Welch
hljómborð, Kristinn Svavarsson
saxófón og Howie Casey á saxófón.
Einnig syngja Sigríður Beinteins-
dóttir og Diddú með mér í sitt hvom
laganna. Þetta er allt saman topp-
fólk og útkoman eftir því. Hins
vegar get ég alveg viðurkennt að
svona eftir á er ýmislegt sem ég
hefði viljað gera öðmvísi. Þannig
er það alltaf og ekki nema gott eitt
um það að segja. Ef maður væri
svo rosalega ánægður með sjálfan
sig að maður teldi sig ekki geta
gert betur er eitthjvað að. Þá er
eins gott að hætta þessu.“
Björgvin sagði að í ráði væri að
gera enska texta við nokkur lag-
anna og þreifa fyrir sér með útgáfu
þeirra erlendis. „Ekki svo að skilja
að maður gangi enn með gamla
heimsfrægðardrauminn í magan-
um,“ sagði hann. „Hins vegar sakar
ekki að þreifa fyrir sér erlendis og
sjá hvað kemur út úr því. Það hafa
ákveðnir aðilar sýnt áhuga á að
gefa eitthvað af þessu út. Ég tók
upp fleiri lög en komust fyrir á plöt-
unni og eitt þeirra verður líklega
sent til Japans, á „Yamaha Song
Festival", sem haldið verður í Bud-
okan Hall í Tokyo á næsta ári.
Þetta er ein mesta söngvahátíð sem
haldin er í heiminum og það verður
spennandi að sjá hvað kemur út
úr því.“
Varðandi aðrar framtíðaráætlan-
ir sagði Björgvin meðal annars:
„Mig er farið að langa aftur til að
spila í hljómsveit. Það er nokkuð
sem maður losnar aldrei við. Ég
hef hug á að setja saman kántrí-
rokk band með tilheyrandi hljóð-
færaskipan, svo sem stálgítar. En
þetta er allt óákveðið enn sem kom-
ið er.“
Björgvin hefur raunar fleiri jám
í eldinum en tónlistina þar sem
hann annast umsjón með skemmt-
anahaldi í veitingahúsum Ólafs
Laufdal. Hann vildi lítið tala um
fyrirætlanir sína á því sviði á næstu
vikum og mánuðum. Þó mátti skilja
á honum að fyririhugað væri að fá
aftur góðkunningja okkar Fats
Domino til landsins á næsta ári.
„Fats vill koma aftur, það er á
hreinu. Honum fannst svo gaman
héma síðast. Ég hef verið að vinna
í að fá hann aftur og í rauninni
ætti ekkert að vera því til fyrir-
stöðu. Einnig hef ég átt í viðræðum
við fleiri þekkta listamenn svo sem
Chuck Berry, Little Richard og
Everly bræður. Svona samningar
taka hins vegar sinn tíma, en ég
er vongóður um að úr rætist og að
þessir listamenn eigi eftir að láta
sjá sig hér áður en langt um líður.“
PHILIPS RYKSUGUR
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - S. 20455 - SÆTÚNI8 - S. 27500
kreditkorta-
hiöNUSTA _
BíhL
BORGARLJOÐ,
ViKURÖTGÁFAN
í bókinni eru tuttugu kvæði tengd
Reykjavík. „Gunnar Dal er þá
búinn að færa borginni sína af-
mælisgjöf og hefur vel til vandað."
Mbl. 19/8.
Þýðandi Skúli Magnússon
Þau viðhori sem hér koma fram
munu væntanlega koma íslenskum
lesendum all framandlega fyrir
sjónir. Tekið er á málum á nýjan og
ferskan hátt.
Gunnar Dal íslenskaði
„Einstæð bók að gæðum. “ Alþbl. 29/11.
„ Betri jólagjöf en Mannssoninn getur eng
inn maður óskað sér. “ Mbl. 2/12.
VÍKURÚTGÁFAN