Morgunblaðið - 21.12.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1986
Bókaflokkurinn sem hefur hitt í mark!
Mörk og Steinarsson
sætir sigrar
— annað bindi sögu íslensku knattspyrnunnar!
Nú er sagt frá 1. deildarkeppninni 1964—1970 og að sjálfsögðu
1986.
Bokin er 208 bls. með nær
________________ 400 myndum.
Skemmtilegar frásagnir:
• KR-ingarfóru meðþyrlu upp áAkranes.
® Keflvíkingar skutu KR-ingum og Skaga-
mönnum ref fyrir rass.
• KR-ingar smylguöu bikarnum út af Laug-
ardalsvellinum.
® „Brasilíumennirnir" frá Akureyri.
® Keflvíkingar réðu ekkert við Sigurð Dags-
son, markvörð Vals.
® Rikhaöur Jónsson sleginn niöur á Akra-
nesi.
® Þórólfur Beck aftur meÖ KR.
® Eyjamenn skelltu íslandsmeisturum Vals.
® Ellert B. Schram og Hermann Gunnars-
son reknir af leikvelli.
• Skagamenn fóru meö Akraborginni til
Keflavikur.
— og margar aðrar frásagnir af sögulegum
atburðum
Sigxmmdur Ó. Steinarssonj
.sigrar
Sagf frá
H I. deildar-
keppníiuii
SS? 1964-1970]
oq 1986
[SE'LECTI
Tímaritið Sagæ.
Sjónum beint
að félagssögu
TÍMARITIÐ Saga 1986 er komið
út. Félagssaga er efst á baugi í
ritinu að þessu sinni, en að auki
eru þar greinar um önnur efni,
skoðanaskipti og fjöldi ritdóma.
I formála tímaritsins segir, að
j hugtakið félagssaga sé vítt, en inn-
an félagssögu hafi athyglin á
seinasta áratug mjög beinst að fjöl-
skyldusögu í víðasta skilningi og
sögu kvenna og bama sérstaklega.
1 Fjórar greinar eru birtar um efnið
í Sögu að þessu sinni. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson gerir grein fyrir hug-
tökunum félagssaga og fjölskyldu-
saga og rannsóknum í fjölskyldu-
sögu almennt, en greinar Gunnars
Karlssonar, Helga Þorlákssonar og
Guðmundar Hálfdanarsonar eru á
sviði kvenna- og barnasögu.
Af öðrum toga er grein Kjartans
Ólafssonar um áform Frakka að
koma upp nýlendu í Dýrafirði; þótt
ísland heyrði til Danmörku var það
þó á áhrifasvæði Breta og mátti
því búast við að ásælni Frakka
leiddi til togstreitu milli stórveld-
anna. Jón Hnefill Aðalsteinsson
færir rök að því að norræn trú
hafi átt meiri ítök hér á landi á 10.
öld en almennt hefur verið talið og
Harald Gustafsson leiðir í ljós að
settar voru fram hugmyndir um að
koma átthagafjötri á íslenska
bændur á 18. öld. Þá heldur Björn
Th. Björnsson áfram umræðu þeirri
sem vakin var í Sögu 1985 um Þing-
velli og Þingvallabók hans. Sautján
ritfregnir eru birtar í tímaritinu
eftir sextán höfunda og tengjast
ýmsar þeirra meginefni heftisins,
félagssögu.
I formála Sögu kemur fram, að
ráðgert er að tímaritið komi fram-
vegis út í tvennu lagi. Vorsaga
komi á vormánuðum, eins og naf-
nið ber með sér, í nýju broti, með
nýju sniði, en á haustin komi út
hefti undir nafninu Saga með sama
hætti og verið hefur að öðru leyti
en því að það verður nokkru styttra.
Ólafsvík:
Hækkun á bónusþaki mótmælt
FUNDUR var haldinn í Verka-
lýðsfélaginu Jökli, Ólafsvík, á
fimmtudag. Samningarnir voru
samþykktir samhljóða, en hækk-
un bónusþaks mótmælt.
Á fundinum var samþykkt eftir-
farandi ályktun: „Fundur um
nýgerðan kjarasamning, haldinn
18. desember 1986 í Verkalýðs-
félaginu Jökli, mótmælir harðlega
því ákvæði samningsins að hækka
bónusþak úr 200 í 210. Funduðnn
telur að lækka hefði átt þessa tölu
í 190.“
Komdu við á næstu bensínstöð ESSO og gerðu góð kaup.
Athugaðu að það er opíð bæðí á kvöldín og um helgar.
Olíufélagið hf
VÖNDUÐ SÍMTÆKI
MEÐ TÓNVALI
STEREÓ ÚTVARP
VHS MYNDBAND
3 KLUKKUSTUNDIR
LEITIN AÐ
JÍCMQIÖHNM
ENDAR HJÁ ESSO
Á bensínstöðvum ESSO fást ódýrar en vandaðar
vörur af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar í jólapakkann.
Þar fæst líka jólapappír ásamt merkíspjöldum og
margs konar vamingí tíl jólaundírbúníngs s.s. lítaðar
perur í útíseríuna, framlengíngarsnúrur og öryggí,
að ógleymdum reYkskynjurum og slökkvítækjum.
dg?-.
TVEIR KERTASTJAKAR
MEÐ KERTUM.